Feykir - 14.04.2004, Blaðsíða 8
14. apríl 2004,13. tölublað, 24. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
© Sh<# 5
VlDE
Sími:
453 6666
Sími:
453 6622
Hluti áhorfenda á stórsýningunni á Svaðastöðum.
Páskastemning í söng og
hestum í Svaðastöðum
Karlakórinn Heimir og
Reiðhöllin Svaðastaðir buðu
til listaveislu á laugardags-
kvöldi fyrir páska. Þetta er í
annað sinn sem þessir aðila
taka saman höndum og efna til
skemmtunar þar sem saman
fer talað orð, söngur og gæð-
ingar, og sýndi aðsóknin, þar
sem hver krókur og kimi í
höllinni var setinn, að gestir
kunnu sannanlega að meta
það sem fram var reitt og
fögnuðu vel og lengi í sýning-
arlok.
Ljóst var af viðtökum á-
horfenda að þessi þáttur í
menningarlífi Skagfirðinga er
þegar búinn að vinna sér fast-
an sess í Dymbilvikunni. Dag-
skráin hófst með því að nokkr-
ir gæðingar voru teknir til
kostanna en síðan kom Karla-
kórinn Heimir og flutti nokkur
lög meðal annars úr söng-
leiknum Oklahoma, við texta
eftir Sigurð Hansen, Þorleif
Konráðsson og fleiri og vom
þessi lög í bland við önnur er-
lend og íslensk lög. Einsöngv-
arar með kómum vom: Mar-
grét Stefánsdóttir og Sigfus og
Oskar Péturssynir.
í síðari hluta dagskrárinnar
vom leikgerð atriði úr skag-
firsku þjóðsögunum um
Galdra Loft og Solveigu á
Miklabæ, sem talin var völd
að hvarfi séra Odds.
Við flutning sögunnar um
Galdra Loft var frumflutt lag
Stefáns R. Gíslasonar söng-
stjóra Heimis við latneskan
texta sr. Döllu Þórðardóttur,
„Friður sé með sálu þinni” en
bæði lag og texti vom samin í
tileíni sýningarinnar.
Þá fylgdust áhorfendur
með einmanalegri reið séra
Odds heim til Miklabæjar þar
sem hann „Hleypir skeiði
hörðu” á örvæntingarfullum
flótta undan ásókn Solveigar.
Einnig við þetta atriði var
ffumflutt nýtt lag Stefáns R
Gíslasonar við kvæði Einars
Benediktssonar um Hvarf séra
Odds á Miklabæ.
Það var Jón Ormar Omts-
son rithöfundur sem annaðist
alla leikgerð tengdi saman og
kynnti atriði ásamt Sigriði
Jónsdóttur.
Ingimar Ingimarsson fram-
kvæmdastjóri Svaðastaða
sagðist vera mjög ánægður
með hvemig til heíði tekist og
væri þess fullviss að samvinna
þeirra aðila sem að þessari
skemmtun stæðu mundi hald-
ast þannig að Skagfirðingar og
gestir þeirra um páskahátíðina
gætu gengið að hátíðinni vísri
að ári og framvegis.
Knúið á ui
áætlunarfhigið
Siglfirðingar knýja á um að
áætlunarflugi verði haldið áfram
til Sauðárkróks ekkert síður en
Skagfirðingar, enda flugið á
Krókinn Siglufirði mjög mikil-
vægt, sérstaklega þegar horft er
til þess að áætluð jarðgöng um
Héðinsfjörð til Ólafsflarðar
mynda ekki tengingu við áætl-
unarflug til Akureyrar fyrr en að
fimm eða sex ámm liðnum. A-
ætlunarflugið til Sauðárkróks og
möguleg aðkoma ríkisins að því
er enn til skoðunar í samgöngu-
ráðuneytinu, en niðurstaðna að
vænta á næstu dögum.
Runólfur Birgisson nýr bæj-
arstjóri á Siglufirði segir það
ekki síður mikið hagsmunamál
fyrir Siglfirðinga en Skagfirð-
inga að flugið til Sauðárkróks
leggist af. Hann er meðal þeirra
sem gengið hafa á íund sam-
gönguráðherra, en ráðherra
fundaði með sveitarstjómum
Skagafjaraðar og Sigluijarðar
nýlega.
í viðtali við Morgunblaðið í
gær sagði Runólfur m.a.: „Við
viljum allt gera til að fluginu
verði haldið áffam. Á sínum
tíma var flogið til Siglufjarðar
og þegar það var lagt af urðu hér
mikil læti. Síðan komust á rútu-
ferðir í tengslum við flug ís-
landsflugs á Krókinn og við
emm mjög sáttir við þá þjón-
ustu. Siglfirðingar hafa nýtt sér
þetta vel. Það er okkur stórt mál
að flugið haldist og hér er beyg-
ur í mönnum ef við missum
þessa samgönguleið. Við þurf-
um á margskonar þjónustu að
halda frá Reykjavík og þar
skiptir flugið okkur vemlegu
máli”, segir Runólfur.
Velheppnað brúð-
kaup á Blönduósi
Leikfélag Blönduóss
frumsýndi á skírdag leikritið
Smáborgarabrúðkaup eftir
Brecht í leikstjóm Ingridar
Jónsdóttur. Leikritið fer fram i
dansal Félagsheimilisins og em
áhorfendur þátttakendur í
sýningunni. Leikritið gerist í
brúðkaupsveislu Maríu og
Jakobs og er farsakennd ádeila.
Brúðkaupsveislan byijar vel en
fljótlega fer allt að fara úr bön-
dunum.
Leikarar í sýningunni em 9
talsins, þau Egill Pálsson, Sylvía
Rún Ellertsdóttir, sem leika
brúðhjónin, Ragnhildur Ragn-
arsdóttir og Þórarinn Torfason,
leika foreldra brúðhjónanna, en
brúðkaupsgestir em Valgerður
Hilmarsdóttir, Valgeir Már
Eggertsson Levý, Fanney
Kristjánsdóttir, Guðmundur Karl
Ellertsson, og Kristín Ingibjörg
Lárasdóttir. Undirleikari er
Þómnn Ragnarsdóttir.
Á veffniðlinum Húnahom-
inu segir að hér séu á ferðinni
ungir leikarar sem sumir hveijir
em að stíga sín fyrstu skref í
leiklistinni og var eftir því tekið
hve vel þau skiluðu sínum
hlutverkum.
Flísar - flotgólf
múrviðgerðarefni
Aðalsteinn J.
Maríusson
Sími: 453 5591
853 0391 893 0391
toyota :: tryggingamiðstöðin :: kodak express :: bækur og ritföng :: ljósritun í lit :: gormar og plöstun :: fleira og fleira
bókabúdin
BOKABUÐ
BRYBcJABS
BÓKABÚÐ BRYNJARS KAUPANGSTORGI 1 550 SAUóARKRÓKUR SÍMI 453 5950 FAX 453 5661 bokabud@skagafjordur.com
- f>ii' ana í ■fjoisK.íidunni