Feykir - 08.12.2004, Síða 5
43/2004 Feykir 5
GLEFSUR UR RISSBLOKKINNI eftir ÞORHALL ASMUNDSSON
Magnaður þáttur af
Hjörleifum
í Skagfirðingabók
Langt er síðan að ég hef
komist í eins gott lesefni og
núna á dögunum þegar að
nýja Skagfirðingabókin barst
mér í hendur. Þar er langur
þáttur um þá Hjörleifana á
Gilsbakka, einkum þann yngri;
Kristinsson. Gunnar Oddsson
bóndi í Flatatungu ritar og
gerir það listavel, þannig að
unun er aflestrar.
Þeir voru miklir snillingar
Hjörleifarnir á Gilsbakka.
Pistilritari átti eilítil kynni af
Hjörleifi Kristinssyni. Hjör-
leifur leit stundum við á rit-
stjórninni. Nokkrum sinnum
kom hann með greinar eða
frásöguþætti til birtingar og
stundum kom hann bara til að
rabba um daginn og veginn.
Ég man það mjög vel þegar
Hjörleifur kom þessara erinda
í fyrsta sinn. Það sem vakti
eftirtekt var þessi mikli hæfi-
leiki hans sem sögumaður og
næmleikinn fyrir þessu smáa
og skemmtilega í umhverfinu.
Þessi mikla jákvæðni, það
þurfti ekki að vera stórt atriði
sem gladdi hann. Mig minnir
að hann hafi einmitt verið að
segja frá því í þetta skiptið
þegar hann var staddur út á
Eyri að versla í byggingarvöru-
versluninni, og varð það á að
missa smápening, eða eitthvað
slíkt úr vasanum, man það
ekki nákvæmlega. Það var lítil
stúlka sem sá þetta og rétti
Hjörleifi. Hjörleifur gladdist
við og úr þessu litla atriði varð
skemmtileg saga hjá honum.
Vitaskuld var inngangur að
þessari sögu hjá Hjörleifi og
beitti hann þá þeirri tækni sem
hann réð svo vel yfir, að leiða
hlustandann eða lesandann,
smám saman að kjarna sögun-
nar, og athyglinni var haldið
vel við efnið ffá upphafi til
enda.
I “gúrkutíðinni” var oft gott
að leita til Hjörleifs, einbúans
og póstsins í Austurdalnum.
Þegar haustaði og veturinn
lagðist að hringdi blaðamaður
gjarnan í Gilsbakka til að ffá
ffegnir þaðan ffemra. Og þó að
ekki væri að búast við neinum
stórtíðindum, þá brást það
aldrei að Hjörleifur gat alltaf
fóðrað blaðamenn með ein-
hverju sem glöggt auga hans
hafði veitt eftirtekt, og stíllinn
lét ekki á sér standa í
frásögninni. Það var ekki
komið að tómum kofanum
þar.
Já, það er virkileg ástæða til
að þakka fyrir mjög svo
skemmtilegan þátt í Skag-
firðingabók og gaman að
slíkur metnaður sé jafnan
lagður í útgáfú þessa rits að
Sögufélagi Skagfirðinga er
sómi af.
Svona til gamans fyrir þá
sem enn hafa ekki komið því í
verk að gerast félagar í
Sögufélaginu og fá því ekki
Skagfirðingabók, þá tek ég
bessaleyfið og birti skemmtile-
ga sögu, sem reyndar er kunn
mörgum Skagfirðingum, og er
skemmtilega skráð af
þáttarskrifara, þar segir frá
þeim frábæra hæfileika
Hjörleifs eldri að þjálfa hunda
sína.
Einhverju sinni fór Hjör-
leifur ríðandi út að Silfra-
stöðum þar sem hann skildi
eftir hest og hnakk og tók bíl til
Sauðárkróks. Lappi varð eftir á
Silfrastöðum og lá hjá
hnakknum. Nú gekk ferðin
svo fram hjá Hjörleifi að hann
kom ekki að Silfrastöðum í
bakaleið en hélt áfram með bíl
fram fyrir Norðurá og heim.
Morguninn eftir bað hann
Jóhannes bónda á Silfra-
stöðum að reka Lappa af stað
heim og þá mundi hann skila
sér.
En það gekk ekki eftir og
var hundurinn ófáanlegur til
að yfirgefa reiðtygi húsbónda
síns. Gekk svo ffarn að hádegi.
Þá biður Hjörleifúr Jóhannes
að bera Lappa inn og láta
símtólið við eyrað á honum,
hann ætlaði að prófa að tala
við hann. Lappa var svo komið
að símanum og Hjörleifur
talaði við hann, kvaðst vera
kominn heim og nú ætti hann
að yfirgefa hnakkinn og koma
heim. Og það var eins og við
manninn mælt að Lappi
hlýddi húsbónda sínum og
rölti af stað og hóf sína 14 km
göngu heim í Gilsbakka. Á
þessum tíma var það öruggle-
ga einsdæmi að talað væri við
hund í síma og að hann hlýddi
þeim boðum.
Og húmor Hjörleifs
Kristinssonar kemur vel ffarn í
kveðskap hans. Þessa vísu
gerði hann meðan hann beið
eftir viðtali við fulltrúa
kaupfélagsstjóra.
Hér sit ég á biðstofu Mður
höjðingjans kenjum.
I iiáskóla reynslunnar
samvinnustefhuna lceri.
Ég minnistþess núna hvað
mérfannst oft bölvað á grenjum
að margheyra í refhum en
komastekki ífæri.
Þórhallur Ásmundsson
Tveir góðir kostir
til að ávaxta
spariféð þitt
KS-bókin er með 3,7% vexti,
bnndin í 3 ár og verðtryggð
Sn.mvinnubóJfln rr mrð
lausn bindingu,
nafnvextir 5,8%,
ársávöxtun 5,88%
Hafiðliið séð beiri uextiP
Innlánsdelld KS
SAMVINNUBðKIN
og KS-BÚKIN
Fiðlusveit
Tónlistarskólans
leikur fyrir
viðskiptavini frá kl. 15
Jóhann Már
Jóhannsson kynnir
og áritar nýja diskinn
frá kl. 16 á laugard.
verður hjá okkur
áföstudag kl. 17:30
Þeir taka lagið og
áritar nýja diskinn
OC,' JÓl.lKI kOODA
20-25% afslætS!
a— Hamborgarhryggur kr. 799 kg. ^ \ Kjötvinnsla KS V kynnir Á hátíðamatinn L frákl. 14-18 ■ { á iaupardau
& Kl. 14 á laugardag seljum við 1 tonn af appetsínum og 1 tonn af kartöflum
hinir sömu sf