Feykir - 14.04.2004, Síða 2
2 FEYKIR 13/2004
Skagaströnd
Fiskmarkaðurinn
stækkar við sig
Fiskmarkaður Skagastrandar hefur keypt hluta af Hafir-
arlóð 6, sem áður var mjölskemma SR mjöls og hefur und-
anfamar vikur verið unnið að breytingum á húsnæðinu fyr-
ir markaðinn. Verið er að steypa nýtt gólf í húsið og var
steypunni, um 70 nr’, ekið frá Sauðárkróki.
Fiskmarkaðurinn flytur væntanlega inn í húsið í júní nk.
og rýmkast þá mikið um starfssemi hans. Á Skagastrandar-
vefrium segir að talsverð aukning hefúr verið í veiðum
smærri báta frá Skagaströnd síðustu ár enda er umtalsverð
veiði í Húnaflóa allt árið um kring. I nýrri stofhmælingu
botnfiska á íslandsmiðum kemur fram að mest veiddist af
þorski á Húnaflóa og djúpt út af Norðausturlandi. Uppbygg-
ing á þjónustu við útgerðir við Húnaflóann er því mikilvæg
og varð um 6,5% aukning í lönduðum afla á Skagastrand-
arhöfn á siðasta ári.
Ævintýri í kirkju
Á skírdagskvöldi flutti 10. bekkur Árskóla
árshátíðarverkefhi sitt, þætti úr „Jesus Christ
Superstar” í Sauðárkrókskirkju. Margir höfðu
þegar séð þessa uppfærslu í Bifröst sem var sér-
lega vel heppnuð, vönduð og mjög rómuð af á-
heyrendum. Það var mjög við hæfi að færa písl-
argönguna og krossfestinguna inn í kirkjulega
umgjörð og það á degi síðustu kvöldmáltíðarinn-
ar. Ungmennin gerðu sýninguna að ævintýri.
Gæddu hana slíku lífi að allir hrifust með. Þvílík-
ir hæfileikar sem búa í þessu unga fólki, agað og
smekklegt og með gullraddir. Það er ný kynslóð
að hefja lifsferilinn með glæstum hætti. Samfélag
sem á slíkan auð hefúr engu að kvíða.
í lok flutningsins flutti séra Guðbjörg þarfa
hugvekju og bauð síðan öllum til heilagrar kvöld-
máltíðar að hætti frelsarans. Sem allar götur síð-
an á dögum Jesú var þetta táknræn athöfn, en sú
nýlunda að brauðið var úr bakaríinu og blóð
krists voru vínþrúur að bestu gerð. Háir sem lág-
ir nutu þess að ganga til altaris og þiggja þessar
náðargjafir.
hing.
Yfirlýsing vegna viðræðna oddvita Sjálfstæðis-
flokks og oddvita Framsóknarfokks um myndun
meirihluta í Sveitarfélaginu Skagafirði
Fyrir um mánuði síðan hringdi
oddviti sjálfstæðismanna, Gísli Gunn-
arsson í oddvita ffamsóknarmanna og
spurði hann orðrétt „Langar þig enn í
meirihluta?” Ástæðan fyrir þessu
orðavali var eflaust sú að a.m.k.
þrisvar sinnum undanfarin misseri
hafa oddvitar flokkanna hist og rætt
hugsanlegt samstarf Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks í sveitarstjóm
Skagafjarðar. Fram að þessu hafði
frumkvæðið verið hjá Framsóknar-
flokknum. Hins vegar fór oddviti sjálf-
stæðismanna með fullum vilja stjómar
fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í
Skagafirði til viðræðna við Gunnar
Braga Sveinsson, oddvita ffamsóknar-
manna og hafði því ffumkvæðið að
því ferli sem fór í gang fyrir um mán-
uði síðan.
Ekki þarf að velkjast í vafa um að
ffamsóknarmenn tóku vel í að ræða
við oddvita sjálfstæðismanna um
hugsanlegt samstarf. Oddvitar flokk-
anna hittust svo í Varmahlið þar sem
þeir áttu langan fúnd og fóm yfir hugs-
anleg ágreiningsnrál, málefni, emb-
ætti, sveitarstjóra ofl. sem fylgir slík-
um viðræðum. Oddviti ffamsóknar-
manna ítrekaði að málið yrði að vinna
hratt því svona viðræður mætti ekki
draga á langinn. Úr varð að oddviti
ffamsóknarmanna setti upp drög að
málaefnasamningi sem sendur var
oddvita sjálstæðismanna sem hefur
síðan samband aftur þar sem hann
nefhdi þrjár athugasemdir við drögin.
Þær vom vegna:
1. Skiptingu embætta (nefhda)
2. Orðalags um sorpmál.
3. Orðalags um verklagsreglur
samstarfsins.
Oddviti framsóknarmanna tjáði
oddvita sjálfstæðismanna að hann
myndi fyrir sitt leiti samþykkja tillög-
ur hans sem einna helst fólust i því að
ekki yrði hróflað við nefndaskiptingu
að öðm leiti en því að ffamsóknar-
menn tækju við nefndarformennskum
VG og formennsku í byggðaráði.
Samkvæmt drögum að málefhasamn-
ingi vom oddvitamir sammála um að
fjánnál og atvinnumál hefðu forgang
og því er í samningnum kveðið uppúr
m.a. með iðnamppbyggingu og virkj-
anir.
Eftir umræður í sveitarstjómarhópi
Framsóknarflokksins var ákveðið að
ganga að tillögum oddvita sjálfstæðis-
manna svo ekkert yrði í veginum að
taka upp samstarf. Var oddvita þeirra
tjáð þetta og honum afhent ný drög að
málefhasamningi þar sem gengið var
að öllum tillögum hans. Það kom því
eins og þmma úr heiðskím lofti þegar
oddviti sjálfstæðismanna tilkynnti á
fúndi fúlltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins
miðvikudagskvöldið 31.mars sl. Að
hann sjái ekkert tilefni til breytinga og
vilji halda áffam samstarfi við VG.
Hvað var Gísli Gunnarsson að
meina með viðræðum sínurn við odd-
vita ffamsóknarmanna? Hvers vegna
hafði hann ffumkvæði að því að ræða
við Gunnar Braga? Hvað kom í veg
fyrir samstarf þegar oddvitar flokk-
anna höfðu komið sér saman um mál-
efiii, embætti og sveitarstjóra? Hver
var vilji ráðamanna Sjálfstæðisflokks-
ins? Hvers vegna fór hann á bak við
félaga sína í VG allan þennan tíma ef
hann meinti ekkert með viðræðum
sínum við ffamsóknamrenn? Hvers
vegna lét hann félaga sína í Sjálfstæð-
isflokknum halda það að hann vildi
breytingar? Hvers vegna kaus hann að
koma ekki hreint ffam við oddvita
ffamsóknarmanna og tjá honum að
hann hyggðist ekki gera breytingar?
Þessum spumingum teljum við að
oddviti sjálfstæðismanna þurfi að
svara og í raun mörgum öórum.
Við blásum á kvartanir Gísla
Gunnarssonar um trúnaðarbrest af
okkar hálfú því nú má sjá að aldrei var
nein alvara i máli hans og trúnaðar-
brotið því hans. Oskiljanlegt er hvers
vegna oddviti sjálfstæðismanna dró að
tilkynna ffamsóknarmönnum um nið-
urstöðu sína og fúndarins því þannig
hefði mátt korna í veg fyrir þann hún-
aðarbrest sem nú er orðinn. Að því til-
efhi teljum við nauðsynlegt að Skaga-
firðingar fái að heyra sannleikann í
málinu.
Um ffekara innihald samtala odd-
vitanna verður ekki fjallað að okkar
ffumkvæði enda rædd í trúnaði milli
þeirra. Þvi miður er ljóst að Skagfirð-
ingar munu búa við óbreyttan meiri-
hluta næstu 2 árin og því rniður bend-
ir allt til að þau tvö verði jafh rýr af
hálfú meirihlutans og þau tvö sem lið-
in em. Oddviti sjálfstæðismanna gat
breytt ástandinu og skipt um meiri-
hluta í Skagafirði en hann kaus að
gera það ekki.
Sigurður Árnason, formaður
Framsóknarfélags Skagafjarðar
Gunnar Bragi Sveinsson, sveitar-
stjórnarmaður
Þórdís Friðbjörnsdóttir, sveitar-
stjórnarmaður
Einar E. Einarsson, sveitar-
stjórnarmaður.