Feykir - 14.04.2004, Page 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
Bæiarstiórn Blönduóss
Mótmælir vegi
yfir hálendið
Flytjendur laganna 13 á nýja disknum ásamt Geirmundi Valtýssyni.
Veisla þúsaldarinnar
Bæjarstjóm Blönduósbæjar
mótmælir harðlega tillögu til
þingsályktunar um vegagerð úr
Borgarfirði, um Stórasand yfir í
Skagafjörð. Bæjarstjómin álítur
að með þessari vegaframkvæmd
sé verið að ganga þvert á hags-
muni íbúa í Norðvesturkjör-
dæmi. Enn bíða ótal verkefni úr-
lausnar á þjóðvegi 1 og veija
mætti meiri fjármunum í að auka
umferðaröryggi þar. I því sam-
bandi má benda á að á þjóðvegi
1 eru 66 einbreiðar brýr með til-
heyrandi slysahættu.
Bæjarstjóm Blönduóss hafn-
ar því að umferðarþungi þjóð-
vegar verði færður inná hálendið
með tilheyrandi umhverfis-
spjöllum. I ályktun sem gerð var
á fundi rétt fýrir páskana skorar
bæjarstjóm Blönduóss á stjóm-
völd að veitt verði fjármunum í
að kanna þjóðhagslega arðsemi
legu þjóðvegar nr. 1 um Þverár-
fjall, Hegranes, Hjaltadal og í
gegnum Tröllaskaga með jarð-
göngurn yfir í Hörgárdal. Meg-
inkostur þessarar leiðar er að hún
liggur í námunda við alla stærstu
þéttbýlisstaðina á þessum slóð-
um. Ennffemur leysir þessi leið
af hólmi tvo fjallvegi, Vatns-
skarð (hæst 420 m) og Öxna-
dalsheiði (hæst 540 m).
í ályktuninni segir enn frem-
ur að þjóðvegur þessi myndi
sameina þjónustu- og atvinnu-
svæði þéttbýlisstaða á Norður-
landi öllu, stytta leiðina á milli
Akureyrar og Reykjavíkur og
síðast en ekki síst stuðla að já-
kvæðri byggðaþróun á Norður-
landi.
Hún var með ólíkindum af-
mælis- og tónlistarveislan sem
Geinnundur Valtýsson tónlist-
armaður bauð til í íþróttahúsinu
á Sauðárkróki að kvöldi annars
dags páska í tiiefni 60 ára af-
mælis síns. Gert var ráð fyrir að
samkoman yrði fjölmenti en
væntanlega hefur enginn búist
því þvílíkri mannmergð og
varð. Áður en húsið var opnað
um áttaleytið höfðu myndast
biðraðir á breiðri stéttinni sem
liggur upp að íþróttahúsinu,
bæði suður fyrir götuna og í átt-
ina að heimavist Fjölbrautaskól-
ans. Áætlað er að gestir í veisl-
unni hafi verið 13-1500 og að
líkindum þarf að fara rúmlega
þúsöld aftur í tímann til að finna
sambærilegan mannfagnað sem
einstaklingur hefur staðið fyrir í
Skagafirði.
Hjalti Pálsson sagnfræðing-
ur sem þekkir vel til sögu hér-
aðsins, enda ritstjóri byggða-
sögunnar, segir að sú veisla sem
hann telji að standi veislu Geir-
mundar á sporði að fjölmenni
greini landnáma frá og hafi ver-
ið haldin á Hofi í Hjaltadal,
reyndar af öðru tilefhi en veisla
Geirmundar. Hofsveislan var
haldin í tilefni dauða Hjalta
Þórðarsonar landnámsmanns.
Landnáma greinir frá því að
þegar hann var heigður voru 12
hundruð boðsmenn og í þá daga
voru stórhundruð eða 120
manns í hundraðinu, þannig að
alls hafi veislugestir á Hofi ver-
ið uppundir 1440. „Eg tel að
veislan hjá Geirmundi sé sú
stórkostlegasta sem vitað er
um”, segir Hjalti Pálsson og
miðar þar við nútímaheimildir.
Meirihlutinn haldi út tímabilið
Þó svo að Ársæll Guðmundsson sveit-
arstjóri og oddviti Vinstri grænna segi að
samkomulagið innan meirihluta sveitar-
stjómar Skagafjarðar hafi verið tiltölulega
gott og engin mál komið upp sem ástæða
hafa verið til að láta bijóta á, þá hefur það
væntanlega ekki farið ffam hjá þeim sem
fylgst hafa með sveitarstjómarmálum í
Skagafirði að samkomulagið milli nieiri-
hlutaflokkanna í sveitarstjórinni hefur
ekki verið sem skyldi og upp á yfirborðið
komið greinileg ágreiningsefhi, svo sem
lesa mátti út úr bókun Bjama Jónssonar
fulltrúa Vinstri grænna vegna fjárlaga-
gerðar á síðasta hausti og síðan þegar
karpað var um eigninar í Varmahlíð milli
fulltrúa meirihlutans, eins og greint var frá
í Feyki nýlega. Þessi ágreiningur var síð-
an undirstrikaður á borgarafundi 1. apríl
þar sem oddviti framsóknarmanna greindi
ffá viðræðum um nýjan meirihluta milli
ffamsóknarmanna og sjálfstæðismanna
sem farið hefðu út um þúfur.
Gunnar Bragi Sveinsson oddviti ffam-
sóknarmanna ásakaði þar Gísla Gunnars-
son forseta sveitarstjómar að hafa bmgð-
ist á síðustu stundu. Gísli sakaði hinsveg-
ar ffamsóknarmenn um trúnaðarbrest og
sagði að hann ræddi við menn úr ýmsum
flokkum en gæti vel viðurkennt að hann
heföi rætt óvenjumikið við ffamsóknar-
menn upp á síðkastið.
Lengi hefúr verið vitað um talsverða
óánægju innan Sjálfstæðisflokksins um
samstarfið við Vinstri græna í sveitar-
stjóminni og sú spuming verið á lofti um
tíma hvort að hugsanlega mundi koma til
samstarfsslita í meirihlutanum. Þeir sem
gerst spá í spilin em þeirra skoðunar að
þessi síðasta uppákoma verði til þess að
meirihlutinn sitji út kjörtímabilið, en tni-
lega verður ekki auðveldara en áður fyrir
flokkana að vinna saman.
í dag birtist í blaðinu yfirlýsing ffá
ffamsóknarmönnum vegna viðræðnanna
við Sjálfstæðisflokkinn sem fóm svo
kyrfilega út um þúfhr að vandséð verður
að fulltrúar þeirra flokka ræðist við á
næstunni. Sú augljósa pattstaða sem ríkt
hefúr í skagfirskri pólitík allt ffá slitum
meirihluta á síðasta kjörtímabili, sölu á
Rafveitu Sauðárkróks og fleiri mála, held-
ur því áffam.
—KTen£»f! —
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
• VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
yrtrih úlaverkstæði
Æ AÆ.M-Æ. Sæmundargata lb 550 Sauðárkrókur ^Bílaviðgerðir & Hj Réttingar 4 ólbarðaviðgerðir Sprautun