Feykir - 12.10.2005, Blaðsíða 7
38/2005 Feykir 7
Guðmundur I/altýsson skrifar_
Vísnaþáttur 415
Heilir og sælir lesendur góðir.
Ágætt að byrja þáttinn okkar að
þessu sinni með þessum sannlei-
ka Aðalsteins Valdimarssonar frá
Strandseljum.
Margur enn af ágirnd kvelst
ekki lífskjör jafnast.
Flestallt sem aðfémœtt telst
á fáar hendur safnast.
í síðasta þætti fór ég þess á leit við
lesendur að fá vísur eftir Þormóð
Pálsson, hjá þeim sem þær kyn-
nu. Hef ég nú fengið ágætt bréf
frá Skagfirðigi, sem reyndar er
nú búsettur fyrir sunnan. Hefur
hann áður látið í ljós ánægju með
þáttinn og oft sent vísur til birtin-
gar. Bestu þakkir fyrir það.
Þrjár vísur sendi hann mér nú
eftir Þormóð; er reyndar ein af
þeim lokavísa síðasta þáttar. Ekki
veit ég um hverja Þormóður yrki
svo en vísan mun vera gerð eftir
1965.
Eftir liðið ceskuvor
eydd og klakasorfttm,
eru beggja brœðra spor
burtu tnáð og horftn.
Önnur vísa kemur hér eftir Þor-
móð.
Velt er þúfti, vantar stein,
verði fornra kynna.
Standa fjöllin eftir ein
œskuvina minna.
Skagfirðingurinn Kristán Árna-
son er höfundur að næstu vísu.
Breytnina að vattda er vert
vegsemd af því grœðist.
Enginn getur að því gert
út afhverjum fœðist.
Hinn snjalli prestur og hagyrð-
ingur í Hveragerði, Helgi Sveins-
son, mun hafa ort þessa.
Geislar skarta ránar rönd
rökkrið svarta brettnur.
inn í hjartans leyni lönd
Ijósið bjarta rennur.
Oft er gaman að alls konar glett-
um er fara manna á milli ef til-
efni gefast og taka þá hagyrðingar
oft þátt í gríninu. Eitt sinn var
til frásagnar á Blönduósi að un-
gur og myndarlegur maður þar
úr kaupstaðnum, sem reyndar
hafði að sumra áliti þann galla
að hafa misst útúr sér talsvert af
tönnunum, brá sér á dansleik og
mun eftir því sem sagan segir hafa
komist í kvnni við heimasætu úr
Svínadal. Án þess að nokkuð væri
vitað nánar um það næturævintýri
barst sagan til Blönduós ogTómas
R. Jósson fékk efni í eftirfarandi
vísu til unga mannsins.
Kauptu íþiggóm,
þá er katmski von,
að konurþér bjóði á ástarfund.
Hann vill ekki
tanttlausan tengdason
tignarbóndinn á Syðri Gruttd.
Okkar góði vinur og ágæti ha-
gyrðingur, Þórarinn Þorleifsson,
sem nú er nýlátinn, heyrði vísu
Tómasar og taldi rétt að gera smá
athugasemd við skeyti það sem
sonur hans hafði fengið.
Ef unga fljóðið eignast mann
œtt’ann að blessa þeirrafuttd
og alls ekki skoða upp í hann
óðalsbóndinn á Syðri Grund.
Nokkru síðar er svo háttaði til hjá
Tómasi að kona hans dvaldi fjarri
heimili þeirra um skeið, sendi
hann unga manninum eftirfaran-
di beiðni.
Konulaus ég kúri eintt
króktta setm í valnum.
lánaðu tnér langi Sveinn
læri úr Svínadalnum.
Fljótt mun vísan hafa borist fram í
Torfalækjarhrepp og eftir að þan-
gað var komið mun Óskar Sig-
urfinnsson, bóndi í Meðalheimi,
mágur verðandi brúðguma, hafa
ort svo.
Þó konuleysi, kuldi og sút
karlmenn nái að þvinga.
Þau eru lítið lánuð út
lœri Svíndœlinga.
Var nú allt kyrrt um sinn en eftir
að þau tíðindi spurðust að hinn
ungi Sveinn hefði sést með annari
konu orti Tómas.
Hefur eignast efni ífrú
ungurfríður halur.
Harmi lostinn hnípir ttú
hálfur Svínadalur.
Ekki fór svo illa sem á horfðist
og Óskar í Meðalheimi gat með
næstu vísu huggað flesta aðstan-
dendur þessa harmleiks.
Bráðutn gróa gömul mein
gleymir tneyja halttum.
Þó að einhver syrgi Svein
sér það ekki á dalnutn.
Gaman finnst mér að þessum
glettum og væri gaman að ná frá
eldra fólkinu einhverju af því sem
það kann áður en það verður um
seinan.
Miðað við núverandi tiðarfar er
tilvalið að birta þessa ágætu haus-
tvísu Rósbergs G. Snædal.
Blakta á hœðutn héluð strá
hemaflœði og tjarnir.
Vilja mœða veikutn á
vetrarnœðingarnir.
Að lokum langar mig til að vita
hvort hægt er að fá frá lesendum
upplýsignar um hver er höfundur
eftirfarandi vísu.
Mörg er lýsing manna skráð
en tnín er vísan þessi.
Heilladísir Ijóss um láð
leið þér vísi og blessi.
Verið þar með sæl að sinni.
Guðtnundur Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi.
S: 452-7154.
íþróttafréttir
Körfuknattleikur 1. deild karla
Tindastóll
Sigur í fyrsta leik
Undastóll sigraði
Stjörnuna í fyrstu
umferð 1. deildar karla
í körfubolta á sunnu-
daginn. Leikið var í
Síkinu og bar leikur
Stólanna þess merki
að um fyrsta leik liðs-
ins var að ræða í haust.
Stjörnumenn komu
sprækir til leiks og komust í
4-11 á meðan lítið gekk hjá
heimamönnum í byrjun
leiks. Svavar og Haywood
komu Stólunum inn í
leikinn með ágætum skotum
auk þess sem Helgi Rafn
hleypti lífi í varnarleikinn
eins og honurn einum er
lagið. I öðrum leikhluta sigu
heimamenn framúr og náðu
9 stiga forystu. Leikmenn
Stjörnunnar voru þó ekki af
baki dottnir og minnkuðu
muninn í eitt stig fýrir hlé.
Staðan í leikhléi 33-32.
Lið Tindastóls spilaði
fínan körfubolta í þriðja
leikhluta og völtuðu yfir
Stjörnuna. Stólarnir gerðu
16 fýrstu stigin í
leikhlutanum og gerðu í
honum 27 stig á meðan
Stjarnan gerði 6. ísak og
Kiddi Friðriks kontu sterkir
inn og leikgleðin í fýrirrúmi.
Hvað eftir annað stálu
Hvammstangi
Síðasta laugardag var
haldið svokallað Æsku-
sund á Hvammstanga
en þar etja kappi í þrem
aldursflokkum sund-
fólk frá fjórum héraðs-
samböndum.
Til leiks mætti sundfólk
frá UMSB, HSH, UMSS og
Sundfélaginu Húnum, alls
um 50 keppendur. Keppnin
fer þannig frarn að tvær
stúlkur og t\'eir strákar keppa
lýrir hvert héraðssamband í
hveijum aldursflokki.
strákarnir boltanum af
leikmönnum Stjörnunnar
sem vissu vart hvort þeir
voru að koma eða fara.
Staðan 60-38 eftir þriðja
leikhluta.
Leikur Stólanna umpól-
aðist hins vegar í íjórða
leikhluta og virtist hreinlega
sem leikmenn hefðu klárað
bensínið í leikhlutanum á
undan. Stjarnan pressaði og
hvað eftir annað mistókst
heimamönnum að korna
boltanum yfir ntiðju á
tilskildum tíma og Stjarnan
gerði ódýrar körfur. Þegar
unt 5 mínútur voru eftir að
leiknum var munurinn
kontinn í 10 stig og áfram
héldu leikmenn Stjörnunnar
að minnka muninn. Kiddi
tók þá tvær 3ja stiga körfur
með skömmu millibili og
minnkaði pressuna. Að
lokum fór svo að Stólarnir
náðu að auka forskotið og
sigruðu nökkuð örugglega,
75-64, þrátt fýrir nokkurt
kæruleysi undir lokin.
1. DEILDIN ÍKÖRFUBOLTA
íþróttahúsid á Sauðárkróki
TINDASTÓLL 75
STJARNAN 64
Stig Tindastóls: Svavar23, Haywood
21, Kiddi 11, ísak 7, Helgi Rafn 7, Bjarni 4
og Balclur 2.
Úrslitin urðu þau að
Borgfirðingar sigruðu nteð
miklum yfirburður hlut alls
357 stig. í öðru sæti urðu
Skagfirðingar með 173 stig,
Sundfélagið Húnarhlaut 161
stigog Snæfellingar 134.
Keppendur Sundfélags-
ins Húna stóðu sig með
ágætum, en þar sem Húnar
áttu ekki keppendur í öllum
flokkum urðu stigin ekki
fleiri en raun bar vitni.
Heimild: Húnahornið
Stúlkurnar
byrja vel
Tindastólsstúlkur fengu
lið Fjölnis frá Reykjavík í
heimsókn á laugardag-
inn í fyrstu umferð 2.
deildar kvenna í körfu-
bolta.
Fjölnisstúlkur reynd-
ust ekki mikil fýrirstaða
að þessu sinni en Tamikka
Williams var að spila í fýrsta
sinn með Stólunum og átti
frábæran leik, gerði 33stig,
tók 15 fráköst og stal 9
boltum auk þess að verja 1
skot. Lokatölur urðu Tinda-
stóll 74 Fjölnir 33.
Stig Tindastóls: Tamikka 33, Sig-
rún 12, Sigríður 9, Brynhildur 6,
Þóra6og ÞórunnB.
Skákfélag
Sauðárkróks
íslandsmót Skákfélaga
fór fram í Reykjavík um
síðastliðna helgi og hefur
mótið aldrei verið fjölmen-
nara og sterkara, en fjölmar-
gir erlendir skákmeistarar
tóku þátt að þessu sinni.
Alls sátu um 400 manns
að tafli að þessu sinni. Skák-
félag Sauðárkróks sendi
að venju lið í fjórðu deild
en þar voru 30 sex manna
sveitir.
Að loknum fýrri hluta
keppninnar er Skákfélagið í
12 sæti, sem er mjög viðu-
nandi árangur. Bestum
árangri einstakra keppenda
náðu Guðmundur Gun-
narsson sem telfdi á fjórða
borði og Davíð Örn Þor-
steinsson, sem telfdi á sjötta
borði, en báðir fengu þeir
þrjá vinninga af fjórum
mögulegum.
Tekur Eyjólfur við
landsliðinu?
Senn hætta að öllum lík-
indum félagarnir Ásgeir og
Logi sem þjálfarar íslenska
fótboltalandsliðsins. DV
segir frá því að heyrst haft að
KSÍ hafi áhuga á að Eyjólfur
Sverrisson taki við.
Æskusundið
smáauglýsingar Sendid smáauglýsingar til frírrar birtingar á ieykir@krokur.is
Flóamarkaður
Flóamarkaðurinn verður fyrstu
helgina ínóvember.
Nánar siðar.
Kvenfélag Sauðárkróks.
Tapað - fundið
Bíllykill afSubaru tapaðist á
Sauðárkróki eða Varmahlíð!
Vinsamlega látið mig vita efþið
finnið hann i síma 8612528
Til sölu
Suzuki Grand Vitara árgerð 1998
tilsölu. Litur grásans, ekinn 115
þúsundkm. Mjög velmeð farinn.
Upplýsingar í sima 899 4016.
Jón Grétar.
Hjól í óskilum
Hvítt og blátt kvennmannsreiðhjól
tapaðist við Hásæti 5 á
Sauðárkróki fDvalarheimili
aldraðra). Finnandi hafi samband
við Tamöru.