Feykir - 25.02.2004, Síða 7
8/2004 FEYKIR 7
Glæsilegt
íslandsmet
Vilborgar
Meistaramót íslands í fjöl-
þrautum fijálsra íþrótta fór
ffam um helgina, 21 .-22. feb.,
í Egilshöll í Reykjavík.
Vilborg Jóhannsdóttir
UMSS sigraði í sexþraut
kvenna hlaut 4486stig, sem er
nýtt íslandsmet, gamla metið
átti Vilborg sjálf, en það var
4407stig frá árinu 2001. í 2.
sæti varð Kristín Bima Ólafs-
dóttir ÍR með 4265stig og Jó-
hanna Ingadóttir ÍR í 3. sæti
með 3813stig.
í sjöþraut karla sigraði Ó-
laíur Guðmundsson UMSS
með yfirburðum, hlaut
4927stig, sem er besti árang-
ur hans í fjögur ár. í 2. sæti
varð Unnsteinn Grétarsson
ÍR með 3764stig. Fleiri luku
ekki keppninni, en sex voru
skráðir til leiks.
Stelpumar
í 2. sæti
Annar flokkur kvenna
náði frábærum árangri í
ísl.mótinu innanhúss. Þær
spiluðu 14.febrúar í úrslitum
og skemmst ffá því að segja
að þær höfhuðu í 2.sæti í úr-
slitunum.
Tindastóll sigraði Fylki 4-
0, tapaði fyrir Breiðablik 1-5.
Þar með endaði liðið í öðru
sæti í sínum riðli og spilaði
því við Fjölni í undanúrsli-
tum. Þar hafðist sigur 4-3 og
þurftu stelpumar loks að spila
við Breiðablik öðru sinni og
nú um Islandsmeistaratitilinn,
en töpuðu aftur, nú 4-2. Engu
að síður ffábær árangur. Þess
má geta að Inga Bima
Friðjónsdóttir gerði 8 mörk af
þeim 11 sem liðið gerði í
keppninni.
Mynd nr. 474. Mynd nr. 475.
Atvinnuþróunarfélag Nv
Hólaskóli fékk
hvatningarverðlaun
Stjóm Atvinnuþróunarfélags
Norðurlands vestra ákvað á
fúndi sínum 23. janúar sl. að
veita Háskólanum á Hólum
hvatningarverðlaun ársins 2003.
Félagið veitir verðlaunin árlega
til fyrirtækja eða stofnana sem
skarað hafa ffam úr í starfsemi
sinni. Verðlaunin em nú veitt í
fimmta sinn.
Háskólinn á Hólum þykir
sérlega vel að verðlaunum
kominn og er þeim óskað
áffamhaldandi velgengni í upp-
byggingu skólans.
Afhending verðlaunanna fer
ffam á Hólum þann 27. febrúar
kl. 11:30.
Áskrifendur góðir!
Þeir sem eiga ógreidda seðla fyrir
áskriftargjöldum eru vinsamlegast
beðnir að greiða hið fy rsta.
Hver er
maðurinn?
Ýmsar vísbendingar bámst
um hvaða bæjir vom birtar
myndir af í síðasta myndaþætti
sem enn hefúr ekki verið hægt
að staðfesta. Vonandi tekst það
á næstu dögum. Nú em birtar
fjórar myndir sem bárust safn-
inu úr ýmsum áttum.
Þau sem þekkja myndimar
em vinsamlegast beðin að hafa
samband við Héraðsskjalasafn
Skagfirðinga í síma 453 6640.
Smáauglýsmgar
Til sölu er Lancer árg. ‘91
ekinn 220.000 km. og gæða-
biffeiðin Seat Ibiza árg. ‘90
ekinn 54.000 km..
Uppl í s: 695 9016 (Bjöm)
Félagsvist!
Félagsvist i Höfðaborg Hofsósi
fimmtud. 26. febrúar kl. 21.
Vinningar og kaffiveitingar.
Félag eldri borgara Hofsósi.
Húsnæði!
Ibúð, fjögurra herbergja eða
stærri, óskast til leigu á
Sauðárkróki eða Hofsósi.
Upplýsingar í síma 868 7964.
Fyrsta töltmótið
í Arnargerði
Föstudaginn 13. febrúarvar
haldið fyrsta töltmót vetrarins í
Reiðhöllinni Amargerði við
Blönduós. Keppt var í þremur
flokkum; flokki unglinga og
ungmenna yngri en 20 ára, á-
hugamannaflokki og opnum
flokki. Úrslit urðu sem hér seg-
ir:
Flokkur unglinga og ung-
menna yngri en 20 ára:
1. Helga Una Bjömsdóttir á
Orðu 7v. 5,8
2. Sigrún íris Eysteinsdóttir á
Frama 9v. 5,35
3. Magnús Asgeir Elíasson á
Glettu 6v. 4,87
Áhugamannaflokkur:
1. Sigríður Lámsdóttir á
Svikamyllu 6v. 5,67
2. Elín íris Jónasdóttir á Plat-
ínui 13v. 5,55
3. Þorgeir Jóhannesson á
Neista llv. 4,9
Opinn flokkur:
1. Reynir Aðalsteinsson á
Leik 8v. 6,6
2. Einar Reynisson á Rökkver
6v. 6,5
3. Jóhanna Friðriksdóttir á
Stefnir 8v. 6,37
Laugardaginn 28. febrúar
verður keppt í fjórgang og
slaktaumatölti og hefst sú
keppni kl. 13:00 en skráning
upp úr kl. 12:00. Keppt verð-
ur í sömu flokkum og í töltinu.
Intersport-deildin
TindastóU - ÍR
fímmtudagskvöld kl. 19,15
Áfram Tindastóll!
Tindastóll lyftir
sér ofar á töfluna
Tindastóll skaust í sjötta
sæti Intersport-deildarinnar sl.
fimmtudagskvöld með góðum
útisigri á liði Hamars í Hvera-
gerði, en þeir hafa oftar en ekki
reynst Stólunum erfiðir. Hamar
bytjaði betur en Stólamir náðu
yfirhöndinni og vom yfir í hálf-
leik, 45-49. Okkar menn juku
muninn í upphafi síðari hálf-
leiks og héldu sínu allt til loka.
Lokatölur 82-94.
Kári Marísson aðstoðar-
þjálfari Tindastóls segir að
þetta hafi verið sigur liðsheild-
arinnar, allir leikmenn hefðu
lagt sig ffam í leiknum.
Nick Boyd var stigahæstur
Stólanna með 30 stig og tók að
auki 13 fráköst, Cook var með
24 stig, Sanders með 15 stig og
11 fráköst og Friðrik Hreinsson
setti niður 10 stig.
Næsti leikur Tindastóls er
að annaðkvöld í Síkinu gegn
IR-ingum. Þá munu þeir félag-
ar Sanders og Kristinn þjálfari
taka út leikbann - Sanders
reyndar einn leik til viðbótar.
Heilbrigðisstofnunin
Sauðárkróki
Sérfræðikomur í febrúar - mars. Pöntunarsími 455 4000.
25.02. - 26.02. Valur Þór Marteinsson þvagfæraskurðlæknir
26.02. - 27.02. Bjarki Karlsson bæklunarskurðlæknir
01.03. - 05.03. Anna Helgadóttir kvensjúkdómalæknir
08.03. - 12.03. Shree Datye skurðlæknir
15.03. - 19.03. Haraldur Hauksson æðaskurðlæknir
29.03. - 02.04. Hafsteinn Guðjónsson þvagfæraskurðlæknir