Feykir - 25.02.2004, Qupperneq 8
Fréttablaðið á Norðurlandi vestra
25. febrúar 2004, 8. tölublað, 24. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
© SheJJ * £ Xr«<*
VlDEQ^íftun 4536622
Leigir tjaldstæðið
til næsíxi fiimn ám
í dag, miðvikudag, verður á
Hvammstanga gengið frá samn-
ingi um leigu á tjaldstæði stað-
arins, uppi í Kirkjuhvammin-
um, til næstu fimm ára. Jafn-
framt verður undirritaður samn-
ingur um byggingu þjónustu-
miðstöðvar í hvamminum.
Þjónustumiðstöðin verður rúm-
lega 70 fermetra hús, með sturt-
um og snyrtiaðstöðu ásamt 50
fermetra sal.
Það er Skúli Guðbjömsson,
er hefúr haft tjaldstæðið á leigu
síðustu þrjú árin, sem búinn er
að framlengja samninginn til
næstu fimm ára, og jafnframt
stendur hann fyrir byggingu
þjónustuhússins, sem bygging-
arfyrirtækið Tveir smiðir á
Hvammstanga hefúr tekið að
sér að byggja.
„Þetta er rnjög skemmtilegt
tjaldstæði en þessa aðstöðu hef-
ur vantað á svæðið”, segir Skúli.
Um 1300 gestir komu á tjald-
stæðið síðasta sumar og varð þá
28% auking á milli ára. Skúli og
fjölskylda eiga fyrirtækið Bland
í poka sem rekur tjaldstæðið.
Geirmundur Valtvsson
Býður til mikillar
tónlistarveislu
Feykir og fleiri miðlar vom
„skúbbaður” rosalega þegar út
kom menningar- og afþreying-
arblað um Norðurland í síðustu
viku og dreift með Morgunblað-
inu. Þar kom m.a. fram, og
mörgum á óvart, að sveiflu-
kóngurinn Geirmundur Valtýs-
son mun bjóða til mikillar tón-
listarveislu í íþróttahúsinu á
Sauðárkróki á annan í páskum,
12. apríl, í tilefni sextugsafinæl-
is síns. Þessi fregn kom víst
Geirmundi sjálfúm líka á óvart
að því leyti að hann stóð í þeirri
meiningu að umrætt blað,
Norðurland.is, kæmi ekki út fyrr
en einhvem tima í næsta mánuði.
Geirmundur býður öllum
Skagfirðingum og landsmönn-
um til veisjunnar, meðan hús-
rúm leyfi. A tónleikunum verð-
ur flutt ný tónlist eftir Geir-
mund, sem mun koma út sama
dag á geisladiski. Textar við lög
Geinnundar eru allir eftir Skag-
firðinga og flytjendur eru líka
allir úr Skagafirði, sem dæmi
iná nefna þá Álftagerðisbræöur
og Jóhann Má Jóhannsson á-
samt fleimm, en væntanlega
verður vikið nánar að þessum
tónleikum síðar í Feyki.
„Þetta er í raun allt öðmvísi
tónlist en ég hef fengist mest
við, ekki dæmigerð sveiflulög,
heldur sönglög fvrir einsöng,
dúetta og kvartett. Eg samdi allt
efni fyrir diskinn á einum og
hálfúm mánuði, byijaði á þessu
verkefni um miðjan nóvember
og lauk við það um áramótin.
Þetta var mjög skemmtilegt og
kom mér á óvart hversu vel mér
gekk að fást við þetta”, segir
Geinnundur, en hann fagnar
einnig um þessar mundir 46 ára
tónlistaraffnæli. Magnús Kjart-
ansson og hljómsveit leggur
Geirmundi lið á nýja disknum
og sömuleiðis á afrnælistónleik-
unum á Króknum, segir í
Norðurl.is.
Geirmundur hefur verið
mjög afkastamikill í plötuútgáf-
unni síðustu misserin, en þetta
er þriðji diskurinn sem kemur
ffá honum á skömmum tíma.
Viðurkenningin afhjúpuð fyrir utan Frændgarð, Valgeir, Helga og Siv.
Vesturfarasetrið hlýtur
umhverfisverðlun UMFÍ
Enn ein fjöðrin bættist í hatt
Vesturfarasetursins og Valgeirs
Þorvaldssonar forvígismanns
þess í síðustu viku þegar um-
hverfisverðlaun UMFÍ og poka-
sjóðs komu í þeirra hlut og voru
afhent á Hofsósi. Þetta er i átt-
unda sinn sem þessi verðlaun
voru veitt og þau afhenti Siv
Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra, að viðstöddum stjómar-
mönnum UMFI, sveitarstjóm
Skagafjarðar, starfsfólki Vestur-
farasetursins og fleiri gestum. í
kaffisamstæti sem haldið var í
Frændgarði lék hannonikku-
leikarinn ungi Jón Þorsteinn
Reynisson nokkur lög.
Valgeir Þorvaldsson fram-
kvæmdastjóri Vesturfaraseturs-
ins bauð gesti velkomna og því
næst tók til máls Helga Guð-
jónsdóttir varaformaður UMFI.
Helga gerði grein fyrir um-
hverfisverðlaunum UMFI og
pokasjóðs sem vom fyrst veitt
1996 sama árið og Vesturfara-
setrið var opnað. Þá vék hún að
því mikilvæga hlutverki sem
Vesturfarasetrið sinnir sem
miðstöð fyrir samskipti Islend-
inga og fólks af íslenskum ætt-
um í Vesturheimi. Með tílkomu
Vesturfarasetursins hafi gamli
þorpskjaminn á Hofsósi fengið
mikilvægt hlutverk sem stuðlar
að bættri umgengni og fegrun
umhverfis.
Siv Friðleifsdóttir umhverf-
isráðherra sagði það vera sér-
staka ánægju og heiður að taka
þátt í því að afhenta viðurkenn-
ingu frá svo stómm umhverfis-
samtökum sem ungmennafé-
lagshreyfingin væri. Á Hofsósi
hefði verið unnið gott starf und-
ir ffábærri fomstu Valgeirs á
Vatni. Það væri ekki einungis
hér innanlands sem þetta mikla
framtak við Vesturfarasetrið
væri þekkt, heldur einnig er-
lendis, því hefði hún orðið vitni
að í Kanada fyrir ekki alls löngu
þegar þar var á ferð Forseti Is-
lands Olafúr Ragnar Grímsson.
Ársæll Guðmundsson sveit-
arstjóri Skagafjarðar lauk eins
og aðrir lofsorði á starf Vestur-
farasetursins og sagði það ekki
aðeins mikilvægt fyrir það litla
samfélag sem væri á Hofsósi,
heldur væri þar leyst af hendi
metnaðarfúllt menningarstarf
sem hefði áhrif langt út fyrir
landsteinana.
Valgeir Þorvaldsson sagði í
þakkaroðum að viðurkenning
sem þessi virkaði mikil hvatn-
ing og það væri mjög mikilsvert
að finna fyrir stuðningi samfé-
lagsins og stjómvalda við þeirri
uppbyggingu sem átt hefði sér
stað á Hofsósi. Að loknum á-
vörpum var gengið út fyrir
Frændgarð og þar var viðukenn-
ingin afhjúpuð, listaverk hannað
af Oddi Hermannssyni arkitekt.
Pokasjóður, áður Umhverf-
issjóður verslunarinnar, úthlutar
styrkjum til verkefha sem heyra
undir almannaheill, s.s. um-
hverfismál, menningarmál, list-
ir, íþróttir og mannúðarmál. í
dag greiða 160 verslanir víðs-
vegar um land í sjóðinn.
Flísar - flotgólf
múrviðgerðarefni
Aðalsteinn J.
Mariusson
Sími : 453 5591
853 0391 893 0391
tnynta :: tryggingamiðstöAin :: Vnriafr pypross :: haplmr ng ritfnng :: 1 | I i jnsritnn í lit :: gnrmar og plöstun :: flnira og fleira
bókabúðin É BÓKABtJÐ 1 BRYTÍJARS
BÓKABÚÐ BRYNJARS KAUPANGSTORGI 1 550 SAUÐÁRKRÓKUR SlMI 453 5950 FAX 453 5661 bokabud@skagafjordur.com - 3) |3 '\ -f jo) SKi I dliOD j