Feykir - 20.04.2005, Síða 7
15/2005 Feykir 7
Rabb-a-babb
íþróttafréttir
Frá Molduxamótinu 2004.
Nafn: Svanhildur Harpa Kristinsdóttir
Árgangur: 1969.
Fjölskylduhagir: í sambúð með Þorg-
ilsi Heiðari Pátssyni og eigum við fjögur
börn. Fanney Birta 8 ára, Sólrún Björg
12 ára, Birgir Ingvar 17 áraog Jóhannes
Veigar 18 ára.
Starf/nám: Starfa sem stuðningsfulltrúi
við Grunnskóia Hofsóss. Starfið fellst
aðallega í að veita Birni Björnssyni
andlegan stuðning.
Hestöfl: Gordon Strachan 4. vetra og
Toyota Corolla árgerð 97.
Hvað er í deiglunni: Ég er búin að vera
frekar lítið heima hjá mér undanfarna
2 mánuði, þar sem ég hef verið að æfa
og leika í leikritinu Góðverkin kalla.
Síðustu sýningar eru núna á sumardag-
inn fyrsta og næsta föstudag. Þetta
er búið að vera skemmtilegur tími og
hópurinn sem kemur að þessu leikriti
er frábær,ekki spillir fyrir að leikritið
hefur fengið mjög góða dóma. En þetta
erorðið gotti bilihvað leiklistina varðar
og komin tími til að fara sinna öðrum
áhugamálum og ekki síst að vera með
fjöiskyidunni.
- Hvernig hefurðu það?
Jújú.....fínt. Takk.
- Hvernig nemandi varstu?
Úpps... Spyrjið Pái Dagbjartsson.
- Hvað er eftirminnilegast frá ferming-
ardeginum?
Það var sett sú stærsta nellika sem ég
hefséð í hárið á mér og var ég farin að
halla undir flatt er Ttða tók á daginn.
- Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðirstór?
Fornleifafræðingur.
- Hvað hræðistu mest?
Að þurfa leggja skóna á hilluna (fót-
boltaskóna).
- Hver var fyrsta platan sem þú keyptir
(eða besta)?
Fyrsta piatan var Boy með U2, síðan
hafa U2 drengirnir fylgt mér æ síðan
enda eru þeir bestir, ásamt Madonnu.
- Hvaða lag ertu líklegust til að syngja
í Kareókí?
Lög frá 80's tímabilinu steinliggja.
- Hverju missirðu helst ekki af í sjón-
varpinu (fyrir utan fréttir)?
Sjónvarp hvað er nú það? Fyrir löngu
horfði ég á Jack Frost og Nip Tuck.
- Besta bíómyndin?
80's tímabilið er ógleymanlegt, Desper-
atly Seeking Susan er ein af þessum
perlum enda lék sjálfMadonna í henni.
- Bruce Willis eða George Clooney
/ Angelina Jolie eða Gwyneth Pal-
trow?
Ekki spurning: Bruce Willis.
Hvað fer helst í innkaupakörfuna sem
ekki erskrifað á tossamiðann?
Freyju lakkrísdraumur.
Hvað er ímorgunmatinn?
Hnausþykkt kaffi að hætti Eiríks hús-
varðar.
- Uppáhalds málsháttur?
Betra er að fara á kostum en taugum.
- Hvaða teiknimyndapersóna höfðar
mest til þín?
Kolbeinn Kafteinn.
- Hvert er snilldarverkið þitt í eldhús-
inu?
Allt verður að snilldarverki hjá mér,
bara misjafnlega mikið.
- Hver er uppáhalds bókin þín?
Stefnuskrá Vinstri grænna.
-Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og
réðir hvert hún færi, þá færirðu...
...beint til Egyptlands að skoða Svings-
inn og pýramídana.
- Hvað fermest í taugarnar á þér í fari
þínu?
Kæruleysi.
- Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari
annarra?
Nöldur og barlómur.
- Enski boltinn - hvaða lið og af
hverju?
Arsenal, Dennis Bergkamp er lang-
flottastur
- Hvaða íþróttamanni / dómara hef-
urðu mestar mætur á ?
Gísla Einars fréttamanni, hann er með
þann fallegasta limaburð sem ég hef
séð á fótboltavelli, fast eftir honum
koma Óslandsbræður.
- Heim íBúðardal eða Diskó Friskó?
Ég er mikið fyrir Ijósadýrð og glamúr,
því vel ég Diskó Friskó.
- Hver var mikilvægasta persóna 20.
aldarinnar að þínu mati?
Nelson Mandela.
- Efþú ættir að dvelja alein á eyðieyju,
hvaða þrjá hluti tækirðu með þér?
Vasaljós, sængina mína og vasahníf.
- Hvað er best í heimi?
Fjölskyldan mín og amma Hilla.
- Hvað erskagfirskt?
Að vera á hestbaki á fagri sumarnótt
og horfa á sólarlagið er ólýsanlegt.
Ekki má gleyma heimareyktu hangi-
kjötinu frá Brekkukoti, það er sko
skagfirskt.
Körfuboltaveisla a la Molduxar og forsæluball íkjölfarið
Allt útlit fyrir stórkostlegt
Molduxamót
Hinir síúngu Molduxar
standa fyrir heljarmiklu
körfuknattleiksmóti
laugardaginn 23. apríl
næstkomandi og
verður án efa hart
tekist á, enda stoltið
oftar en ekki það sem
mest hefur verið
þjálfað hjá þeim
glæsilegu leikmönnum
sem þátt taka í mótinu.
Þegar hafa 16 lið skráð sig
til leiks og er allt eins búist
við því að þau verði orðin
fleiri þegar flautað verður til
leiks. Mörg liðanna koma af
Reykjavíkursvæðinu en eitt
kernur alla leið frá Árósum í
Danmörku. Af þessum 16
liðurn eru 6 skipuð kvenkyns
fulltrúum.
Molduxar láta sér að
sjálfsögðu ekki nægja að
draga körfuboltalið á
Krókinn í upphafi Sælu-
vikunnar því mögnuð
kvöldvaka verður að loknu
móti en ein helsta driffjöður
Molduxamótsins 2005,
Kristbjörn Bjarnason. segir
kvöldvökuna þannig til
komna að á síðasta móti hafi
fulltrúar Molduxa stigið á
stokk að móti loknu og
brillerað eins og þeirra er von
og vísa. Önnur lið vildu ekki
vera minni og því var
skyndilega orðin til mögnuð
dagskrá. Nú er því lögð
áhersla á það að liðin mæti
ekki einungis í frábæru
líkamlegu körfúboltaástandi
heldur með þaulæft
skemmtiatriði í farteskinu.
Kvöldvakan er aðeins
ætluð keppendum en þar á
eftir opna Molduxar
íþróttahúsið. „Ég vil endilega
koma því á framfæri að ballið
er opið öllurn en verið er að
vekja upp gömlu góðu
stemninguna með forsælu-
Sagt er frá því að heima-
síðu Tindastóls að Fríða
Rún Þórðardóttir, ung-
lingalandsliðsþjálfari
FRÍ, hefur valið Úr-
valshóp unglinga 2005.
í hópnurn eru 92 ungl-
ingar á aldrinum 15-22 ára.
Alls koma 20 frá Norður-
landi, 9 úr UMSS en auk
Skagfirðinganna koma 4 frá
HSÞ, 2 ffá UFA, USVH og
UMSE og 1 frá USAH.
balli”. Það er Hljómsveit
Geirmundar sem mun galdra
upp skagfirska sveiflu sem
aldrei fyrr.
Þá er rétt að benda
fróðleiksfúsum á að
Molduxar hafa tekið í
notkun alveg splunkunýja
heimasíðu til að aðdáendur
jafnt sem þeir sjálfir geti
fyllst lotningar. Þar er að
finna fínar myndir og margt
sem gaman er að kíkja á.
Slóðin á síðu Molduxa er
www.skagafjordur.com/molduxar
DeildarbikarKSl
Lið Tindastóls lék tjórða
leik sinn í Deildarbikar KSÍ
á föstudagskvöldið en þá
mættu þeir Fjarðabyggð.
Aðeins eitt mark var
skorað í leiknum og það
gerði Stefán Þór Eysteins-
son íyrir Fjarðabyggð á 69
mínútu. Sigmundur Birgir
Skúlason varð fyrir því óláni
að vera vikið af velli á 81
mínútu.
Eitt og annað
9 úr UMSS í
Urvalshópnum
smáauglýsingar Sendið smáauglýsingar til frírrar birtingar á feykir@krokur.is
Bíll til sölu Til sölu Toyota RAV4 árgerð 1996, 5 dyra, beinskiptur, ekinn 115 þús. km. Sumar- og vet- rardekk, vel með farinn bíll. Upplýsingar í síma 453 5392, i/s. 8221144. l Tapað - fundið Um páskahelgina hurfu sundföt heillarfjölskyldu afsnúru við Freyjugötu 42. Ef einhver hefur orðið þeirra var, vinsamlegast skilið þeim á sama stað eða hringið ísíma 847 8437 Bíll til sölu Til sölu Nissan Patrol Luxury Árgerð 200133 dekk kastaragrind ofl. Upplýsingar I S.8916234