Feykir - 28.12.2005, Qupperneq 5
48/2005 Feykir 5
um lagningu hitaveitu og rörs
fyrir ljósleiðara á bæi í Blöndu-
hlíð. Þá lét Jón Karlsson af
embætti formanns í Öldunni
stéttarfélagi eftir langt og far-
sælt starf en við tók Þórarinn
Sveinsson.
• Líf og íjör var á skíðasvæð-
inu í Tindastóli. Vegna snjóleys-
is á Isafirði var unglinga-
meistaramót íslands flutt í
Skagafjörðinn og með smávegis
tilfærslum og söltun á snjó tókst
að halda gott mót. Til gamans
má geta að Skíðaviku á Isafirði
var breytt í tónlistarhátíðina
Aldrei fór ég suður.
• Karlakórinn Heimir og
bítlahljómsveitin Hljómar
leiddu saman hesta sína í
íþróttahúsinu á Sauðárkróki við
góðar undirtektir en yfir 700
gestir mættu á tónleikana.
• Ársæll Guðmundsson, sveit-
arstjóri í Skagafirði, keypti sér
Yamaha götuhjól á netinu
prufukeyrði það í veðurblíð-
unni fyrir páskana. Bæjarstjór-
inn á Blönduósi sprakk og við
tók nýr meirihluti H-lista og
Sjálfstæðisflokks. Fulltrúar Á-
lista, Bæjarmálafélagsins
Hnjúka voru sakaðir um
trúnaðarbrest af fyrrum sam-
starfsmönnum hjá H-lista.
“Tylliástæða”, sögðu bæjar-
stjórnarmenn Á-listans.
• Sveitarstjórnarmál í Skaga-
firði komust aftur í kastljósið
þegar Bjarni Maronsson lýsti
því yfir að fúllkomnninn
trúnaðarbrestur væri á milli
hans og Gísla Gunnarssonar,
odd\-ita og formanns sveitar-
stjórnar. Ástæðan var að Gísli
taldi Bjarna vanhæfan til þess að
taka ákvörðun um hvar
Þverárfjallsvegur skyldi liggja
inn á Sauðárkrók og meinaði
honum þátttöku í atkvæða-
greiðslu um málið.
APRIL
Seldu afa og ömmu
Góðir sölumenn eru sagðir geta
selt ömmu sína. Sorin Lazar og
Steinun Finnsdóttir bættu um
betur og seldu bæði afa og
ömmu. Reyndar var um að
ræða samnefht hlutafélag, sem
á Hótel Tindastól á Sauðárkróki.
Kaupendur voru Ágúst
Andrésson og fleiri.
• Sæluvika Skagfirðinga hófst
að venju seinnihluta apríl og var
margt til skemmtunar.
Geirmundur Valtýsson lék fýrir
dansi með hljómsveit sinni 44.
árið í röð og Birgitta Haukdal
fórfxemstíflokkitónlistarmanna
er komu ffam á sérstakri
tónlistarveislu fýrir börn og
unglinga.
Hafís
Hafís gerði vart við sig úti fýrir
Norðurlandi. Um var að ræða
rekís úr Grænlandsjökli .
Meðal annars rak gíðarstórann
borg-arísjaka inn á Húnaflóa.
Blönduósingar ráðgerðu að
koma á laggirnar sérstöku
hafíssetri en Feykir sagði í
yfirfýrisögn að borgarísjakinn
væri tilkomumikil sjón. Vegna
tæknilegra mistaka festist
yfirfýrirsögnin á sama stað í
næstu tveimur tölublöðum og
þegar Ingibjörg Hafstað,
bóndi í Vík, var kjörin
formaður Búnaðarsambands
Skaga-fjarðar fyrst kvenna, var
því slegið upp í Feyki með
eftirfarandi hætti: Tilkomu-
mikil sjón: Fyrsti kven-
formaður Búnaðarsamband-
sins.
• Methagnaður var tilkynntur
á aðalfúndi Kaupfélags Skag-
firðinga en hann nam rúmum
1,2 milljörðum eftir skatta.
Þórólfur Gíslason, kaupfélags-
stjóri, sagði á aðalfúndinum að
það flokkaðist undir tilræði við
ffamtíðarhagsmuni Skagfirð-
inga að veita öðrum en heima-
aðilum virkjunarrétt fallvatna í
Skagafirði.
• Stórsýning norðlenskra
hestamanna Tekið til kostana
hófst í Reiðhöllinni Svaða-
stöðum á sumardaginn fýrsta
og hófu undirbúning á sáningu
á korni í lok april.
• Grásleppuvertíðin fór illa af
stað. Verð á mörkuðum voru
lág og veiðin léleg framaf.
• Veiðifélag Víðidalsár og
Stefán Sigðurðsson undirrituðu
tímamótasamning um leigu á
Víðidalsá fýrir 52 milljónir
króna á ári. Samningurinn
tekur gildi á árinu 2006. Hann
vakti mikil viðbrögð og hafði í
för með sér hækkun á öðrum
laxveiðiám.
Tíðindi í orkumálum
Annar stórsamningur var
undirritaður um svipað leyti í
Húnaþingi þegar Blönduósbær
seldi Rafinagnsveitum ríkisins
hitaveitu sína fýrir 430 milljónir
króna. Stærstum hluta
andvirðisins var varið til lækkun
skulda.
• Iðnaðarráðuneytið átti fundi
með fulltrúum sveitarfélaga á
Norðurlandi þar sem rædd
voru áform kanadíska álrisans
Alcoa um byggingu álvers í
landsfjórðunginum. Atvinnu-
málafélagið Skagafjarðarhrað-
lestin var stofnuð á Kaffi Krók
en eitt af markmiðum félags-
ins var að nýta orku ffá
jökulsánum í Skagafirði til
uppbyggingar atvinnu í heima-
byggð.
• Sjómannadeginum var
fagnað um allt land. Útgerð og
vinnsla sjávarafúrða er
meginstoð atvinnulífs á
Skagaströnd og formleg vígsla
nýs björgunarskips setti svip
sinn á hátíðarhöld. Skipið hlaut
nafnið Húnabjörg.
Mikið um að vera
á 17. júní
Þjóðhátíðarhelgina var
sumarhátíðin Bjartar nætur
haldin í tínunda sinn í Vestur
Húnavatnssýslu en þar var
meðal annars boðið upp á hið
vinsæla og sérstæða fjöru-
hlaðborð í Hamarsbúð.
Skagfirðingar tóku á móti
vélhjólamönnum alls staðar
af að landinu um sömu helgi
og söngleikurinn Hei þú var
frumfluttur í Reiðhöllinni
Svaðastöðum.
• Ársæll Guðmundsson hlaut
þá upphefð að leiða 7 km. langa
hópreið 300 vélhjólamanna ffá
Varmahlíð til Sauðárkróks á
föstudagskvöldinu 17. júní. Á
Sunnudeginum 19. júní
afhjúpuðu vélhjólamenn minn-
ismerki um þá sem látið hafa
lífið í mótorhjólaslysum und-
anfarna áratugi. Minnismerkin
var valin staður í Varmahlíð og
stýrði Gísli Gunnarsson at-
höfninni.
• Á Hvammstanga sá hesta-
mannafélagið Þytur um
glæsileg hátíðarhöld í tilefni 17.
júní.
• I Svínavatnshreppi og nær-
sveitum gengu bændur til
samstarfsviðfjarskiptafýrirtækið
e-Max um uppsetningu há-
hraða örbylgjunets í hreppnum.
Ákvörðun um þetta var tekin á
fjölmennum fundi í félags-
heimilinu Dalsmynni.
• Feykir skýrði ffá niður-
stöðum vöðvamats á slátur-
húsum á landsvísu en
rannsóknir leiddu í ljós að þrjú
húnvetnsk sauðfjárbú voru
hæst yfir landið hvað varðaði
einkun yfir landið fýrir
vöðvamat.
• Gróður var seinni til en
undanfarið. Feykir fjallaði um
málið og kenndu sérffæðingar
ffostnóttum í maí og lang-
varandi úrkomuleysi um lélega
sprettu í júní. Ráðunautar veltu
fýrir sér hvort þetta kynni að
koma niður á kornræktinni.
» Síðari hluti fréttaannáls 2005 birtist
í Feyki sem kemurút 4. janúar 2006.
Magnús H. Gíslason tók saman_
Úr handraðanum
Þegar verslunin á Djúpuvík á
Ströndum hætti rekstri var
haldið uppboð á vöru-
leyfunum. Meðal ntargra
uppboðsgesta var bóndi
nokkur, níu barna faðir. Hann
keypti, með fleiru, aflangan
kassa, án þess að vita um
innihald hans. Opnar hann nú
kassan með eftirvæntingu,
tekur upp úr honum hlut sem
hann heldur á lofti, en í
kassanum voru 12 brjósta-
haldarar.
„Hver andskotinn er nú
þetta?,” sp>T bóndi, sem aldrei
hafði séð slíkan hlut fýrr.
Uppboðshaldarinn segir þá.
„Æ, heyrðu góði, þetta er fýrir
konurnar maður, konurnar”.
„Hvar í fjandanum hengja þær
þetta á sig?”, spyr þá bóndi.
Uppboðshaldarinn svarar.
„En á brjóstin elsku vinur, á
brjóstin sín”. „Flestu taka þær
nú uppá”, segir bóndi, “ég hef
bara aldrei séð svona”.
Guðmundur Björnsson,
sýslumaður, gisti eitt sinn hjá
Brynjólfi bónda í Þverárdal,
sem þá bjó með ráðskonu.
Guðmundur gerði ráðskon-
una ólétta og ól hún honum
son. Skömmu síðar hitti
Bty'njólfur Guðmund og
spurði hvernig þetta hefði
atvikast. Sjálfur hcfði hann
verið búinn að reyna mikið við
ráðskonuna en ekkert gengið.
„Þetta skeði þegar hún færði
mér teið í rúmið um morg-
uninn”, svaraði Guðmundur.
„Er þá ekki sjálfsagt að láta
drenginn heita Theodór,”
sagði Guðmundur.
Pálmi Jónsson á
Sauðárkróki
Kveðið um
fylgistap
Fylgi Samfýlkingarinnar
mælist lágt í skoðanakönn-
unum. Nokkur umræða hefur
verið unt málið í fjölmiðlum.
Forntaður Samfýlkingarinnar,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
lætur engan bilbug á sér finna
og líkir stjórmálunum við
langhlaup.
Fylgistap Samfýlkingar-
innar varð Pálma Jónssyni,
verktaka á Sauðárkróki, að
yrkiseni en Pálmi er harður
sjálfstæðismaður.
Atkvœðum ereftirsvöng
en um sannleik þegir.
Ingibjörg er leggjalöng
hmghiaupið hún þregir.
Oftast hennar örm er trú
en Össuri þykir tniður
að Samfy’lkingin sækir nú
svona þrúðbeint niður.