Feykir - 15.03.2007, Síða 13
n/2007 Feykir 13
Feykir fékk prestana séra Fjölni Ásbjörnsson á Skagaströnd
og séra Siguró Grétar Sigurðsson á Hvammstanga til þess að rifja upp fermingardagana sína
Séra Hjálmar var Fékk mætingarverð-
góð fyrirmynd laun hjá prestinum
Fermingardagurinn minn var hátíð-
legur og eftirminnilegur. Ég var
ánægður með að fá tækifæri til að
staðfesta skírnarheitið og gera Jesú
Krist að leiðtoga lífs míns.
Við vorum mjög mörg sem vorum
fædd 1973 eða hátt í 70 krakkar þannig
að það varð að hafa nokkrar fermingar
en við eigum einmitt 20 ára
fermingarafmæli í vor og gerum
vonandi eitthvað skemmtilegt þá.
Sr. Hjálmar Jónsson var presturinn
okkar og var bæði vingjarnlegur og
skemmtilegur við okkur krakkana og
var okkur mikil fyrirmynd. Ég man að í
fermingarundirbúningnum fór ég að
hugsa um að kannski ætti ég að verða
prestur og að sjálfsögðu reyndi ég að
fylgjast vel með öll sem fram fór. Ég
hugsaði mér að þegar ég yrði orðinn
prestur myndi ég heimsækja sr. Hjálmar
sem þá væri orðinn gamall karl en þegar
þetta svo gerðist í alvörunni fannst mér
Hjálmar lítið hafa breyst og alls ekki sá
öldungur sem ég hafði séð fyrir mér í
huganum 15 árum áður.
Við mamma fórum til Reykjavíkur
til að finna fermingarföt á mig og eftir
að hafa farið um allan bæ enduðum við
í Hagkaupi þar sem voru einmitt föt
Séra Fjölnir
eins og ég hafði hugsað mér. Mér
þótti það reyndar svolítið
vandræðalegt þegar einn gesturinn
í fermingarveislunni sagði við mig:
„Enn flott föt, fékkstu þau virkilega
í Hagkaupum?” Svona var maður
nú í gamla daga.
Á heildina litið var dagurinn
mjög ánægjulegur og fermingin eitt
fyrsta skrefið á göngu minni með
Guði.
Fermingardagurinn minn sem var
þann 15. apríl 1984 er afar minnis-
stæður. Ég hafði verið veikur vikuna
fyrir fermingardaginn. En þá gerðist
kraftaverkið. Á sunnudagsmorgn-
inum var ég hitalaus og sprækur.
Ég fór í fermingarfötin mín og mætti
snemma í kirkjuna. Allir voru í
hátíðarskapi en ég var með svolítinn
hnút í maganum. Sr. Ólafur Skúlason
fermdi okkur. Hann var þá sóknar-
prestur í Bústaðakirkju, sóknarkirkjunni
minni. Ég hafði verið virkur í
æskulýðsfélagi kirkjunnar og verið
duglegur að mæta í messur, var nokkuð
heimavanur. í athöfninni fékk ég meira
að segja sérstök mætingarverðlaun.
Athöfnin var falleg og hátíðleg. Við
vorum kölluð upp eitt og eitt til að játa
Jesú Krist sem leiðtoga lífs míns. Það
var ekki spurning í mínum huga. Við
fórum einnig með fermingarvers.
Versið mitt var “Fel Drottni vegu þína
og treyst honum, hann mun vel fyrir
sjá”. Þetta vers hafði verið í uppáhaldi
hjá nrér lengi. Það var frábært veður
þennan dag.
Veislan var heima og fullt af fólki
samgladdist okkur. Það voru mörg
varalitaför sem ég þurfti að þurrka af
Séra Sigurður
kinninni en það var yndislegt að
hafa fjölskylduvini og ættingja með
okkur. Ég tók upp efni á 8 mm
kvikmyndavél og á því minningar á
hreyfimynd frá þessum degi. Ég
fékk margar fallegar fermingargjafir,
m.a. Biblíu sem er á skrifborðinu
mínu en orðin ögn lúin.
Eftirminnilegur dagur var senn á
enda en morguninn eftir var ég
affur kominn með hita og lá í viku.
Bestu gjafirnar voru ást, tími og
umhyggja. Það hefur ekkert breyst.
( FERMINGARVEISLAN )________
Uppskriftir og hugmyndir
fyrir ferminguna
Þaó er kannski að bera í
bakkafullan lækinn ad koma
með uppskriftir eða hug-
myndir fyrir ferminguna en
við látum engu að síður vada.
Kökur, skreytingar og afþreying fyrir
þau yngstu.
Rice Krispies
kransakaka
Hér einu sinni var ekki haldin sú
veisla sem ekki skartaði glæsilegri
kransaköku. Var kakan faguriega
skreytt með konfekti og því fengu
sér bæði böm og fullorðnir af henni.
Einn var þó gallinn. Bömum þótti
hún ekki góð og bak við gardínur
og undir borðum mátti finna brot úr
kökunni. Það er hægt að lofa því að
þetta gerist ekki ef gerð er kranskaka
úr Rice Krispies. Einföld, falleg og
ótrúlega góð.
Uppskrift:
500 grömm gott hjúpsúkkulaði
1 lítildósgræntsýróp
(grænu dósimar)
175grömm smjör
280 grömm Rice Krispies
Aðferð: Hjúpsúkkulaði, smjör og
sýróp brættsaman í potti, passa að
hræra stöðugt í. Rice crispies hrært
saman við. 18 kransakökuform
tekin og smurð vel að innan
með olíu. Fylla hvert form með
blöndunni og þrýsta henni vel ofan
í mótin. Best er að hafa hringina
þykka. Látið stffna við stofuhita.
Því næst er brædd 200 grömm
suðusúkkulaði sem notað er til
þess að líma hringina saman.
Skreytið kökuna af vild.
Síðan er hún geymd á köldum stað
þartil hún erborin fram.
Hin eina sanna
súkkulaöikaka
Þessi er einföld, sjúklega góð og þolir
að vera fryst!
375 grömm suðusúkkulaði
375 grömm smjör
Brættsaman
6egg
500 grömm sykur
225 grömm hveiti
Þeytt saman og síðan er súkku-
laðiblöndunni blandað variega
saman við. Sett í tvö ca. 20 cm
form. Muna að setja bökunarpappír
í botninn og smyija vel. Kakan er
bökuð við 180 graður í ca. eina
klukkustund.
Þegar kakan er orðin köld em 140
gr. af suðusúkkulaði og 50 gr.
smjör brætt saman og sett ofan á
kökuna. Dustað yfir með flórsykri
þegar kremið er oróið kalt. Fallegt
er að skreyta kökuna með beijum
og ávöxtum eða í tilefni páskanna.
Litlum súkkulaðieggjum.
Skreytingar í salinn
þurfa ekki aö vera
dýrar...
Skemmtileg hugmynd er að safna
saman teikningum og myndum af
fermingarbaminu í gegnum tíðina og
hengja upp á veggi.
Oft hafa safnast saman hlutir úr
ferðumfjölskyldunnarsem em henni
kærir, kuðungar, steinar og fleira
sem Ijölskyldan hefur í sameiningu
safna. Þessir hlutir geta verið fallegt
skraut.
Klippið út hjörtu og leggið á hvem
disk, óskið eftir að hver og einn
gestur skrifi á hjartað heilræði til
handa femiingarbaminu. Heilræði
þessi séu síðan hengd upp á
ákveðin stað. Þama má bæði
þræða spotta í hjörtun þannig að
hægt sé að hengja þau á grein eða
hafa kennaratyggjó við höndina og
hengja þau beint upp á vegg.
Akrýldúkar og fallegir tauboröar
geta gert kraftaverk, ódýr lausn sem
hvorki þarf að þvo né strauja.
Ekki má gleyma
yngstu gestunum...
Þegar fermingarveislan er í sal
skapast oft það andrúmsloft að
yngstu gestimir hafa ekkert við að
vera og fara að hlaupa sþómlaust
um salinn.
Gott ráð er að fá unglinga í fjöl-
skyldunni til þess að taka að sér að
hafa ofan af fyrir þeim yngstu.
Hafa með sérsjónvarp ogspilara og
vera með skemmtilega fjölskyldu-
mynd fyrir breiðan aldurshóp.
Gripa kubbakassann og spilin
með að heiman og koma fyrir á
ákveðnum stað.
Muna að hafa örugglega eitthvað
á veisluborðinu sem þeim yngstu
hugnast og einnig að poppskál eða
saltstangirgeta haldið þeim önnum
köfnum fyrir framan sjónvarpið á
meðan fullorðna fólkið spjallar í ró
og næði.