Feykir - 18.10.2006, Page 7
38/2006 Feykir 7
Nafn: Sigurveig Dögg
Þormóðsdóttir
yfir dýralífsþáttum en
veit sjaldan af þeim
fyrirfram.
Besta biómyndin?
Úff, erfitt val. Sódóma
Reykjavík og Með allt á
hreinu eru náttúrulega
klassískir gullmolar.
Þær sem ég hef svo
horft oftast á á DVD eru
líklega Shrek I og 2 (ath.
á ekki börn og horfi því á
þær sjálfviljug), Pirates
of the Carrabian og Allt
ummóðurmína. OgLord
of the Ftings. Og Pulp
fiction. Og stuttmyndin
Síðastibærinn. Og...
Bruce Willis eða
George Clooney/Ange-
lina Jolie eða Gwyneth
Paltrow?
Brúsi minn og Angelina.
Þótt Goggi sé sætur
finnst mér hann alltaf
vera eitthvað svo rolule-
gur og Gwynet fýkur nú
bara burt með næstu
vindhviðu.
Hvað fer helst í inn-
kaupakörfuna sem ekki er skrifað á
tossamiðann?
Nóa-kropp, geisladiskarog góðarskáld-
sögur.
Hvað er í morgunmatinn?
Ab-mjólk, Havre fras, bananar og te úr
blóðbergsblöndu.
Uppálialds málsliáttur?
Anægja erauðibetri.
Hvaða teiknimyndapersóna liöfðarmest
tilþín?
Uhh líklega Shrek, eða nei, einu sinni sá
ég teiknimyndabækur sem voru sænsk-
ar og hétu Ensama mamman, dásamleg
einstæð móðirsem gatfengið brjálæðis-
kastútafbrauðmylsnu á bekknum, algjör
snilld.
Hvert ersnilldarverkið þitti eldhúsinu?
Kjötsúpan sem ég gerði ísíðustu viku, al-
gjört æði. Og súkkulaðilímónuostakakan
hennar Nigellu.
Hver er uppáhalds bókin þín?
Úffþær eru enn fleiri en myndirnar. Mér
hefurþó líklega lengst þóttvæntumsög-
una afDimmalimm.
Efþú gætir hoppað upp í flugvél og réðir
hvert hún færi, þá færirðu...
...til Nepal, eða Chile, eða Oslóar eða
Grímseyjar.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari
þínu?
Letiköstin.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari
annarra?
Þeirra letiköst, og svo þegar fólk er ekki
hreinskilið.
Enski boltinn - hvaða lið og afhverju?
Æji Jói í hvaða liði er Hemmi minn aftur?
Nú bara afþví Hemmi er flottastur!
Hvaða íþróttamanni / dómara hefurðu
mestar mætur á?
Kristínu Rós Hálkonardóttur sund-
drottningu og Þorsteini Ingvarssyni
upprennandi frjálsíþróttastjörnu. Sakna
Collina líka aðeins.
Heim íBúðardal eða Diskó Friskó?
Diskó, ekki spurning.
Hver var mikilvægasta persóna 20. ald-
arinnar að þínu mati?
Tjah, ég væri nú ekki hér hefði foreldra
minna ekki notið við svo ég segi Ingi-
gerður Kristín Jónsdóttir og Þormóður
Asvaldsson.
Ef þú ættir að dvelja aleinn á eyðieyju,
hvaða þrjá hluti tækirðu með þér?
Bækur, Jóa og sólarvörn. Ég meina Jóa,
sólarvörn og bækur. Eða Jói er nú samt
kannski ekki hlutur....
Hvað er best í heimi?
Knús.
Árgangur: 1972.
Fjölskylduhagir: Bý með Jóhanni Sig-
marssyni.
Starf/nám: Sjúkraþjálfari.
Bifreið: Það er hann Balli minn, árgerð
1996, gegnir ýmsum hlutverkum, allt frá
drossiu upp í vöruflutningabíl.
Hestöfl: Jájá örugglega.
Hvað er í deiglunni: Gosi, Gosi og aftur
Gosi, frumsýning á laugardaginn kl. 17:00
í Bifröst og allt á fullu við að redda þvi sem
þarfað redda fyrirstóra leiksýningu.
Hvernig hefurðu það?
Bara svona Ijómandi fínt, þakka þér fyrir.
Hvernig nemandi varstu?
Ja, það eru nú ekki mörg ár síðan pabbi
sýndi mér umsögn frá einum kennaranum
minum siðan í 9. bekk, mig minnir að þar
hafi staðið að ég væri draumanemandi...
ætli ég hafi ekki sofið svona mikið í timum
hjá honum blessuðum.
Hvað er eftirminnilegast frá fermingar-
deginum?
Einn frændi minn og jafnaldri vildi ekki
kyssa mig til hamingju svo ég kyssti hann
og sprengdi é honum vörina um leið.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir
stór?
Mér finnst ég ekki vera orðin stór enn, ég
á eftir að gera svo mikið. T.d. finna upp
beinlausan fisk, pott sem sýður ekki upp
úr, pillu við vefjagigtog margtfleira. Ann-
ars ætlaði ég að verða smiður alveg þan-
gað til ég ákvað að verða leiðsögumaður,
en hætti við það þegar mig langaði að
læra læknisfræði og hætti við það þegar
ég sá að sjúkraþjálfunin ætti líklega miklu
betur við mig.
Hvað hræðistu mest?
Að einn daginn verði hætt að framleiða
Nóa-kropp.
Hver var fyrsta platan sem þú keyptir (eða
besta)?
Sú fyrsta var Duran Duran - Arena.
Keypti hana svo aftur á geisladiski í
fyrra og komast að því að Simon er svo
hræðilega falskur á henni að ég get ekki
hlustað á hana. En hún er rosalega góð
í minningunni.
Hvaða lag ertu liklegastur til að syngja í
Kareókí?
I will survive, ekki spurning.
Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarp-
inu (fyrir utan fréttir)?
Horfi nú helst aldrei á fréttir en mátti alls
ekki missa af Magna i Rockstar super-
nova. Gilmore girls eru skemmtilegar og
nördarnir líka en ég má alveg missa af
einum og einum þætti. Límist líka niður
skáta- og íþróttafréttir
Skátamótá Sauðárkróki
„Krókur á móti bragði"
2Vf
SMHUUHÓPURtffli f
^ /k'. r
úl'íc rKjii itjj(ddk$
r
CgrifÁÆ’/ófa
-> Matarmikil veisla
að hætti heimamanna
-> Skelfilegur myrkraleiktif/j
aðfararnott laugardagí ; ]]
H
tuuturóxuuf
-> Rómantískt næturgaman
drengja & stúlkna.
Setningarathöfn
Smiójudaga 2006
ámsf i 'k
vnmnjaímlt
' , *-) DJ.Krókur
& róóramennirnir leika
fyrír dansi
-> Hrikalegí skemmtileg
skátastemmning á
Sauðárkróki
cJKgmuntíf spumuis
-> Drengir & stúlkur hvaöanæva
af að landinu koma saman
i stærsta knusi landsins!
* % uSflfftitn 2006
~(T" Spennandi keppni í skemmtilegum
’i þrautum í umsjá bjórgunarsveitanna
ýQxffxir á jnotí (jrajz)í
”|§ÉÍglk
Þú getur verid meó i stærsta
ævintýri ársins * smelltu þér
á www.foringinn.is og kynntu
þér málið - strax í dag!
Smiðjudagar eru umgjörð árlegs
alheimsmóts skáta á öldum Ijósvakans
og á netinu og eru I daglegu tali nefnd
JOTAogJOTI.
Nánarí upplýsingar: www.foringinn.is
Dagana 20.-21. október
nk. fer fram stórt skátamót
á Sauðarkróki. Mótið
er haldið í tengslum við
árlegt alheimsmót skáta
(JamboreeOnTheAir)
sem fer fram á öldum
Ijósvakans með aðstoð
fjarskiptatækja og
internetsins. Hérálandi
hefur mótið gengið undir
nafninu Smiðjudagar og
yfirskrift mótsins að þessu
sinni er "Krókur á móti
bragði".
Smiðjudagar eru umgjörð
utan um þetta alheimsmót þar
sem almenningi er gefin kostur
á því að kynnast skátastarfi en
þungamiðja dagskrárinnar
snýst að sjálfsögðu um skátana
sjálfa en að þessu sinni er
gert ráð fyrir þátttöku 100
skáta víðsvegar að af landinu.
Auk þess verður bömum og
unglingum á Sauðárkrókiboð-
in þátttaka og á laugardeginum
verður sérstök dagskrá fyrir
ijölskyldufólk og heimamenn.
Öllum nemendum í 8., 9. og
10. bekk verður boðið að taka
þátt í dagskrá ffá kl. 14:00 og
er mæting í framhaldsskólann
kl. 13:30. Öðrum íbúum
Sauðárkróks er boðið til
dagskrár kl. 16:00 sem nefnist
”Skáti í einn dag” þar sem
boðið verður upp á margvísleg
skemmtileg verkefni. Allir
bæjarbúar eru svo hvattir til
að taka þátt í kvöldvöku sem
hefst kl. 20:00 og fer fram í
framhaldsskólanum.
Smiðjudagar ferðast á
milli bæjarfélaga ár hvert
og er markmið þeima er að
efla og vekja trekari áhuga á
skátastarfinu í viðkomandi
bæjarfélagi og þetta árið hefúr
Sauðárkrókur orðið fyrir
valinu.
Iceland Express-deildin í körfuknattleik_
Stólunum spáð fallsæti
KKI hélt kynningarfund í
gærfyrir lceland Express
deildina í körfuknattleik.
Þar var kunngerð spá
forráðamanna liðanna
um niðurröðun liðanna að
loknu keppnistímabilinu.
Það eru forráðamaður,
fyrirliði og þjálfari hvers
liðs sem stóðu að valinu.
Samkvæmt spánni endar
Tindastóll í 11. sæti
deildarinnar og þar með
í fallsæti og þá er hinum
nýliðunum, Þór Þorlákshöfn
einnig spáð fallsæti.
Njarðvíkingum er aftur á
móti spáð íslandsmeistara-
titli, Keflvíkingum öðru
sæti, KR-ingum því þriðja
og lærisveinum Vals
Ingimundar í Skallagrími er
spáð fjórða sæti.
Að sjálfsögðu munu
Kristinn Friðriks og félagar
í Tindastóli gera allt til að
gera lítið úr þessari spá og
kannski ekki mikið verið að
marka leikina á undirbún-
ingstímabilinu.
Fyrsti leikur Tindastóls er
gegn Haukum í Hafnarfirði
nú á föstudagskvöldið og
fyrsti heimaleikurinn er
gegn Þór Þorlákshöfn nk.
þriðjudagkl. 19:15.
smáauglýsingar Sendið smáauglýsingar til frírrar birtingar á feykir@krokur.is
Hvolpar fást gefins
Þrir fallegir hvolpar fást gefins.
Upplýsingari síma 8919396 og
8929396
Píanó til sölu
Tilsölu YAMAHA pianó
Upplýsingarisíma
4536564/8626564
Hvellur
Dönsum dátt i Ljósheimum
laugardagskvöldið 21/10 kl. 22-02.
Hljómsveitin H. U. H úr
Húnavatnssýslu leikur fyrir dansi.
Látið ekki þetta tækifæri ónotað.
Fögnum vetri og mætum vel.
Greiðslukort ekki tekin
Stjórnin.
Múrverk
Múrari vill taka að sér vinnu í
haustog vetur.
Upplýsingar i síma 849 9431.
Bíll til sölu
Tilsölu erSubaru Impresa árg '98
Upplýsingar gefur Hörður
ís: 860 0041
Jeppakerra til sölu
Jeppakerra með fjárgrindum og
PZ135 sláttuvél til sölu.
Upplýsingar i sima 453 5630,
892 7472,453 7472 eða 892 7482
Til sölu
Tveirhestar, brúnskjóttur 7 vetra
og rauðblesóttur 5 vetra.
Upplýsingarí síma 4538106.