Feykir - 20.04.2005, Page 2
2 Feykir 15/2005
Samband sveitarfélaga á Norðurlandi vestra
Jakob ráðinn
framkvæmdastjóri
Jakob Magnússon er
nýráðinn sem fram-
kvæmdastjóra Samtaka
sveitarfélaga á Norður-
landi vestra og er hann
tekinn við störfum
á skrifstofu SSNV á
Hvammstanga.
Jakob Magnússon lauk
meistaraprófi í alþjóðavið-
skiptum frá University of
Birmingham í Bretlandi árið
2001. Hann stundaði nám við
Tækniskóla íslands, 1997-
1998. Hann nam matreiðslu
við Hótel og veitingaskóla
íslands, 1979-82, öðlaðist
meistararéttindi í sama fagi
árið 1986.
Jakob hefur unnið hjá
Islenskum lyfjarannsóknum,
Islenskri erfðagreiningu og
sem atvinnuráðgjafi lijá At-
vinnuþróunarfélagi Norður-
lands vestra nreð starfsstöð á
Siglufirði.
Jakob hefur mikla reynslu
í margþættum atvinnurekstri
og starfaði um árabil við ei-
gin rekstur bæði á sviði ve-
itingastarfsemi og verslunar.
Jal<ob er giftur Sigríði Jakobí-
nudóttur, hjúkrunarfræðingi
og eiga þau samtals tjögur
börn.
Jakob tekur við starfinu
af Bjarna Uór Einarssyni,
sern gengt hefupatftrÖBHsiBS
árabil.
Heimild; www.forsvar.is
Leiðari
Það er engin þörf að kvarta
„I'að er engin þöf að kvarta, þegar blessuð sólin skín", söng
Óskar Pétursson fullum hálsi á sínum tíma og sennilega á
nú fátt betur við þessa dagana.
Vorsól vermir okkur á alla kannta hér á Norðurlandi vestra
og gróðurinn tekur daglegum framförum. Sömu sögu er
að segja af sveitarstjórnarmönnum í Skagafirði nema þar er
það samkomulagið sem tekur daglegum framförum.
Ekki spillir heldur skapi okkar þessa dagana að gamla KS
græðir á tá og fingri. Svo mikið að ef hagnaðurinn yrði
lagður í sveitarsjóð í eins og tvö ár stæði Sveitarfélagið •
Skagafjörður nær skuldlaust eftir.
i
Landsins forni tjandi hætti við strandhögg og stóri bor-
garísjakinn á Húnaflóa flúði undan vorinu aftur heim til
Grænlands.
Nei það er sannarlega engin þörf að kvarta.
Árni Gunnarsson
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Utgefandi:
Feykir hf
Skrifstofa:
Aðalgötu 21,
Sauðárkróki
Biaðstjórn:
Árni Gunnarsson, Áskell
Heiðar Ásgeirsson,
Guðbrandur Þorkell
Guðbrandsson, Herdís
Sæmundardóttir og Jón
Hjartarson.
Ritstjóri &
ábyrgðarmaður:
Árni Gunnarsson
arnig@krokur.is
Simi 455 7100
Blaðamenn:
Óli Arnar Brynjarsson
PéturIngi Björnsson
feykir@krokur.is
Sími 453 6001
Póstfang Fcykis:
Box4,550 Sauðárkrókur
Askriftarverð:
210 krónur hvert töiubiað
með vsk.
Lausasöluverð:
250 krónur með vsk.
Setning og umbrot:
Hinir sömu sf.
Prentun:
Nýprent ehf.
Sölufélag Austur Húnvetninga á Blönduósi
Viðunandi afkoma hjá SAH
Afkoma SAH á árinu 2004 var í járnum árið 2004.
Tapið nam 4,3 m.kr. að teknu tilliti til skatta og
fjármagnsgjalda. Velta félagsins jókst úr 636 m.kr. .
í 714 m.kr. og umtalsverð lækkun náðist fram á
fjármagnsgjöldum. Afskriftir fastafjármuna eru um 20
m.kr. og fjárfestingar í fastafjármunum voru um 27
m.kr.
Þetta er ekld sú niðurstaða
sem stjórn og starfsmenn
félagsins hafa stefnt að, en verður
þó að teljast vel ásættanleg í Jjósi
þess ástands sem ríkt hefúr á
kjötmarkaði. Þó svo að verð
til bænda fyrir dilkakjöt hafi
hækkað nokkuð síðastliðið
haust náðist sú verðhækkun
ekld fram á markaði fyrr en
nokkru seinna.
Mildl áhersla er lögð á að
endurnýja og viðhalda tækjum
og fasteignum félagsins. Sér
þess stað í afkomu þess, en á
hitt ber að líta að reglubundin
endurnýjun og viðhald er
nauðsynlegur þáttur svo tryggja
megi vöxt og viðgang félagsins
til framtíðar. Telja stjórnendur
félagsins að SAH hafi staðið vel
af sér þær hræringar sem verið
hafa á kjötmarkaði undanfarin
misseri. Eiginfjárstaða félagsins
er traust og stefnt er að auknum
umsvifúm á komandi árum.
Aðalfúndur Sölufélags
Austur Húnvetninga verður
haldinn miðvikudaginn 27, apríl
í Sjálfstæðishúsinu á Blönduósi
og hefst klukkan 13:30.
Stóriðjuáhugi í Austur-Húnavatnssýslu
Lesendur Húna
hlynntir álveri
Tæplega 60% lesenda
vefsíðurnnar Húna-
hornsins eru fylgjandi
byggingu álvers í
Austur-Húnavatnssýslu
en 36% eru á móti.
Þetta kemur fram í
netkönnun
Húnahornsins.
Niðurstöður þessar verður
að taka með miklum fýrin'ara
þar sem einungis var gefin
kostur á að kjósa á netinu.
Þetta gefur hins vegar
vísbendingu um að áhugi fyrir
álveri sé meiri í Austur-
Húnavatnssýslu en Skagafirði
þar sem eingungis tæp 40%
voru hlynnt álveri samkvæmt
skoðanakönnun Gallup.
Álfyrirtæki hafi sýnt áhuga
á að reisa álver á Norðurlandi.
Meðal annars hefur verið rætt
um tvö “minni” álver með
150-200 þúsund tonna
afkastagetu á ári með
þjónustumiðstöð á Akureyri.
Svæðin sem hafa verið til
skoðunar fyrir minni álver eru
annars vegar Húsavík og hins
vegar Skagaíjörður eða
Skagaströnd.
Bóknámshús Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra
FNV-dagurinn á
sumardaginn fyrsta
Fjölbrautaskóli Norður-
lands vestra fagnar
sumri með fjölbreyttri
dagskrá kl. 13:00-16:00
en opið hús verður í
Bóknámshúsi og Verk-
námshúsi skólans.
Þá fer ffarn úrslitakeppni og
verðlaunaafhending í stærð-
fræðikeppni FNV og 9. bekkjar
grunnskólanna á Norðurlandi
vestra.
Stærðffæðikeppni FNV og
9. bekkjar var fyrst lialdin árið
1998. Árið 2001 var ákveðið
að víkka út hlutverk dagsins og
kenna hann við FNV.
Að sögn Þorkels V.
Þorsteinssonar aðstoðarskóla-
meistara var það Kristján
Bjarni Halldórsson sem kom
keppninni á laggirnar og hefur
séð urn hitann og þungann af
keppninni ásamt öðrum
stærðfræðikennurum við
skólann frá upphafi. í ár hafa
þeir Björn Einar Árnason,
Björn Friðrik Björnsson og
Gísli Árnason séð um
framkvæmd stærðffæði-
keppninnar.
Megintilgangur stærðffæði-
keppnninar er að glæða áhuga
grunnskólanemenda á stærð-
ffæði og er samstarfsverkefni
FNV, grunnskóla og fyrirtækja
og stofnana á Norðurlandi
vestra.
Alls komust 17 nemendur
af 124 þátttakendum í úrslit
þetta árið og keppa þeir til
veglegra verðlauna sem gefin
eru af fyrirtækjum,
sveitarfélögum og stofnunum
bæði á Norðurlandi vestra og
víðar um landið.
„FNV dagurinn hefur meðal
annars það hlutverk að vekja
athygli á því fjölbreytta
skólastarfi sem franr fer í FNV
og þýðingu hans fyrir íbúa á
Norðurlandi vestra. Dagskráin
í ár er óvenju fjölbreytt og er
ætlað að höfða til sem flestra og
það er von okkar að sem flestir
heimæki okkur og þiggi kaffi
og vöfflur í boði skólans,” sagði
Þorkell.