Feykir - 14.04.2004, Qupperneq 3
13/2004 FEYKIR 3
¥méð i>itt i
Geirmundur og Mínerva ásamt Magga Kjartans.
landbúnaðarráðherra, • Gísli
Gunnarsson, .forseti sveitar-
stjómar Skag'afjárðar og Mar-
grét Sigurþórsdóttir ffá Lions-
klúbbnum Öglu í Borgamesi,
en hljómsveit Geirmundar hef-
ur ávallt leikið á fjáröflunar-
skemmtunum hjá klúbbnum og
þá fjaröfluninni verið bjargað
það árið. Margrét færði Geir-
mundi nýstárlega gjöf, húfú
fléttaða úr segulböndum.
Geirmundur og veislustjórinn Pétur Pétursson.
Risið úr sætum til að hylla
afniælisbarnið.
Yngsti flytjandinn, Ingunn
Kristjánsdóttir.
Meðal þeirra sem skemmtu
vom kántrídansarar frá Skag-
strönd en fjölmargir komu fram
á þessari afmælishátíð sem of
langt yrði að telja upp, þótt þar
hafí verið drýgst á meturn flytj-
endur nýju laganna þrettán
ásamt hljómsveit Magnúsar
Kjartanssonar.
Stórkostleg veisla
hjá Geirmundi
í upphafi affnælisveislu
Geirmundar Valtýssonar í í-
þróttahúsinu í fyrrakvöld gat
Pétur Pétursson veislustjóri
þess að fyrst þegar Geimiundur
færði veislustjómina í tal við
sig, hafí Geiri verið að hugsa
um að halda affnælið í Melsgil-
inu þar sem hann byrjaði að
spila fyrir dansi. En það hafi
strax verið blásið af og þá kom
Miðgarður inn í myndina, en
svo þótti ráðlegast að halda há-
tiðina i íþróttahúsinu á Sauðár-
króki, það væri þó hægt að
stúka það niður í tvennt, en það
veitti svo sannarlega ekki af öll-
um íþróttasalnum fyrir affnælið
Geinnundar. Gestir vom tals-
vert á annað þúsundið og komu
hvaðanæva af að landinu, þótt
langstærstur hluti þeirra væri úr
héraðinu.
Geinnundur átti það snjall-
ræði á þessum tímamótum að
gefa út disk algjörlega skag-
firskan, eigin lög með textum
eftir Skagfirðinga og með skag-
firskum flytjendum. Flutningur
laganna 13 á þessum diski tókst
með ágætum í þessari miklu
tónlistarveislu sem affnælið var,
glæsilegur flutningur stórgóðra
laga og nokkuð ljóst að þessi
nýi diskur Geirmundar fær
feiknagóðar viðtökur.
„Ég er svo hamingjusamur
með þetta alltsaman. Að hafa
ráðist í þessa útgáfú með skag-
flrsku efni og þetta skuli hafa
tekist svona glimrandi vel. Þetta
hefði náttúrlega ekki verið hægt
ef flytjendumir hefðu ekki ver-
ið svona tilbúnir í þetta. Það var
líka yndislegt að fá alla þessa
gesti”, sagði Geirmundur, en
aðspurður sagðist hann hafa átt
von á svona 6-800 manns í
besta falli eða um helming af
þeim mannfjölda sem kom.
Það var gamli útvarpsmað-
urinn'Þorgeir Ástvaldsson sem
annaðist kynningar á hátíðinni.
Geirmiundur var hylltur ásamt
konu sinni Mínervu Bjömsdótt-
ur og bámst honum margar
gjafir, heillaskeyti og blóm á
þessum tímamótum. Fjöldinn
allur af ræöum vom haldnar og
Geimrundur sjálfúr útdeildi
nokkmnr viðurkenningum til
velgerðar- og samstarfsmanna
um tíðina.
Meðal þeirra sem ávörpuðu
Geirmund vom, svo einhveijir
séu nefndir Guðbrandur Þorkell
Guðbrandsson samstarfsmaður
Geirmundar hjá kaupfélaginu
sem á flesta textana á nýja
disknum, Guðni Ágústsson
Samvinnubókin og Kj|-bókin
Tveir góðir kostir tU að á
Samvinnubókin er með lausri bindingu, nafnvextir
5,0%, Ársávöxtun 5,06% G7w—
Innlánsdeild