Feykir - 15.03.2007, Page 2
2 Feykír 11/2007
Slokkvilið Skagafjarðar
Æfa viðbrögð
vegna flugslysa
Slokkviliö Skagafjaröar
æfði um liðna helgi viðbrö-
gð vegna flugslysa. Æfingin
var bæði bókleg og verkleg
og fór verklegi þátturinn
fram við flugvöllinn í blíðs-
kaparveðri.
Fengnir voru
leiðbeinendur frá slökkviliði
Akureyrar og var æfingin
liður í undirbúningi fyrir
stóra flugslysaæfingu sem
verður þann 28. apríl n.k.
Sambærileg æfing var
haldin hér fyrir 6 árum. Á
verklegu æfmgunni voru
tvö bílflök klippt niður
og loks var færður eldur
að þeim. Slökkvibílar frá
Brunavörnum Skagafjarðar
og flúgvellinum réðust svo
til atlögu og slökktu eldinn.
Þátttakendur voru ffá öllum
slökkvistöðvum Brunavarna
Skagaljarðar þ.e. Hofsósi,
Varmahlíð og Sauðárkróki
ásamt starfsmönnum
Flugstoða á flugvellinum á
Sauðárkróki, alls 28 manns.
Leiðari
Virkjum okkur sjálf— héraðinu til góðs
Það er mikið rætt um að á Norðurlandi Vestra séfólksflótti,
neikvæður hagvöxtur og hvaðþetta heitir allt saman.
Það gleymist oft íþeirri umræðu að hér býr kraftmikið
fólk uppfullt afhugmyndum. Á íbúafundi sem haldinn
var á Blönduósi í síðustu viku kom fram að skortur er á
íbúðarhúsnæði í bænum, engin íbúð á söluskrá. Á sama
fundi mættu rúmlega 60 manns uppfullir afhugmyndum
bænum sínum til handa. Mérfinnstpersónulega svona
fundur afhinu góða og ekkert nemajákvæður. Með
fundinum er verið að gera alla bæjarbúa meðábyrga þegar
kemur aðframtíðaráformum bæjaryfii'valda. Eitthvað
sem við þurfum aðfara að huga að. Sjálfberum viðjú
ábyrgð á eigin lífi og gæfu og saman í einum samstilltum
hóp eru allir vegirfærir. Hér er gott að verafalleg
náttúra, kraftmikiðfólk og frábær menningarstarfsemi.
Hvað vilja menn hafaþað betra?Segjum við okkur sjálfá
hverjum degi; hér er frábært að búa. Mikið er ég ánægð
með að búa ekki einhvers staðar annars staðar. Ekki er
verra að þessarifullyrðingu fylgi breitt bros. Segjum þetta
líka við alla sem við tölum við. Notum gömlu góðu maður á
mann aðferðina. Efvið náum öll að lokka einn einstakling
eða hverfjölskylda eina fjölskyldu á svæðið þá verður þetta
fljótt að gerast. Hættum að gráta þá semfara ogfógnum
þeim mun hærra þeim sem koma eða snúa til baka.
Virkjum okkur sjálf- héraðinu okkar til góðs.
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is
8982597
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Feykir
Útgelandi:
Nýprent ehf.
Borgarflöt I Sauðárkróki
Póstfang Feykis:
Box 4,550 Sauðárkrókur
Blaðstjórn:
Árnl Gunnarsson,
Áskell Heiðar Ásgeirsson,
Herdis Sæmundardóttir,
Ólafur Sigmarsson og
Páll Dagbjartsson.
Ritstjóri &
ábyrgðarmaður:
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is
Simi 455 7176
Blaðamenn:
ÓliArnar Brynjarsson
feykir@krokur.is
Örn Þórarinsson
Prófarkalestur:
Karl Jónsson
Askriftarverð:
295 krónur hvert tölublað
með vsk.
Lausasöluverð:
350 krónur með vsk.
Áskrift og dreifing
Nýprent ehf.
Sími 455 7171
Umbrot og prcntun:
Nýprent ehf.
Aðalfundur félags kúabænda íSkagafírði
Mesta mjólkurframleiðsluár
í landinu til þessa
Pálmar Jóhannesson bóndi á Egg með verðlaunabikar fyrir afurðahæstu kú héraðsins
2006, með honum er Valdimar Sigmarsson formaður félagsins sem afhenti verðlaunin.
Mynd: ÖÞ:
Aðalfundur félags
kúabænda í Skagafirði
var haldin í síðustu viku.
Þar var m.a. farið yfir
afurðahæstu kýr héraðsins
og þrjár þær hæstu
verðlaunaðar. Eins og kom
fram í Feyki á dögunum
var Búbót nr.192 á bænum
Egg í Hegranesi afurðahæst
og skilaði 789 kílóum af
verðefnum og mjólkaði alls
10.692 lítra.
Eigendur Búbótar eru
Pálmar Jóhannesson og Sigur-
björg Valtýsdóttir. Var bú
þeirra jafnframt það afurða-
hæsta í héraðinu þegar afurðir
eru metnar með tillit til
verðefna þ.e. hvað mikið af
mjólkurfituogmjólkurpróteini
kýrnar skiluðu, en það var að
jafnaði 552 kg. eftir hverja
árskú. Kúabændur verðlauna
einnig þann sem á þyngsta
sláturgripinn árlega en hann
reyndist vera frá bænum Stóru-
Ökrurn II og vóg hann 399
kíló.
Gestir á fundinum voru þeir
Baldur Helgi Benjamínsson
framkvæmdastjóri LK og Daði
Már Kristófersson hagfræð-
ingur Bí. í máli Baldurs kom
m.a. fram að útlit væri fýrir að
heildarfranileiðsla á mjólk færi
yfir 120 milljónir lítra á
yfirstandandi verðlagsári.
Skagastrond
Skora á samgöngunefnd
Hreppsnefnd Höfðahrepps
hefur sent samgöngu-
nefnd Alþingis bréf þar
sem óskir hennar að
breytingum á frumvarpi um
samgönguáætlun koma
fram.
Gerir hreppsnefnd tvær
athugasemdir við áædunina.
Skorað er á samgöngunefnd
að setja endurbyggingu
Skagasti'andarvegar á áædun
og hins vegar að taka til
endurskoðunar nýja legu
hringvegar norðan Svína-
vatns.
Húnavatnshreppur
Húnvetningar huga að upp-
byggingu í ferðaþjónustu
Atvinnumálanefnd
Húnavatnshrepps og
aðilar í ferðaþjónustu
í Húnavatnshreppi
hafa ákveðið að stilla
upp framkvæmda- og
kostnaðaráætlun fyrir
gerð reiðvegakorts fyrir
Húnavatnshrepp.
Atvinnumálanefnd og
aðilar í ferðaþjónustu hitt-
ust á dögunum til þess að
ræða framtíðarmöguleika
í ferðaþjónustu á svæðinu.
Var á þeim fundi kynnt
sú hugmynd að gefa út
reiðleiðakort fyrir svæðið
í þeim tilgangi að ná til
íslenskra hestamanna og efla
þannig ferðaþjónustu.
Atvinnuráðgjafi frá SSNV
var fenginn til þess að stiila
upp áætlun fyrir verkið.
Framleiðslan undanfarnar
vikur hefur verið um 8% meiri
en á sama tíma í fýrra og sala á
mjólk og mjólkurvörum hefur
gengið vel. Þannig standa
vonir til að útflutningur á skyri
til Bandaríkjanna í árslok verði
kominn í um 15 tonn á viku í
stað 1.5 tonn á viku nú í
upphafi ársins.
Daði Már fjallaði um
framleiðslukostnað mjólkur
og kynnti niðurstöður úr
könnum sem hann hefur gert
gagnvart nokkrum
nágrannalöndum. í henni
kom fram að varðandi fastan
kostnað við framleiðsluna
stönduni við okkur allvel
gangvart öðrum þjóðum. En
þegar kemur að liðunum
afskriftir og vextir versnar
samanburðurinn og verður
íslenskum bænduni mjög
óhagstæður.
Valdimar Signtarsson
bóndi í Sólheimum var
endurkjörinn formaður
félagsins á fundinum. Aðrir í
stjórn eru Bjarni Þórisson
Mannskaðahóli, Guðrún
Lárusdóttir Keldudal, Jón
Einar Kjartansson Hlíðarenda
og Órnar Jensson Gili.
Samband
Skagfírskra kvenna
Árleg Vinnu-
vakaá
sunnudaginn
Hin árlega Vinnuvaka
Sambands Skagfirskra
kvenna verður haldin
í Varmahlíðarskóla
sunnudaginn 18. mars og
hefst kl. 15.
Vinnuvakan er árlegur við-
burður í félagslífi Skagfirðinga
og þar er alltaf mikið af góðu
handverki á boðstólum.
Kaffi og meðlæti verður selt
og lifa konurnar glæsilegu
kaffihlaðborði, sem margir
hafa eflaust beðið eftir alveg
síðan í fýrra. Þá er einnig hægt
að kaupa með kaffinu og hafa
með sér heim, en kökubasar er
hluti af Vinnuvökunni. Allur
ágóði af Vinnuvökunni rennur
til samfélags- og góðgerðamála.
Að þessu sinni mun hann renna
til björgunarsveitanna.