Feykir - 20.04.2005, Blaðsíða 3
15/2005 Feykir 3
Guðmundur Karl Jónsson skrifar
Hálendisvegurinn
borgar sig aldrei
Kynnt hefur verið á
Alþingi hugmynd um að
lagður verði hálendis-
vegur úr innanverðum
Skagafirði um Stóra-
sand, Arnarvatnsheiði og
Kaldadal sem styttir
vegalengdina milli
Reykjavíkur og
Akureyrar um 80 km.
Að þessu máli hafa komið
KEA, Akureyrarbær, Hagar,
Kjarnafæði, Gúmívinnslan,
Brauðgerð Kr. Jónssonar,
Norðlenska matborðið, Tré-
smiðjan Börkur og Norður-
mjólk sem hafa útvegað
samanlagt 11 milljónir kr. Án
þáttöku íslenska ríkisins geta
þessir stofhendur Norðurvegar
aldrei fjármagnað þennan
hálendisveg. Kostnaður við
þennan veg getur farið vel yfir 7
milljarða kr. Fullvíst má telja að
þessi hálendisvegur verði dýrari
heldur en 7 til 9 km löng
jarðgöng undir Öxnadalsheiði.
Á Stórasandi er hápunktur
leiðarinnar um 800 m.y s. Að
öllum líkindum yrðu um 15
km af þessum hálendisvegi í
yfir 700 rn.y.s. Á Öxnadalsheiði
er mesta hæð vegarinns um
540 rn.y.s. og rúmlega 400
metrar á Holtavörðuheiði.
Tvær veðurstöðvar hafa verið
settar upp á Arnarvatns- og
Eyvindastaðaheiði. Mælingar
sýndu að vindhraði þar og á
Öxnadals- og Holtavörðuheiði
var 12 til 14 metrar á sekúndu 3
janúar s.l. Þær segja ekkert að
þessi hálendisvegur verði
öruggur fyrir blindbyl og
snjóþyngslum sem engin gæti
átt von á.
Hugmyndin um að fara
með þennan veg úr innan-
verðum Skagafirði upp í 800
m. y. s. er fjarstæðukennd og
óraunhæf. Tilraunir af þessu
tagi eru dæmdar til að mis-
takast. Ekki er sjálfgefið að
Vegagerðin fallist á að byggja
heilsársvegi í þessari hæð yfir
sjávarmáli. Þarna myndu
snjóþyngsli og blindbylur
fljótlega skapa vandræði án
þess að slíkt yrði séð fyrir.
Stofnendur Norðurvegar sem
héldu fund á Akureyri 4.
febrúar s.l. mega búast við því
að Náttúruverndarsamtökin
safrii undirskriftum gegn
þessum hálendisvegi.
Þessi hugmynd sem kynnt
var á stofnfundi Norðurvegar á
Akureyri vekur litla hrifningu
Húnvetninga og Skagfirðinga
sem hafa ásamt Eyfirðingum
lagt til að gerð verði jarðgöng
úr Hjaltadal yfir í Hörgárdal.
Viðbúið er að meirihluti
Norðlendinga snúist gegn
þessum hálendisvegi eins og
Héðinsfjarðargöngum.
Heppilegra væri ef stofn-
endur Norðurvegar leggðu
meiri áherslu á Vaðlaheiðar-
göng og hin göngin úr Hjalta-
dal yfir í Hörgárdal sem
Alþingi hefði ffekar átt að
ákveða í stað Héðinsfjarðar-
ganga.
I gegnum Hvalfjarðargöngin
hafa farið 5000 til 6000 bílar á
dag. Á einum degi færu aldrei
jafhmargir bílar yfir þennan
hálendisveg. Lauslegar umferð-
ar- og arðsemisathuganir
munu aldrei sýna að þessi veg-
ur verði arðbær fjárfesting sem
aldrei borgar sig þótt veggjald
yrði innheimt. Það ætti ffekar
við um jarðgöngin úr
Hjaltadal undir Tröllaskaga
og Vaðlaheiðargöng sem
fyrrverandi þingmenn Norð-
urlands eystra og vestra hefðu
ffekar átt að betjast fyrir áður
en Alþingi samþykkti kjör-
dæmabreytinguna og Héðins-
fjarðargöng á fölskum
forsendum.
Fyrrverandi landsbyggð-
arþingmenn sem gengu gegn
vilja heimamanna áður en
þeir samþykktu þessa kjör-
dæmabreytingu og gáfu
Siglfirðingum og Ólafsfirð-
ingum fögur loforð eiga nú
mörgum spurningum ósvar-
að. Fyrir þessi vinnubrögð
þurfa þeir ekki að gjalda héðan
af. Þingmenn Norðvestur-
kjördæmis eiga ásamt sam-
gönguráðherra að kynna sér
tillögur Skagfirðinga,Blöndu-
ósinga og Skagstrendinga sem
sótt hafa um styrk úr
þróunnarsjóði Vegagerðar-
innar til að rannsaka
samfélagsleg áhrif Þverár-
fjallsvegar og jarðganga úr
Hjaltadal undir Tröllaskaga
sem gagnast fjarlægari byggð-
um enn betur en Héðins-
fjarðargöng. Afskrifúm há-
lendisvegin fyrir fúllt og allt.
Guðmundur Karl Jónsson
Jón Bjarnason þingmaður skrifar
Þjóðaratkvæðagreiðsla
um Landssímann
Fyrirhuguð sala Landssímans er afar umdeild í
þjóðfélaginusvovægtsétilorðatekið.Skoðanakannanir
hafa hvað eftir annað sýnt að meirihluti landsmanna er
andvígur sölu Símans með grunnnetinu.
Þannig lýsti 61% svar-
enda andstöðu við söluna
í Gallup-könnun í mars
árið 2002. í könnun sem
Félagsvísindastofnun Háskóla
íslands gerði í febrúar 2005
kváðust rúm 70% þeirra
sem afstöðu tóku andvíg
sölu grunnnetsins. 68%
höfúðborgarbúa voru
andvíg sölunni en 75%
landsbyggðarfólks. í Þjóðarpúlsi
Gallup, sem kynntur var í mars
2005, var meirihluti aðspurðra
and\igur sölu fyrirtækisins
og 76% á móti því að selja
grunnfjarskiptakerfi Símans.
Verður þjóðin að kaupa
Símann afsjálfri sér?
Þær rniklu undirtektir sem
hugmyndin um að stofúa stórt
almenningshlutafélag til að
kaupa ráðandi hlut í Símanum
hefúr fengið, undirstrika gremju
fólks í garð ríkisstjórnarinnar
vegna sölunnar. Ekki verður
betur séð en að fólki þyki
skömminni skárra að kaupa
fyrirtækið af sjálfú sér en
að sjá á eftir því í hendur
einkavina ríkisstjórnarinnar
sem fengið hafa að maka
krókinn i einkavæðingu og
sölu almannaeigna á síðustu
árum. Þjóðin hefur nú
fengið upp í kok af spillingu
ríkisstjórnarflokkanna og
bregst við í örvæntingu og
reynir nú í kappi við tímann að
bjarga einni sinni dýrustu eign,
fjarskiptakerfi allra landsmanna
Samkeppnishæfni landsbyggð-
arinnar í húfi.
Sala Símans yrði stærsta
einstaka einkavæðing sem
orðið hefur í almannaþjónustu
á Islandi. Hún er að öllum
líkindum óafturkræf og setur
ffamtíð fjarskiptaþjónustu á
stórum svæðum landsins í mikla
óvissu. Við landsmönnum blasir
samruni fjarskiptafyrirtækja og
fjölmiðla hér á landi þar sem
arðsemiskrafan ein ræður för.
Hefðbundin fjarskiptaþjónusta
við almenning í hinum
dreifðu byggðum verður
ekki forgangsmál hjá slíkum
samsteypum.
Mörgum spumingum
er ósvarað varðandi það
hvemig fara skuli með grunn-
fjarskiptakerfi Símans, svokall-
að grunnnet, sem ætlunin er að
selja með fyrirtækinu.
Hver trúir því að ríkið
muni til langffama styrkja
„óarðbæra“ fjarskiptaþjónustu
í dreifbýli.?
Landsmenn hafi sjálfir
síðasta orðið
Æmar ástæður eru til að ffekari
framvinda máls-iins verði ráðin
í lýðræðislegri atkvæðagreiðslu
sem allir landsmenn geti
tekið þátt í. Landssíminn er
að nær öllu leyti í sameign
allra landsmanna þar eð hið
opinbera fer með 98% hlutafjár
í fyrirtækinu.
Síminn skilar milljarða
króna arði árlega. Það þætti
vitlaus bóndi sem seldi bestu
mjólkurkúna úr fjósinu. Enn er
vel hægt að blása söluna af.
Þingmenn Vinstrihreyf-
ingarinnar - græns ffamboðs
hafa lagt fram á Alþingi
tillögu um að efnt verði til
þjóðaratkvæðagreiðslu um
málið og ríkisstjórnin verði
bundinafniðurstöðunni. Þann-
ig má tryggja að vilji lands-
manna koini afdráttarlaust
ffam og ráði raunverulega
för þegar kemur að því að
ákveða hvað gera skuli við
Landssímann.
Jón Bjamoson
höjundurer alþingismaður Jyrir
Vinstrihreyfinguna - grœnt framboð.
netkönnun
Hvaða lið sigrar Meistara-
deildina í vor?
AC Milan frá Ítalíu!
(18.6%)
Chelsea frá Englandi!
(29.4%)
Liverpoolfrá Englandi!
(50%)
PSV Eindhoven frá Hollandi!
(2,1%)
Hægt er að taka þáttí könnunum
sem birtast í Feyki með þvíað fara
inn áSkagafjörður.com og kjósa
þar. ítrekað skal að könnunin er
meira til gamans og taka skal
niðurstöðurnarmeð fyrirvara.
molar
Hagyrðingamót
á Blönduósi
Hagyrðingamót verður haldið
Félagsheimilinu á Blönduósi í
dagfmiðvikudaginn 20. apríl)
Llandskunnir hagyrðingar leiða
saman hesta sína og gestir í sal
eru hvattir til þess að koma með
innlegg í umræðuna í bundnu
máli.
Fín frammistaða FNV í
Söngkeppni framhalds-
skólanna
Söngkeppni framhaldsskólanna
fór tfam á Akureyri laugardaginn
16. apríl. Fulltrúar Fjölbrautas-
kóla Norðurlands vestra stóðu
sig með stakri prýði þó ekki
næðist í verðlaunasæti en fram-
lag skólans að þessu sinni var
lagið Við sanian eftir Brynjar Pál
Rögnvaldsson en Sandra Dögg
Þorsteinsdóttir söng.
Brynjar Páll spilaði undir á gítar
og Viviane Guéra á selló. Skag-
firðingar áttu annan fúlltrúa sem
stóð fyrir sínu og vel það en Iris
ösp Sveinbjörnsdóttir söng fyrir
liönd Iðnskólans í Hatúarfirði.
Það var tfamlag MR sem sigraði í
keppninni að þessu sinni.
Opinn dagurí vinnsl-
unni á Skagaströnd
Á morgun, fimmtudag sem
er sumardagurinn fyrsti, ætl-
ar starfsfólk og stjómendur
FISK seafood á Skagaströnd að
bjóða fólki í heimsókn í vinnslu
fyrirtækisins að Oddagötu 12 á
Skagaströnd en það er hús gömlu
rækjuvinnslunnar.
Allir eru velkomnir ffá klukkan
13 til 15 og í tilefni dagsins verður
boðið upp á lifandi tónlist, lifandi
fiska í búri og kynningu á fram-
leiðslunni og framleiðsluaðfer-
ðum.