Feykir - 15.03.2007, Blaðsíða 11
n/2007 Feykir 11
Feyki lá forvitni á að vita aóeins meira um þá menn og konur
sem veljast í efstu sæti framboðslista stjórnmálaflokkanna í
Norðvesturkjördæmi. Fjórði í röðinni er Magnús Stefánsson
sem svarar hér nokkrum laufléttum spurningum.
Magnús ásamt tveimur meðframbjóðendum sínum, körfuknattleikskempunum Axeli
Kárasyni og Sigurði Þorvaldssyni.
Magnús Stefánsson Framsóknarflokki svarar
Með húmorinn
á sínum stað
Patrik Snær Bjarnasson, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Sólrún Ágústa og Ingimar Vignisson.
Höfðaskóli í 3. sæti í undankeppni Skólahreysti
Hraustir krakkar
frá Skagaströnd
Fimmtudaginn 8. mars s.l. fór fríður hópur frá Skagaströnd
til Akureyrar. Voru þar á ferð nemendur úr 8.-10. bekk
Höfðaskóla sem tóku þátt í Skólahreysti 2007.
Hversu lengi hefur þú starfað
í stjórnmálum?
„Ég hef haft áhuga á
stjórnmálum frá því að ég
komst til vits og ára. Pabbi
var sveitarstjórnarmaður og
ég byrjaði sem unglingur
að vinna með framsóknar-
mönnum í kosningabarátt-
unni. Bein þátttaka hófst
um það leyti sem ég var við
nám í Bifröst þar sem Jón
Sigurðsson var rektor og
síðan auðvitað eítir að ég varð
sveitarstjóri í Grundarfirði á
þrítugasta aldursári 1990. Ég
hef samt verið meira og minna
í kringum stjórnsýsluna frá
því stuttu eftir að ég lauk
námi í Samvinnuskólanum.
Ég kom fyrst inn á þing fyrir
Framsóknarflokkinn árið
1995 og varð ráðherra félags-
mála 2006. Ég hef setið í
ýmsum þingnefndum, svo
sem fjárlaganefnd, samgöngu-
nefnd og utanríkismálanefnd,
auk þess sem ég hef gegnt
stjórnarstörfum í fyrirtækjum
og stofnunum sem of langt
mál yrði að telja upp hér.“
Hvað er það við stjórnmálin
sem heillar þig?
„Ég tek þátt í stjórnmálastarfi
af því að ég vil hafa áhrif. Ég
er sannfærður um að hófsöm
stefna Framsóknarflokksins
eigi brýnt erindi í stjórn
landsins og vil fýlgja henni
eftir. Samfélagið þarf á því að
halda að Framsóknarflokk-
urinn haldi styrk sínum í
kosningunum í vor. Stjórnmál
eru fjölbreytt og varða alla og
auðvitað kjörinn vettvangur
fyrir þann sem vill láta gott af
sér leiða.“
Af hvaða máli ertu stoltastur?
„Af mörgu er að taka en
það sem kemur fyrst upp í
hugann, úr því að ég er að tala
við Feyki, er uppbyggingin
að Hólum í Hjaltadal sem ég
tel vera gríðarlega mikilvæga
fyrir íbúa héraðsins og raunar
þjóðina alla. Að þessu verkefni
vann ég sem formaður
fjárlaganefndar Alþingis og
þingmaður kjördæmisins og
ég fýllist stolti þegar ég sé hve
vel hefur tekist til. Hólar voru
og eru aftur í dag fræðasetur
og þar fer fram blómleg
starfsemi á ýmsum sviðum
sem er fjörsprauta fyrir sitt
nánasta samfélag. Þá vil ég
nefna margvíslega starfsemi
íbúðalánasjóðs á Sauðárkróki.
Sem ráðherra hef ég m.a. beitt
mér fýrir verkefnaflutningi
til landsbyggðarinnar, t.d.
flutningi fæðingarorlofssjóðs á
Hvammstanga og nú bráðlega
umsýslu atvinnuleysisbóta
á Skagaströnd. Ég gæti talað
lengi um þetta og bætt við
ýmsum fleiri málum.“
Hver eru þín áhugamál utan
stjórnmálanna?
„Ég hlýt að nefna fjölskylduna
fýrst en síðan tónlist og íþróttir.
Hér áður spilaði ég í vinsælli
hljómsveit og tók virkan
þátt í íþróttum. Ég reyni að
halda mér við í ræktinni þótt
það hafi lítið hjálpað mér í
ræðustól Alþingis á dögunum.
Um leið og ég jafna mig á þessu
flensuskoti, sem því miður
truflaði framsögu mína um
þingsályktun um jafnréttismál
á baráttudegi kvenna, tek ég
til óspilltra málanna f þeirri
baráttu sem framundan er.
Það er engan bilbug á mér að
finna.“
Lumar þú ekki á einni góðri
sögu úr baráttunni?
„Ég á enga betri en þá að mér
fataðist flugið eftirminnilega í
umræðunni um jafnréttismál
á þingi á sjálfum baráttudegi
kvenna. Þingkonurnar vöktu
samt vel yfir mér, þ. á m.
Þorgerður Katrfn Gunnars-
dóttir, Ásta Möller og Siv
Friðleifsdóttir. Þær studdu
mig reikulan í spori inn í
hliðarherbergi þinghússins og
stumruðu þar yfir mér. Æðsti
maður heilbrigðismála horfði
beint í augun á mér og spurði:
„Magnús minn, hvað eru
2+2?“ Ég var sko með mína
hluti á hreinu og alls ekki á
þeim buxunum að hrökkva
upp af og svaraði að bragði
„sex“. Þá sögðu þær allar í kór:
„Það er sko í lagi með hann,
húmorinn er á sínum stað.“
Skólahreysti er keppni
milli grunnskóla landsins og
fer þannig fram að 4
keppendur koma frá hverjum
skóla og etja kappi í 5
greinum sem tengjast þoli,
styrk og snerpu. I hverri viku
er haldin undankeppni þar
sem nokkrir skólar etja kappi
saman og kemst sigurvegari í
úrslitakeppnina sem fram fer
í Laugardalshöll í apríl. Hver
undankeppni er svo sýnd á
Skjá einum á þriðjudags-
kvöldum kl. 20:00.
I undankeppninni s.l.
fimmtudag tóku alls 9 skólar
víðsvegar að frá Norðurlandi
þátt. Keppnin var æsispenn-
andi allan tímann, ekki bara
inni á vellinum heldur líka í
áhorfendastúkunni og létu
nemendur Höfðaskóla ekki
sitt eftir liggja þar, frekar en í
keppninni sjálfri.
Keppendur Höfðaskóla,
þau Ingimar Vignisson,
Patrik Snær Bjarnason, Silfá
Sjöfn Árnadóttir og Sólrún
Ágústa stóðu sig mjög vel og
hafnaði liðið í 3. sæti, á eftir
Borgarhólsskóla frá Húsavík
sem varð í 2. sæti og
Grunnskóla Siglufjarðar sem
sigraði þessa umferð. Glæsi-
legur árangur hjá keppendum
Höfðaskóla og eiga þau og
þjálfari þeirra, Helena Bjarn-
dís Bjarnadóttir íþróttakenn-
ari hrós skilið. Liðið lagði
mikið á sig og æfði vel fyrir
keppnina, fór m.a. í æfinga-
ferð í Voga á Vatnsleysuströnd
þar sem finna má útihreysti-
braut sem hentaði vel til
æfinga fyrir Skólahreystina.
Að keppni lokinni var
síðan haldið á pizzahlaðborð
á Greifanum og tóku
unglingarnir vel til matar síns
enda örþreyttir og svangir
eftir öll átökin og köllin í
stúkunni. Heimferðin gekk
vel og var vel tekið undirf
fm957-slögurunum í útvarp-
inu, rútubílstjóranum Ágústi
frá Geitaskarði til mikillar
ánægju.
Það voru sælir en þreyttir
nemendur sem kornu aftur til
Skagastrandar um tíuleytið,
með 3. sætið í Skólahreysti
upp á vasann. Ekki sfður
voru kennararnir sem fóru
með í ferðina ánægðir við
heimkomuna enda stóðu
nemendurnir sig mjög vel í
einu ogöllu og voru skólanum
sínum til mikils sóma.
Fyrir þá sem vilja kynna
sér Skólahreysti nánar má
benda á heimasíðuna www.
skolahreysti.is og svo sjón-
varpsþættina á þriðjudags-
kvöldum.
ÆfípríKD----------------------------------------------------1
Nefndu 10 atriði sem framboð þitt hefur staðið fyrir á
síðustu fjórum árum og kemur að einhverju leyti við íbúa
á Norðurlandi vestra.
1. Aukið fjármagn til samgöngumála, m.a. af söluandvirði Símans,
2. Efling þjónustu við fatlaða,
3. Unnið að almennri velsæld og styrkara velferðarkerfi,
4. Flutningur fæðingarorlofssjóðs á Hvammstanga,
5. Flutningur umsýslu atvinnuleysisbóta á Skagaströnd,
í 6. Staðið vörð um íbúðalánasjóð sem mikilvægan hlekk í
velferðarkerfinu,
7. Uppbygging á Hólum í Hjaltadal,
8. Sparkvellir víða í kjördæminu í samstarfi við KSf,
9. Menningartengd ferðaþjónusta víða í kjördæminu,
10. Uppbygging gamalla húsa sem hafa varðveislugildi.