Feykir - 08.12.2004, Page 3
43/2004 Feykir 3
—
.
ii
Hjalti Þórðarson skrifar
Hugleiðingar i
reiðvegamál í
Skagafirði
í Skagafirði er boðið upp á margt tengt hestamennsku.
Þar má nefna Landsmót fjórða hvert ár, reiðhallir,
Hólaskóla, sýningar, stóðréttir, góða hesta og ágætis
hestamenn. Þrátt fyrir allt þetta er staðreynd að innan
héraðsins eru fáar opnar boðlegar reiðleiðir.
1 þeim málaflokki þurfa
menn svo sannarlega að taka til
hendinni og bretta upp ermar á
næstu árum ásamt því að marka
sér einhveija raunhæfa stefnu til
úrbóta. Við viljum geta boðið
gestum í Skagafjörð til að stunda
hestamennsku og í ferðir innan
héraðsins án teljandi erfiðleika.
Eins þurfa þeir sem stunda
tamningar og útreiðar að
komast eitthvað annað og meira
en kringum húsin hjá sjálfúm
sér. Hvernig er t.d. að komast
ríðandi milli Sauðárkróks og
Hóla, eða milli Sauðárkróks og
Vindheimamela svo ekki sé nú
talað um milli Vindheimamela
og Hóla. Milli allra þessarra
staða er ófært í dag nema eftir
akveginum á stórum köflum.
Því nennir enginn hestamaður
enda eiga hestar alls ekki að vera
á akvegum með þeirri slysahæt-
tu sem því fylgir.
Þrátt fyrir að staðan sé ekki
nógu góð hefúr þó eitthvað
áunnist á síðustu árum og er
það vel. Aðallega hafa þær
úrbætur falist í gerð slóða
meðfram akvegunum. Það verk
er bráðnauðsynlegt og löngu
tímabært en það dugar bara
ekki til.
Víða eru erfið svæði, ill-
leysanlegir flöskuhálsar, og þar
fyrir utan eru reiðvegirnir víða
alltof nálægt akvegunum. Til að
bæta ástandið hefur verið
hugmynd, sem verður vonandi
að veruleika, um alvöru reiðleið
sem liggja mun urn fjörðinn
þverann og endilangann með
tengingum við önnur héruð.
Urn miðhéraðið mun leiðin
(hægt að kalla hana stofnleið)
liggja norður-suður um
Hegranes, Borgareyju, Vallhólm
og Reykjatungu. Af þessarri
stofúleið verður að komast inn á
hálendið í framhéraði Skaga-
fjarðar um Mælifellsdal og
Vesturdal. Til vesturs a.m.k. um
Vatnsskarð og Gönguskörð og
til austurs um Hörgárdalsheiði
og Heljardalsheiði. Til norðurs
þarf svo að komast til Siglu-
fjarðar um Sigluljarðarskarð og
til Ólafsfjarðar um
Ólafsfjarðarskarð. Tengingin
þarf að vera sérstaklega góð
milli þétt-býlisstaðanna og þarf
stofúleiðin að liggja þar um eða
mjög nálægt. Stofhleiðin þarf
helst að vera fjarri fjölförnum
akvegum og þola allmikla
umferð hesta. Þar sem ekki er
um neinar aðrar leiðir að velja
verður þó stofnleiðin að liggja
meðff am akvegunum. Gegnum
lönd bænda verður að vera
gengið þannig frá öllum hnú-
tum að frjáls og óhindruð
umferð sé án truflunar fyrir lan-
deigendur.
Víða er hægt að nota gamlar
þjóðleiðir og götur sem þarf
ekki annað en að opna, ef til vill
með smálagfæringum og/eða
girðingum og hliðum. Þessarri
stofnleið geta svo tengst aðrar
leiðir m.a. þær sem liggja
meðffam akvegunum og þær
sem þola minni umferð.
Framundan er því mikil
vinna við að leysa úr þessu
brýna verkefni. Trúlega er það
hægt með vilja og ákveðni og
það á tiltölulega skömmum
tíma. I því ferli verður að trygg-
ja að leiðarvalið fari inn á skipu-
lag sem nú er í vinnslu hjá
sveitarfélaginu, fái þar nauðsyn-
lega kynningu og fólki gefist
kostur á að koma með
athugasemdir og leiðréttingar.
Einhverjar krónur mun þetta
verk kosta en trúlega munu þær
krónur koma margfalt til baka
með auknum ferðamanna-
straumi og jákvæðari ímynd.
Hjalti Þórðarson
Golfklúbburinn Hvammur í Húnaþingi vestra
Golfklúbbnum
valið nafn
Síðastliðið sumar fór fram nafnasamkeppni Golfklúbbs
í Húnaþingi vestra og á dögunum voru veitt verðlaun
fyrir besta nafnið. Allnokkrar tillögur bárust og sumir
sendu inn fleiri en eina.
"Golfklúbburinn Hvamm-
ur" varð hlutskarpast og voru
fleiri en einn með þá tillögu.
Það kom því í hlut stjórnar
golfklúbbsins að draga á milli
þeirra einstaklinga sem höfðu
það nafn. Sigurvegarinn varð
Karín Kristín Blöndal og hlaut
hún 10.000 króna gjafabréf frá
Sparisjóði Húnaþings og
Stranda. Veitti hún skjalinu
viðtöku á heimili sínu á
dögunum og bauð hún stjórn
golfklúbbsins uppá kaffi og
með því.
Á næstunni mun Golf-
Karín Blöndal veitir gjafabréfinu viðtöku úr höndum gjaldkera Golfklúbbsins
Hvamms, Halldórs Sigfússonar.
klúbburinn Hvammur halda
almennan kynningarfúnd þar
sem kynnt verður m.a. tillaga
um staðsetningu fýrirhugaðs
golfvallar. Verður þessi fúndur
nánar auglýstur á næstu
dögum.
Heimild: www.1orsvar.is
CJBSOiJ Heilbrigðisstofnunin
Sauðárkróki
Síml: 455 «000- Slmbréf: 455 4010- PósthólfrJO
frá Heilbrigiisstofnuninni
Sérfræðikomur í janúar
Vika Nofn sérfræðings
2 Edward Kiernan
3 Siguríur Albertsson
4 Hafsteinn Guijónsson
5 Bjarki Karlsson
TÍMAPANTANIK í SÍMA 455 4022
Sérgrein
kvensjúkdómalæknir
alm. skurðlæknir
þvagfæralæknir
bæklunarskurðlæknir
Könnmin
Hvert eftirtalinna jólalaga er í
mestu uppáhaldi hjá þér?
Líður að jólum
með Stebba Hilmars! (9.5%)
Yfir fannhvíta jörð
með Pálma Gunn! (16.6%)
Last Chrístmas
með Wham! (12.5%)
Er líða fer að jólum
með Ragga Bjarna! (12.5%)
White Christmas
með Bing Crosby! (15.9%)
Ef ég nenni
með Helga Bjöss! (22%)
Do They Know Its Christmas
með Band Aid! (11.1%)
Hægt erað taka þátt i könnunum sem
birtast I Feyki með því að fara inn á
heimasíðuna Skagafjörður.com og
kjósa þar.
Itfofar
Andrés tekur við sem
slökkviliðsstjóri
Stjórn Brunavarna A-Hún.
samþykkti á fundi sínum í gær að
skipa Andrcs I. Leifsson næsta
slökkviliðsstjóra frá og með l.
desember 2004 en Bragi Arnason
sem gengt hafði því embætti um ára-
bil hætti í sumar og þakkaði stjórnin
honum fyrir samstarfið.
1 millitíðinni höfðu þeir Andrés og
Hilmar Frímannsson gegnt starfinu
saman. Andrés var ráðinn í 67%
stöðu sem slökkviliðsstjóri en
samtímis því gegnir hann 33% stöðu
í þjónustumiðstöð Blönduóssbæjar.
Heimild: www.lwni.is
Fjölskylduhátíðin
Á dögunum héldu SKJÁREINN og
Síminn fjölskylduhátíð á Hvamms-
tanga í tilefni af því að nú nást
útsendingar SKJÁSEINS þar. Má
segja að langþráður draumur
Hvammstangabúa hafi ræst þegar
Símamcnn bönkuðu upp á hjá
íbúum staðarins og aflientu mynd-
lykla og tengdu við ADSI.-kerfið.
Fjölskylduhátíð SKJÁSEINS byijaði
kl. 17:00 og mættu nokkuð margir
íbúar Húnaþings vestra. Villi úr
200.000 Naglbítum kynnti dag-
skrána. Að lokinni þeirri sýningu
var stutt hlé gert og var öllum boðið
upp á kók og ýrnis konar góðgæti.
Einnig gátu íbúar leitað ráðlegginga
hjá starfsmönnum Síntans á meðan
hátíðinni stóð. Að loknu hléi stjórn-
aði Villi Naglhítur Bingói, spilaðar
voru 3 umferðir og veitt voru vegleg
vcrðlaun.
Heimild: www.forsvar.is
Daníel Karlsson var fyrsti vinningshafi
kvöldsins og hlaut hann m.a. mikið
magn af klósettpappir I verólaun