Feykir - 08.12.2004, Síða 1
RAFVERKTAKAR
- sérverslun með raftæki
rafsjá hf
Sæmundargötu 1 Sauðárkróki
Mesta mildi að þrjú ungmenni björgðust úr brennandi húsi
Pitur lést í eldsvoða
á Sauðárkróki
Um klukkan ellefu síðastliðinn laugardagsmorgun
var Siökkvilið Sauðárkróks kallað út þar sem eldur
var í íbúðarhúsi við Bárustíg á Sauðárkróki.
Úthlutað 3200þorskígildistonna byggðakvóta
660 tonna byggðakvóti
á NorðvestuHand
Mikinn reyk lagði frá húsinu
þegar slökkvilið bar að garði.
21 árs maður lét lífið í elds-
voðanum en reykkafarar
slökkviliðsins fúndu meðvit-
undarlausan pilt inni í húsinu
og var honum bjargað á síð-
ustu stundu. Björn Mikaelsson
yfirlögregluþjónn á Sauðár-
króki segir slökkviliðsmann
hafa nánast hnotið um piitinn
þar sem hann lá í holi fyrir
innan þvottahúsið.
Áður hafði ungur maður
náð að komast að sjálfsdáðum
ofan af svölum og þá hafði
stúlka sem var í húsinu verið
hvött af vegfarendum til að
stökkva út um glugga á efri
hæð hússins þar sem hún stóð
sótug í miklum reyk.
Helgistund í kirkjunnni
Helgistund var í Sauðárkróks-
kirkju daginn eftir eldsvoðann
og voru á milli 400-500 manns
í kirkjunni að talið er.
Haft er eftir Guðbjörgu
Jóhannesdóttur sóknarpresti á
Sauðárkróki að um bænastund
hafi verið að ræða þar sem
aðallega var verið að þakka
fyrir líf þeirra þriggja sem
björguðust í brunanum og
piltsins sem lést var minnst.
Einnig var minnst á slökkvi-
liðsmennina og aðra sem unnu
þrekvirki. Guðbjörg segir mjög
dýrmætt að geta sameinast,
hugsað til aðstandenda og
þakkað fyrir björgunarstarfið.
Hún segir mikinn samhug vera
á meðal íbúa Sauðárkróks.
Rannsókn í gangi
Ekki er hægt að segja til um
eldsupptök að öðru leyti en að
eldurinn var mestur í stofú
hússins, í þeim hluta þar sem
sófi og stólar eru. Rannsókn-
arlögreglunrenn frá ríkis-
lögreglustjóra og tæknideild
lögreglunnar í Reykjavík komu
til Sauðárkróks til að aðstoða
við rannsókn brunans.
Maðurinn sem lést í
brunanum hét Elvar Fannar
Þor\'aldsson, 21 árs til heimilis
á Sauðárkróki. Hann var
ókvæntur og barnlaus.
Sjávarútvegsráðherra
hefur undirritað
reglugerð um úthlutun
byggðakvóta fiskveiði-
árið 2004/2005. Samtals
er úthlutað á svæðið frá
Ströndum að Siglufirði
um 660 tonna byggða-
kvóta. Yfir landið er
úthlutað 3200 þorsk-
ígildum til 40 byggðar-
laga í 32 sveitarfélögum.
Drangsnes fær úthlutað
30,5 þorskígildistonnum,
Hólmavík, Hvammstangi og
Blönduós fá úthlutað 69 ton-
num hvert byggðarlag.
Skagstrendingar fá 138 tonn
Hofsós tæplega 78 tonn og
mest á Norðvesturlandi fá
Siglfirðingar eða 205
þorskígildistonn.
Samkvæmt ákvæðum lag-
anna skal byggt á tveimur
meginsjónarmiðum. Annars
Ný sjónvarpsmynd um
Austurdal í Skagafirði er
á lokastigi. Tökum lauk í
nóvember og er stefnt
að lokafrágangi í vik-
unni.
Myndin verður urn 45
mínútna löng og hefst 17. júní
er Stefán Hrólfsson gangna-
foringi á Keldulandi rekur upp
hross sín í sumarhagana. í
myndinni er Stefáni og
félögum hans fylgt eftir í
göngum í haust og vetur. Þá er
vegar skal úthlutað byggða-
kvóta til rninni byggðarfélaga
sem lent hafa í vandræðum
vegna samdráttar í sjávarút-
vegi og háð eru veiðum eða
vinnslu á botnfiski.
Hins vegar skal úthluta til
byggðarlaga sem orðið hafa
fyrir óvæntri skerðingu á
heildaraflaheimildum fiski-
skipa sem gerð hafa verið út og
landað hafa í viðkomandi
byggðarlögum og sem hafa
haft veruleg áhrif á aU'innuás-
tand í byggðarlögunum. Ekki
er úthlutað til byggðarlaga
sem hafa fleiri en 1500 íbúa.
Áformar ráðuneytið að
flýta umsóknar- og afgreiðslu-
ferlinu á næsta ári þannig að
byggðakvótaúthlutun geti
farið fram á sarna tíma og
önnur úthlutun fyrir
fiskveiðiárið 2005/2006.
einnig Ábæjarmessu gerð góð
skil í myndinni.
Ráðgert er að frumsýna
myndina fyrir aðstandendur í
Skagafirði í desember og er
stefiit að sýningu í sjónvarpi á
næsta ári.
Myndin hefur að geyrna
mörg myndskeið af hrikalegri
og fallegri náttúru Austurdals
og meðal annars var tekið upp
við Fossá, en ekki er vitað til að
hún hafi áður verið kvikmynd-
uð.
ALMENN RAFTÆKJAÞJONUSTA
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
—Cléhfltff ehj
Aðalgötu 24 • Sauðárkróki • Sími 453 5519 • Fax 453 6019
Bflaviðgerðir,
hjólbarðaviðgerðir,
réttingar og sprautun
bílaverkstæði
Sæmundargötu 1b • 550 Sauðárkrókur • Sími 453 5141
Mynd um Austurdal í Skagafirði_
Vinnsla myndarinnar
á lokastigi