Feykir - 08.12.2004, Síða 7
43/2004 Feykir 7
Guðmundur I/altýsson______
Hagyrðingaþáttur 395
Heilir og sælir lesendur góðir.
Það er Einar Þórðarsson frá Innri-
Skeljabrekku sem byijar þáttinn
að þessu sinni.
Þegar bresturyndi ogyl
úfimtn lífs á bárum,
ferskeytlunnar flý ég til
flakandi í sárum.
Önnur vísa kenrur hér sem
mun vera eftir Einar.
Ærsla-hlátur, að þvígá
eykurgrát og trega.
Best er að láta lampa á
loga mátulega.
Staddur í Reykjavík mun Einar
hafa ort þessa.
Komir þú um kvöld í Vík
kvikt er Austurstrœti.
Telpa mörg í tildursflík
tekin erþar áfœti.
Ólafur Gunnarsson í Borgar-
nesi yrkir svo á efri árum.
Áfram leið í lífsinsglaum
btgst afhress ogglaður.
Vaknaði upp vtð vondan draum
var þá gamall maður.
Gísli Ólafsson héðan frá
Eiríksstöðum mun hafa ort þessa
ágætu vísu.
Nóttin styður stjórnvöl á
Stutt er friðarskíma.
Draums í iðu hníga há
hljómbrot liðins tíma.
Trúlega hefur það verið á yngri
árum Gísla sem orti þessa.
Vonarhjólið valt er hér
á veikleik stólar enginn
auðarsól er of dýr mér
ung og skólagengin.
Dagbjartur Dagbjartsson á
Refsstöðum er góður hagyrðingur
og mikill áhugamaður um vísur.
Eftir hann er þessi.
Oft mér hefur valdið vöku
þó vœri að basla hvað éggat
að grípa á lofti góða stöku
oggera úr henni blaðamat.
Eitt sinn hringdi Dagbjartur í
Einar Kolbeinsson í Bólstaðarhlíð
og ræddi við hann um vísur. Hafði
Einar þá aldrei séð Dagbjart. Eftir
að samtalinu lauk orti Einar.
Orðaglímu karlinn kann
og knappt í rím að hlekkja,
en í sítna ótnar hann
eitts og tímaskekkja.
Karl Friðriksson, brúarsmiður,
mun eitt sinn hafa ort svo í vetrar-
byrjun.
Svalinn nœðirsviðinn völl
sólarglœðum hallar.
Sumarklœðin eru öll
ofin þrœði mjallar.
Alltaf finnst mér gaman að rifja
upp snjallar hringhendur eftir
Rósberg G. Snædal. Svo yrkir
hann um vetrartíma.
Sumri töpuð virðast völd
vetrar sköpuð byrði.
Heyri ég nöpur, nístingsköld,
Norðra köpuryrði.
Þungan alda fellir fald
fjöllin tjalda íclœði björtu.
Enn hið kalda krumluhald
kynnir valdið, skelfir hjörtu.
Hrœðist varla veðurstór
vog þó falla taki,
sá er alla cevifór
einn aðfjalla baki.
Um síðustu vísuna er það að
segia að mig minnir endilega að
hafa heyrt, reyndar fyrir nokkuð
löngu síðan, að hún væri ort um
Elivoga Svein.Væri gaman að
heyra frá lesendum ef þeir vissu
eitthvað frekar um það.
Ein vetrarvisa í viðbót, sem er
að bögglast fyrir mér og ég hef
kunnað lengi en get alls ekki
munað eftir nvern er.
Æðirjjúk á Ýtnis búk
ekki er sjúkra veður,
klæðir hnjúka hríð ótnjúk
hvítum dúki meður.
Þar sem alls konar áróður sem
tengist jólahaldi, magnast nú dag
frá degi, í hinum ýmsu fjöl-
miðlum, er kannski í lagi að birta
hér næst þetta átæta vers Ingólfs
Kristjánssonar.
Auðlegð menn girnast oggœfú
oggera sér vonir um lán
ogþað þykir toppur tilverunnar
ao tryggja sérfarmiða á Spán.
Mega þar busla við bjartar
strendur
og brenna kropintt í sól,
koma svo heim í helvítis kuldan
og halda gleðilegjól.
Magnús Jósefsson í Borgarnesi
mun hafa verið staddur á hag-
yrðingamóti er hann orti svo.
Hehiti langar mig efiir þeim apa
Andrési Valbergog Jóa í Stapa
sem kunna á kviðlingum skil.
Það steitdur bara í mér að stuðla
og rítna,
stari út í loftið eilíjðartíma.
Vísumarverða ekki til.
Þegar Magnús veitt athygli
atíerli unga fólksins sem er honum
samtíða verður þessi til.
Þetta unga efnisfólk
ótal sœkir skóla.
Þyrfti að drekka meiri mjólk
en mitttta afCoka Cola.
Væri þá góður kostur að leita
enn til Gísla Olafssonar með ágæta
vísu í Iok þáttarins.
Svífiur él í sveitir inn
sólarfelast Ijósin.
Glitrar vel um gluggan ntinn
gráa hélurósin.
Verið þar með sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson,
Eiríksstöðumm,
541 Blötiduósi.
S: 452-7154.
íþróttafréttir
Intersportdeildin í körfuknattleik_
Njarðvfldngar
einfaldlega betri
Tlndastóll fékk topplið
IMjarðvíkinga í heim-
sókn í Síkið í kvöld. Lið
Tindastóls hefur verið
að spila illa að undan-
förnu og höfðu heima-
menn því ærna ástæðu
til að rífa sig upp og
það tókst, þó svo að á
endanum hafi ágætt lið
Njarðvíkinga haft
betur. Lokatölur 85-95
eftir að Stólarnir höfðu
haft yfir 43-41 í leikhléi.
Njarðvíkingar byrjuðu á
að setja niður tvær 3ja stiga
körfur en Tindastólsmenn
slepptu þeim ekki frá sér og
komu sér inn í leikinn.
Talsverður hraði var strax í
leiknum og ágæt tilþrif á
báða bóga. Svavar Birgisson
hitti vel og ekki síst fyrir hans
leik náðu Stólarnir yfir-
höndinni þegar líða tók á
fyrsta leikhluta. Annar
leikhluti var svipaður hinum
fyrsta og heimamenn alltaf
skrefinu á undan gestunum.
Staðan í hálfleik 43-41 fýrir
Tindastól.
Njarðvíkingar byrjuðu
þriðja leikhluta vel og sér-
staklega var kraftur í
Anthony Lackey. Varnar-
leikur Njarðvíkinga batnaði
og þá voru þeir grimmari í
sókninni og náðu með
góðurn leik yfirhöndinni og
þegar þriðji leikhluti var að
baki höfðu þeir skapað sér 8
stiga forskot, 64-72.
Tindastólsmenn hófu
fjórða leikhluta vel og loks
fóru skot Nikola Cvjetkovic
að rata í körfu Njarðvíkinga.
Minnstur varð munurinn
þrjú stig í leikhlutanum en
Njarðvíkingar reyndust helst
til of stór biti fýrir lið
Tindastóls og sigraði að
lokum 85-95.
Sem fyrr segir lék
Tindastóll sinn besta leik í
langan tíma og einkurn voru
Svavar og Bethuel Fletcher
góðir. Það var skarð fýrir
skildi hjá heimamönnum að
Ron Robinson gekk ekki
heill til skógar og gat iítið
beitt sér í sókninni.
Að leik loknum sagði
Kári Marísson þjálfari
Tindastóls að jafnræði hefði
verið með liðunum fram í
fjórða leikhluta, þá hefði
komið í Ijós að Njarð-
víkingar höfðu meiri breidd
og leikreynslu. Hann kvaðst
þó ekki geta verið annað en
ánægðir með sína rnenn sem
börðust af kappi allan
leikinn.
INTERSPORTDEILDIN í KÖRFU
íþróttahúsið á Sauðárkróki
TINDASTÓLL 85
NJARÐVÍK 95
Stig Vndastóls: Svavar Birgisson 30,
Bethuel Fletcher 26, Nikola
Cvjetkovic 13, Axel Kárason 10, Ron
Robinson 5 og Gunnar Andrésson I.
Barátta urtdirkörfu Njarðvíkinga - ekki alltaf auðvelt að vera dómari?
Getraunaleikur Tindastóls_
Tippað á fullu
Líkt og sagt hefur
verið frá áður þá
stendur knattspyrnu-
deild Tindastóls fyrir
skemmtilegum get-
raunaleik og var fyrsta
umferð spiluð síðasta
laugardag.
Þrjátíu hópar eru skráðir
til leiks og er það nokkuð
viðunandi þátttaka þó svo
að skemmtilegra væri ef
fleiri væru með.
Að sögn Eyþórs Einars-
sonar formanns knatt-
spyrnudeildar var fin mæt-
ing í vallarhúsið að morgni
laugardags og nú er bara að
menn haldi áfram að mæta
og skemmta sér yfir
boltanum.
Keppnin er jöfn og
spennandi eftir fyrstu
umferð þar sem enginn
hópur fékk meira en 9 rétta
og enginn minna en 6!
Verður Robinson
látinn fara?
Á netsíðunni Sport.is velta
menn fýrir sér hvort Ron
Robinson verði áfram hjá
Stólunum eftir áramót.
Eitthvað segja þeir að sé í það
minnsta í gangi hjá Tindastól
en ekki hefúr fengið staðfest-
ing um það hjá félaginu.
Sport.is segir Robinsson ekki
að standa sig eins vel og
menn bjuggust við.
1 síðustu viku var dregið í
Bikarkeppni KKÍ og Lýsin-
gar og sækja Stólarnir
Hamar/Selfoss heim.
smaauglýsingar Sendið smáauglýsingar til frírrar birtingar á feykir@krokur.is
Vodkakúrinn Hinn stórskemmtilegi Vodkakúr með Helgu Braga og Steini Ármanni verður sýndur í íþrótta- húsinu á Sauðárkróki á föstu- daginn. Frábær sýning sem enginn má missa af! Tónleikar faiia niður Áður auglýstir tónleikar með hljómsveitinni Á móti sól sem vera áttu í Bifröst næstkomandi laugardag, falla niður af óviðráðanlegum ástæðum. Bíll til sölu Tilsölu Toyota Corolla árgerð 2000. 3ja dyra, 6 gíra, ekinn um 38 þús. km. Upplýsingar í síma 893 5477.