Feykir - 12.10.2005, Blaðsíða 1
Útíð I haust hetur seinkad kornskurði og mikil bleyta tefur kornskurð.
Nýja borholan í Hrollaugsdal
Nægt vatn fyrir hitaveitu
á Hofsósi og Sléttuhlíð
Staðfest hefur verið af rannsóknaraðilum að það vatn
sem er fundið í Hrollleifsdal, nægi til að hita upp
Hofsós og bæina á leiðinni þangað. Þar að auki þykir
svæðið vænlegt til frekari vatnsvinnslu ef þarf.
Þetta er meðal þess sem liggur
fyrir eftir rannsóknir Islenskra
orkurannsókna á nýrri
borholu Skagaíjðarvarveitna
við bæinn Bræðrá í
Hrollaugsdalur. Að sögn Páls
Pálssona Það er mjög líklegt
að lögð verði hitaveita til
Hofsóss, en hvað mikið lengra
er óvíst.
Hofsós er eitt þeirra þorpa
sem enn hafa ekki fengið
hitaveitu. íslenskar
orkurannsóknir hafa annast
rannsóknir vegna leitarinnar
undir stjórn Kristjáns
Sæmundssonar, jarðfræðings
Holan sem um ræðir er nú
rúmlega 900 m djúp og í henni
tvær heitar æðar, önnur
rúmlega 60°C, hin rúmlega
80°C. Fjarlægð frá borstað til
Hofsós er urn 13 km.
Ræktunarsamband Flóa og
Skeiða boraði holuna. Næst
liggur fyrir að prófa holuna og
mun þá skýrast betur hver
afköst hennar eru.
Með hitaveitu á Hofsósi
fækkar þeim byggðarlögum á
landinu sem enn hafa ekki
fengið hitaveitu en ríkissjóður
ver árlega um einum milljarði
króna til niðurgreiðslu á
húshitungarkostnaði á
köldum svæðum.
Næstu skref er að fá endanlega
skýrslu frá ÍSOR og gera
kostnaðaráætlun sem tekur
tillit til þess rnagns og hita sem
er nú til staðar. Eftir að það
tekurstjórnSkagaíjarðarveitna
ehfákvörðun um framhaldið.
Kornbændur í Skagafirði___
Uppskorið við erfiðar
aostæður
„Það var einstakt lán að
Þreskir ehf. skyldi kau-
pa fjórhjóladrifna vél í
sumar og gott að stjórn
félagsins tók ekki mark á
mér og öðrum sem voru
því andvígir," segir Gun-
nar Sigurðsson, bóndi á
Stóru Ökrum í Akrahrep-
pi, sem var að þreskja
kornakur við Dalsá á sun-
nudag.
„Það korn sem næst er
nokkuð vel þroskað og aðal
bleytan utaná því,” segir
Gunnar. Þetta gengur hægt,
jörðin er blaut og erfitt að
keyra vélina í akrinum en við
náum þó miklu af þessu korni
sem sáð var til.
Uppskeran endurspeglar
sumarið og er eitthvað undir
meðallagi. Aðal vandamálið
er hvað þetta er seinlegt; við
þurfum slá þennan massa al-
veg niður við jörð.” Gunnar
telur að við þessar aðstæður
taki þreskingin fjórum sinn-
um lengri tíma en í venjulegu
árferði.
Vestur Húnavatnssýsla
Billvalt
Bíll valt á þjóðveginum
skammt frá afleggjaran-
um að Laugarbakka að-
fararnótt síðastliðins
föstudags. Tveir voru í bí-
Inum og sakaði þá ekki.
ísing var á vegum á þess-
um slóðum þegar bifreiðin
hafnaði utan vegar og er
lúmsk hálka af völdum ís-
ingar talin megin orsök
óhappsins.
Slæmt tíðarfar setur pressu á slátrun hjá KS
2700 slátrað á dag
„Sláturhúsið hefur ekki verið
svona vel mannað í mörg ár
og þetta hefur gengið vel.
Það hefur verið talsverð
pressa á okkur að taka við
fé út af þessu slæma tíðar-
fari og við náðum að lé-
tta verulega þessari pressu
með að slátra á laugardeg
fyrir skömmu," sagði Ágúst
Andrésson sláturhússstjóri
á Sauðárkróki þegar hann
var inntur eftir hvernig hefði
gengið í haust.
Ágúst sagði að alls vinni
fjörtíu og átta útlendingar íslá-
turhúsinu í haust og þokkalega
hafi gengið að fá heimafólk
til starfa. Þetta er mesti fjöldi
erlendra starfsmanna sem þar
hefúr verið til þessa. Fólkið ke-
mur flest ffá Póllandi. Erlendu
starfsmennirnnir eru einkum
karlmenn nema hvað átta sæn-
skar stúlkur vinna á húsinu.
Að sögn Ágústs Andrés-
sonar er slátrað 2600-2700
kindum á dag . Ágúst segir
að vænleiki dilka sé um hálfu
kílógrammi hærri en á sama
tíma í fyrra og meira fari í
gæðaflokka E og U. ÖÞ
Almenn raftækjaþjónusta
- frysti og kæliþjónusta
- bíla- og skiparafmagn
- véla- og verkfæraþjónusta
—ICléwglll ehp—
Bílaviðgerðir
hjólbarðaviðgerðir
réttingar og sprautun
Æl
bílaverkstæði
Aðalgötu 24 550 Sauðárkrókur Sími 453 5519 Fax 453 6019
Sæmundargötu lb 550 Sauðárkrókur Sími 453 5141