Feykir - 08.06.2005, Qupperneq 6
6 Feykir 22/2005
Einar E. Einarsson skrifar
Virkjum fyrir
Skagfirðinga
Á undanförnum misser-
um hefur oft verið rætt
um þá virkjunarkosti sem
Skagfirðingar hafa, kosti
þeirra og galla og hverj-
um þessar virkjarnir ættu
að þjóna, verði þær að
veruleika.
Ef horft er til baka þá verður
ekki annað sagt en að stefnuleysi
hafi einkennt þessi mál öll, og
þá sérstaklega af hálfu
Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
í tíð meirihluta samstarfs
Framsóknar- og Sjálfstæðis-
flokks var mikill vilji hjá báðum
flokkum að þessar virkjanir
yrðu að veruleika. Því til
stuðnings má t.d. benda á grein
sem Gísli Gunnarsson,
þáverandi og núverandi forseti
sveitarstjórnar, skrifaði í nýtt
fréttabréf fyrir Sveitarfélagið
Skagafjörð. Þar taldi hann
þetta vera “eitt stærsta
byggðarmál Skagfirðinga, sem
skipta myndi verulegu máli
varðandi atvinnumál og
almenna uppbyggingu á
svæðinu”.
í framhaldiafþeirri umræðu
senr þá var uppi var stofnað
félagið Héraðsvötn ehf., sem
síðan fékk virkjunarréttinn í
Villingarnesi.
Skoðanir beytast
í upphafi núverandi
kjörtímabils var ljóst að
skoðanir höfðu breyst og var
samstaða Sjálfstæðisflokks og
Vinstri Grænna algjör um að
selja hlut Sveitarfélagsins í
Héraðsvötnum ehf., og taka
hana um leið út afAðalskipulagi
Skagafjarðar.
Við fúlltrúar í Fram-
sóknarflokknum vorum á móti
þessu og lögðum til að
Sveitarfélagið seldi ekki sinn
hlut og margbentum á í bæði
ræðum og með bókunum, (t.d.
bókun í Byggðaráði 4.
september 2002), að hægt væri
að láta Skagafjarðarveitur ehfl,
fara með þennan hlut. En þeir
vildu hann burt frá öllu sem
tengdist Sveitarfélaginu og
samþykktu því að selja hann,
og unnu um leið að því að
hann yrði verðlaus þar sem
taka skildi virkjunina út af
Aðalskipulagi.
Og enn breytast
skoðanir
í nýlegu fréttablaði Feykis
skrifar fulltrúi Vinstri Grænna,
Gísli Árnason “að leggja þurfi
höfuðáherslu á að Skaga-
fjarðarveitur ehf., fari með
orkumál héraðsins og eignist
meðal annars aftur dreifikerfi
Rafmagnsveitu Sauðárkróks
ásamt því að koma að
orkuvinnslu eftir því sem tök
eru á”.
Þetta er hinsvegar ekki í
samræmi við það sem
meirihluti VG og D eru að
gera. Reyndar hafa þeir
samþykkt að Skatastaðavirkjun
verði inn á aðalskipulagi en þar
ferenginnmeðvirkjunarréttinn
í dag og algjörlega óljóst í hvers
höndum hann lendir.
Allir sem ég þekki vilja
hinsvegar segja eitthvað um
málið og telja mikilvægt að
heimamenn komi að
ákvarðanatöku um virkjunina
og hvað yrði um orkuna.
Á skrifum Gísla Árnasonar
fyrir hönd Vinstri Grænna sé
ég heldur ekki betur en að
hann vilji það líka, enda er
þetta hluti af orkumálum
Skagfirðinga.
Þrátt fyrir það hef ég ekki
orðið var við nokkra viðleitan
hjá meirihlutanum til að
stuðla að því að Héraðsvötn
ehf, sem í dag eru að
helmingshlut í eigu
Akrahrepps og Kaupfélags
Skagfirðinga á móti RARIK,
fái virkjunarréttin við
Skatastaði. Sveitarfélagið
Skagafjörður átti í upphafi
þessa kjörtímabils aðild að
þessu félagi en seldi sinn hlut.
Til framtíðar
Ég hef alltaf stutt það að
Skagfirðingar virkjuðu sér til
hagsbóta, en andvígur að
virkjað verði til að orkan fari
annað, því vissulega kosta
virkjarnir ákveðnar fórnir eins
og allar aðrar framkvæmdir.
Með hliðsjón af því sem áður
hefur verið sagt og fulltrúar
annarra stjórnmála flokka hafa
skrifað tel ég að virkja eigi og
þá að setja hag Skagfirðinga í
fýrsta sæti. Heildar rafmagns-
notkun allra fýrirtækja og
einstaklinga í Skagafirði er urn
12 MW eða tæpur helmingur
af því sem Villingarnesvirkjun
gæti framleitt. Hvernig væri
nú að öllum Skagfirðingum
yrði boðið að gerast aðilar að
virkjuninni og að farið yrði af
stað í samstarfi við RARIK um
að virkja Villingarnes og að í
ffamhaldinu fengu allir íbúar
Skagafjarðar rafmangið á
minnst 25% lægra verði en
almennt væri til neitenda á
íslandi. Eftir stæðu þá nokkur
ónotuð megawött sem nota
mætti til annarrar atvinnu-
uppbyggingar á svæðinu og
hamingjusamir Skagfirðingar
með sitt eigið raforkuver.
Einar E Einarsson
Fulltrúi Framsóknarflokks í
Sveitarstjórn Skagajjarðar
Hjónin Árni Egilsson og Þórdís Þórisdóttir voru mætt milli þeirra situr
Einar Gíslason frá Sauðárkróki.
Rauði krossinn í Skagafirði_
Dagur sjátfboðaliðans
Kiwanisklúbburinn Drangey
Björgunarsveitin styrkt
„Það má segja að með
þessari grillveislu séum
við að kalla okkar fólk
saman eftir veturinn og
umbuna því örlítið.
Þetta fólk innir af hendi
mikila vinnu í þágu
hreyfmgarinnar og því fannst
okkur í stjórn félagsins við hæfi
að sjálfboðaliðarnir kæmu
saman og við í stjórn félagsins
sæum úm vinnuna við matinn"
sagði Karl Lúðvíksson formað-
ur Rauðakrossdeildar Skaga-
fjarðar í lok vel heppnaðarar
grillveislu í húsakynnum
hreyfingarinnar á Sauðákróki á
dögunum.
Þarna mættu sjálfboðaliðar
og flokkstjórar ásamt mökum
og einnig fólk úr
ungliðahreyfingunni alls um 40
manns. Karl sagði að einn
mikilvægur þáttur í starfi
Rauðakrossdeildarinar sem þó
er ekki mjög áberandi væru
heimsóknir til fólks sem ætti í
erfiðleikum af ýmsum toga.
Þetta starf er unnið í samvinnu
þriggja aðila, þ.e. Rauða
krossins, kirkjunnar og
sveitarfélagsins Skagafjarðar.
í þessu eru um 15 manns á
vegum Skgafjarðardeidarinnar.
Markmiðið er að veita við-
komandi félagsskap og
uppörvun því í mörgum
tilvikum væri um fólk að ræða
sem væri einmana og ætti við
vandamál því tengdu að fást.
Karl sagði ánægjulegt hvað
margir hefðu gefið sér tíma til
að mæta þessa kvöldstund í
grillmatinn því þetta væri í fýrst
skipti sem stjórnin bryddaði
uppá þessu. ÖÞ:
Þær Ingunn Kristjánsdóttir 14 ára til
vinstri og Fjóla Sigríður Kristjáns-
dóttir 15 ára úr ungliðahreyfingunni.
Kiwansiklúbburinn
Drangey afhenti Skag-
firðingasveit 500 þúsund
króna styrk við athöfn á
Sauðárkrókshöfn á
sjómannadaginn.
Styrkurinn er ætlaður sem
stuðningur til kaupa á alhliða
björgunartæki sem getur ferðast
hvort heldur sem er á láði eða
legi.
Að sögn Eyþórs Einarssonar
forseta Kiwanisklúbbsins er
klúbbsfélagar ánægðir með að
geta orðið björgunarsveitar-
mönnum að liði við upp-
byggingu og eflingu á tækja-
búnaði sveitarinnar.
Aðal fjáröflun Kiwanis er
sala á auglýsingum í hina
mögnuðu símaskrá sem
klúbburinn gefur út og dreift er
í Skagafirði. Styrkurinn til
Skagfirðingasveitar var einmitt
af sölu auglýsinga í skrána og
þakka Kiwanisklúbburinn
Drangey auglýsendum stuðn-
inginn.