Feykir - 20.04.2005, Page 6
6 Feykir 15/2005
/ góðum félagsskap_
Gömul en góð
hugmynd
Hestamenn skoruðu á gefa fermingarbörnum
fólk nú fyrir páskana að reiðhesí í fermingargjöf.
Fermingargjöf fyrir 50 árum. Lilja og Þokki.
Hugmyndin er góð en ekki
ný af nálinni eins og þessi mynd
ber með sér sem var tekin, fyrir
rúmum 50 árum, nánar tiltekið
árið 1953. Fermingarbarnið er
Lilja Guðrún Þorsteinsdóttir (f.
1939) með hestinn Þokka frá
Tyrfmgsstöðum.
Það var Jóhann Eiríksson,
móðurbróðir hennar og bóndi
á Tyrfmgsstöðum, sem gaf
hestinn í fermingargjöf.
Jóhann Eiríksson var ágætur
hrossaræktandi og komu frá
honum mörg góð hross. Eins
og þessi mynd ber með sér
hefur Þokki frá Tyrfingsstöðum
verið reistur og fasmikill foli og
eins og sjá má á svip
fermingarbarnsins er hún
ánægð með gjöfma.
Taktu bókhaldið
föstum tökum
Bókhaldsþjónusta fyrir einstaklinga,
fyrirtæki og félagasamtök
Tökum að okkur almennt bókhald, færslur,
uppgjör, launaútreikninga, framtalsgerð, stjórnun
verkefna og framkvæmdastjórn fyrir rekstaraðila
Góð þjónusta fagfólks á sanngjörnu verði
Hafðu samband
Leiðbeiningamiðstöðin
Aðalgötu 21 > Sími 455 7100 > Fax:455 7101
SVEITARFÉLAGIÐ SKAGAFJÖRÐUR
Greiðsluáskorun
Sveitarfélagið Skagafjörður skorar hér með á
fasteignagjaldendur í sveitarfélaginu, sem ekki hafa staðið skil
á fasteignagjöldum álögðum 2004 og féllu í gjalddaga 1. ágúst
2004, ásamt eldri gjöldum, að greiöa þau nú þegar og eigi síöar
en 15 dögum frá móttöku áskorunarinnar.
Að þeim tíma liðnum verður beðið um nauðungarsölu
á viðkomandi fasteign, án frekari viðvörunar.
Sauöárkróki, 15.04.2005
INNHEIMTA SKAGAFJARÐAR
Skagafjörður
RÁÐHÚSIÐ SKAGFIRÐINGABRAUT 2I SAUÐÁRKRÓKUR SÍMI455 6000
Pálmi Sighvats skrifar_
Vegur inn í
framtíð
Nú virðist svo að
sveitarstjórn Skaga-
fjarðar hafi náð að
ákveða hvar veglínan
norðurfrá Sauðárkrók
upp í Gönguskörð skal
liggja. Það eitt að
sveitarstjórnin náði því
að taka ákvörðun um
vegiínuna, eftir þriggja
ára karp, er eitt hennar
mesta afrek á
kjörtímabilinu.
Ákvörðun meirihluta
sveitarstjórnar er þrátt íyrir
þennan langa feril til
ákvörðunartöku, algjörlega
órökstuddur gagnvart íbúum
og fyrirtækjum sveitarfélagsins.
Hvers vegna var veglínan um
Gönguskarðsárós valin, það er
spurningin, sem greinar-
höfúndur óskar svars við frá
forseta sveitarstjórnar. Það eru
of margir augljósir gallar við
þessa hugsanlegu framhvæmd
og því nauðsynlegt að forseti
sveitarstjórnar upplýsi okkur
íbúana um alla þá kosti sem
fylgja ákvörðun þessari.
Greinarhöfundur er farinn
að átta sigáþví að þekkingarleysi
samgöngunefndar og allrar
sveitarstjórnarinnar í sögu
Sauðárkróks er ekki ásætt-
anlegur. Enginn þeirra vissi að
samgöngur við íbúa norðan
Gönguskarðsár fóru um
Gránuklauf og Gránumóa og
um hvamminn sem er sunnan
við vaðið á Gönguskarðsá.
Umferð undir Nöfunum út á
eyrina var algjörlega ófær,
nema á háíjöru vegna þess að
sjórbrautstöðugtúrNöfúnum.
Sagan hefði átt að hjálpa til við
ákvörðunartökuna, en þegar
enginn þekkir hana, þá sitjum
við uppi með álíka gáfúlega
framhvæmd og landinn situr
uppi með Héðinsfjarðargöng.
Ég ætla að tína hér ffam
nokkra augljósa galla á þessari
fýrirhuguðu framhvæmd.
f fýrsta lagi er vegurinn um
Gönguskarðsárós tæpum
tveim kílómetrum lengri en
um Gránuklauf, en allstaðar er
verið að reyna að stytta leiðir á
milli staða nema augljóslega í
Skagafirði.
í öðru lagi er umferð um
Eyrarveg hæg og með
stórauknum umsvifum á
eyrinni mun enn hægjast á
umferðinni.
í þriðja lagi er það alveg úr
takti við alla þróun að skerða
möguleika Steinullarverk-
smiðjunnar á stækkun. Ef sú
staða kæmi upp að stækka
þyrfti verksmiðjuna, bæta við
öðrum ofni og annari ffam-
leiðslulínu, þá yrði að byggja
aðra verksmiðju hinu megin
við þjóðveginn, sem þýðir tvær
aðskildar verksmiðjur. Þá
opnast nýjar leiðir og spurning
hvort ekki sé þá hagkvæmara
að byggja þá verksmiðju í
Þorlákshöfn, styttri sigling til
Evrópu og þá er verksmiðjan
líka nær markaðnum á
suðvesturhorninu, sem gæti
þýtt það að verksmiðjan á
Sauðárkrók legðist af. Grein-
arhöfundur vill ekki trúa því að
þetta sé sú ffamtíðarsýn sem
sjálfstæðismenn og vinstri
grænir hafi Skagfirðingum til
heilla.
í fjórða lagi er ekki hægt að
horfa fram hjá því að Gísli
Gunnarsson er í einkastríði við
fýrirtækin á eyrinni, sem eru
öll á móti vegi um Göngu-
skarðsárós, þar sem slík
ffamhvæmd hefur bein og
óbein áhrif á rekstur fýrir-
tækjanna til hins verra.
Pálmi Sighvats