Feykir - 12.10.2005, Síða 6
6 Feykir 38/2005
Undir Borginni - Rúnar Kristjánsson skrifar
Þióðleaur
skáldsKapur
Efldu þinn andlega forða,
opnaðu hin þjóðlegu ker.
Hugaðu að œttfrœði orða,
íslensk sé tungan í þér!
Allir þeir sem fást við
þjóðlegan skáldskap, vita eða
eiga að vita að orðum öllum
má skipta í þrjá flokka eftir
samstöfufjölda. Þar á ég við
einliði, tvíliði og þríliði. í
sjálfu sér er þar ekki um flókið
mál að ræða. Hvert orð með
aðeins eina samstöfu nefnist
einliður, tvíliður er með tvær
samstöfur, þríliður þrjár. Þau
orð sem gerð eru úr fjórum
samstöfum eru tvöfaldir
tvíliðir,en fimm samstöfu orð
eru samsett úr tvílið og þrílið.
Á sama veg flokkast þau orð
sem eru lengri en þetta.
innan einliðaættarinnar
getum við staðsett stúforð,
hvikorð, einkvæða forliði,
hrynbrjóta og sporðliði, en
hvernig slíkt fer í ljóðum
er álitamál í mörgu. Þó eru
hrynbrjótar yfirleitt hrein
og bein braglýti, enda ekki
nefndir svo að ástæðulausu.
Tvíliðaættin er aðalháttur
íslenskrar tungu eins og
flestir vita sem spá í orð og
orðnotkun. Frumliðir tvíliða
þykja oft fegurstir í ljóðmáli,
en forskeyttir tvíliðir eru
ekki eins liprir, enda eru
þeir taldir með stæltum
tvíliðum. Þá er átt við tveggja
stofna tvíliði. Þeir skiptast
í tvo flokka, röddunga og
samhljóðunga sem hafa sín
sérstöku einkenni. Heldur er
þar um stirða liði að ræða.
Frumliðabræður eru
tvíliðir sem verða til úr
tveimur einliðum. Þeir
geta komið ágætlega út í
kveðskap eins og dæmin
sanna. Sporðliðir tvíliða eru
endingarorð og hafa þar af
leiðandi engan stofninn. Þeir
skiptast í tvo flokka, fasta og
lausa sporðliði. Ekki er mikil
prýði að þeim og ætti að
varast að nota þá mikið.
Tvíkvæður forliður er
visst vandamál í kveðskap og
best að hann sé sem lægstur
og fylgi ekki rómhæð eða
áherslumarki ( hákveðu).
Tvíliður sem kemur t.d. aftan
við þríliðar-hendingu heitir
sniðorð. Þegar slíkt gerist í
hendingum er talað um að
þær séu sneiddar.
Þríliðaættin hefur sína
frumliði og geta þeir farið
vel í skáldamáli, jafnvel
sem endarím. Þeir eru
einstofnungar.þ.e. aðáherslan
hvílir á einni samstöðu og
tvær aðrar eru áherslulausar.
Forskeyttir þríliðir greinast
eins og stæltir tvíliðir, í
röddunga og samhljóðunga.
Áherslan dreifist í slíkum
tilfellum eins og með tvíliðina.
Frumliðabræður þríliða fara
vel í kveðskap og eru ekki
ósvipaðir frændum sínum
í tvíliðaættinni. 1 viðbót við
nefnda þríliði sem eru allir
einstofna eru bæði til tví og
þrístofna þríliðir. Þeir eru
stæltir og hafa dreifða áherslu.
Áhersluatkvæðið er þá aftast.
Tvístofnungar þríliða eru
ýmist samstofnungar eða
gisstofnungar. Það kemur
fýrir að gisstofnungar missa
ættareðli sitt í kveðskap og
stundum er það hið besta
mál. Sama getur gilt um
þrístofnunga. Sporðliðir
þríliða eru svipaðir og aðrir
sporðliðir, sjaldnast til
fegurðarauka í máli. Tíningar-
þríliðir eru að jafnaði
þróttlausir og þríkvæðir
forliðir fara auðvitað ekki vel
í ljóðmáli.
Málsmeðferð getur alltaf
verið fjölbreytt og sumir
hafa lag á því að leika sér
með orðaættirnar í kveðskap
nokkuð jöfnum höndum.
Þó mun tvíliðahneigðin vera
sterk í flestum hagyrðingum
og oftast eru endarímsorð
einliður eða tvíliður.
Illugadrápa eftir Stephan
G. er þó öll ort með þríliðum
í endarími og er þar hver
hending annarri betri.
Kvæðið rís hærra og hærra
allt frá byrjun og þriðji kaflinn
fer upp í efsta bláhimin
skagfirskrar bragsnilldar.
„Illugi á söguna stutta en göf-
ug-a.“ Margur lifir lengur
en yngsti sonurinn frá Bjargi
og vill þó oft vanta mikið á
göfugleikann í lífi manna. En
saga þarf ekki að vera löng til
að verða göfug.
Nokkur fleiri kvæði eru til
með þríliða-endarími, en mér
fmnst Illugadrápa hápunktur
þeirrar viðleitni. Ég hvet
hinsvegar alla þá sem fást við
kveðskap að gefa gaum að
þeim möguleikum sem felast
í notkun þríliða. Þeir hafa ef
til vill verið nokkuð vannýttir
til þessa í braglist. Tvíliðirnir
hafa löngum haft vinninginn
þar sem skiljanlegt er. Þó
notkun þríliða í endarími sé
auðvitað vandasöm ef vel á
að fara, felst áskorun í því að
glíma við þá og menn eiga að
taka slíkri áskorun hiklaust
og þróa braglistina áfram eins
og frekast er kostur.
Nýtast má það nýliðum
að ncera sig á fríliðum.
En traust er betra að tvíliðum
og tign í sumum þríliðum.
* **
Rúnar Kristjánsson
Sveitarstjórnarmál í Skagafirði
Yfirlýsmg
Vegna þeirrar stöðu sem uppi er í sveitarstjórn
Skagafjarðar vilja fulltrúar Framsóknarflokksins í
sveitarstjórn koma eftirfarandi á framfæri:
Fyrir síðasta sveitarstjórn-
arfundi lá fýrir tillaga frá Gísla
Gunnarssyni forseta sveitar-
stjórnar um uppsögn Ársæls
Guðmundssonar sveitarstjóra.
Eins og kunnugt er var
afgreiðslu tillögunnar frestað.
Búist var við að yrði sú tillaga
samþykkt kæmi fram vantraust
á Gísla Gunnarsson forseta
sveitarstjórnar og hafði hann
beðið um hjásetu framsókn-
armanna við þá tillögu.
Komi til þess að tillaga Gísla
Gunnarsson um starfslok
sveitarstjóra komi til atkvæða í
sveitarstjórn munu fulltrúar
Framsóknarflokksins sitja hjá
við atkvæðagreiðsluna. Ákv-
örðun um uppsögn sveitar-
stjóra verður algjörlega á
ábyrgð Sjálfstæðisflokksins.
Verði í framhaldi af þeirri
atkvæðagreiðslu flutt vantraust
á forseta sveitarstjórnar munu
fulltrúar Framsóknarflokksins
ekki sitja hjá nema til komi
skrifleg yfirlýsing frá Sjálf-
stæðisflokknum um framgang
eftirtalinna mála:
1. Virkjanir sem rcett hefur
verið um verði teknar inná
aðalskipulagstillögu.
2. Iðnaðarlóðir í Viðvíkursveit
verði tryggðar inná aðalskipu-
lag.
3. Sett verði í gang vinna til að
kanna alla tnöguleika á því að
klára Árskóla m.a. með því að
kanna möguleika á einka-
framkvcemd.
4. Verkefnið “Hús frítímanns”
verði endurvakið.
Ekki hafa verið sett skilyrði
sem snúa að legu Þverár-
fjallsvegar inn í Sauðárkrók
eða um staðsetningu sorp-
urðunarsvæðis.
Framsóknarflokkurinn
mun ekki leita eftir myndun
nýs meirihluta við núverandi
aðstæður í sveitarfélaginu
Skagafirði, en lýsir vilja til
viðræðna allra flokka um
hvernig stjórna beri sveitar-
félaginu út kjörtímabilið.
Fulltrúar Framsóknarflokks
í sveitarstjórn Skagafjarðar
HEILBRIGÐISSTOFNUNIN SAUÐÁRKRÓKI AUGLÝSIR
Sérfræðikomur
í október og nóvember
Vika Nafn Sérgrein
42 Haraldur Hauksson æöaskurólæknir
43 Anna Helgadóttir kvensjúkdómalæknir
45 Bjarki S. Karlsson bæklunarskurðlæknir
46 Edward Kiernan kvensjúkdómalæknir
47 Siguróur Albertsson alm. skurölæknir
Tímapantanir í síma 455 4022.
Heilbrigðisstofnunin
Sauóárkróki