Feykir - 07.06.2007, Page 4
4 Feykir 22/2007
íþróttafréttir
Kynning:: 3. deild karla C-riðill
Tindastóll
Meistaraflokkur Tindastóls tekur
að þessu sinni þátt í riðli C í 3. deild
íslandsmótsins í knattspyrnu.
Róbert Haraldsson tók við þjálfun Tinda-
stóls síðastliðið haust en hann hefur víða komið
við á sínum ferli og þjálfaði síðast lið Hvatar frá Blönduósi.
Þeir leikmenn sem hafa yfirgefið Stólana frá í fyrra eru
Aðalsteinn Arnarson, Rúnar Már Sigurjónsson, Árni Einar
Adolfsson, Thomas Bang og Marc Christensen.
Meðal þeirra sem hafa gengið til liðs við Stólana eru Ágúst
Ingi Ágústsson, Halldór Jón Sigurðsson, Dejan Djuric, Hjörvar
Árni Leósson og Sigmundur Birgir Skúlason auk Róberts
ajálfara.
Albert Sölvi Óskarsson Ágúst Ingi Ágústsson Bjarki Már Ámason Björn Magnús Árnason
Fd.: 10. janúar 1985 Fd.: 22. júlí 1982 Fd.: 13. október 1978 Fd.: 16. mars 1985
Leikir með UMFT: 62 Leikir með UMFT: 8 Leikir með UMFT: 30 Leikir með UMFT: 26
Björn Ingi Óskarsson Brynjar Rafn Birgisson Dejan Djuric Ebbe Nygaard
Fd.: 18. júlí 1982 Fd.: 29. október 1986 Fd.: 10. maí 1973 Fd.: 2. okt. 1985
Leikir með UMF: 46 Leikir með UMF: 9 Leikir með UMFT: 3 Leikir með UMFT: 15
Gísli Eyland Sveinsson Guðmundur Vilbergss. Guðni Þór Einarsson Halldór Jón Sigurðsson
Fd.: 2. ágúst 1973 Fd.: 18. aprfl 1985 Fd.: 21. nóv. 1988 Fd.: 1. okt. 1983
Leikir með UMFT: 136 Leikir með UMFT: 12 Leikir með UMF: 8 Leikir með UMFT: 30
HaukurSkúlason Hjörvar Árni Leósson Ingvi Hrannar Ómarss. Jóhann M. Jóhannsson
Fd.: 6. febrúar 1981 Fd.: 13. maí 1987 Fd.: 24. maí 1986 Fd.: 8. maí 1968
Leikir með UMFT: 80 Leikir með UMFT: 2 Leikir með UMFT: 24
Jóhann Helgason Jón Kristinn Skúlason Kári Eiríksson Konráð Þorleifsson
Fd.: 8. sept. 1985 Fd.: 14. okt. 1986 Fd.: 3. mars 1990 Fd.: 25. sept. 1988
Leikir með UMFT: 53 Leikir með Tindastól: 2 Leikir með UMFT: 2 Leikir með UMFT: 32
Kristján Baldursson Pálmi Þór Valgeirsson Róbert Haraldsson Sigmundur Skúlason
Fd.: 24. maí 1974 Fd.: 12. júlí 1988 Fd.: 23. mars 1969 Fd.: 19. maí 1982
Leikir með UMFT: 1 Leikir með UMFT: 34 Leikir með UMFT: 3 Leikir með UMFT: 75
Snorri Geir Snorrason Stefán Arnar Ómarsson
Fd.: 24. júní 1983 Fd.: 13.ágúst 1982
Leikir með UMFT: 74 Leikir með UMFT: 57
Helga Margrét ogArni Rúnargera góða hluti
á Meistaramóti Islands í fjölþraut
Nálægt því að slá
Islandsmetið
Meistaramót íslands í
fjölþrautum frjálsíþrótta
og löngum boðhlaupum
fór fram helgina 26.-27.
maí á Laugardalsvellinum í
Reykjavík.
Helga Margrét Þorsteins-
dóttir úr USVH varð
íslandsmeistari í sjöþraut
kvenna en Árni Rúnar
Hrólfsson úr UMSS hafnaði í
2. sæti í tugþraut sveina.
Helga Margrét sigraði nreð
5285 stigum og var því aðeins
119 stigum frá Islandsmeti
Kristínar Birnu. Helga Margrét
er aðeins 16 ára gömul og
árangur hennar því ótrúlegur.
Ljóst er að íslandsmetið er í
stórhættu og gaman verður að
fylgjast með henni í sumar.
Árni Rúnar Hrólfsson úr
UMSS gerði einnig góða hluti
á mótinu, en hann hafnaði
í 2. sæti í tugþraut sveina
(15-16 ára). Þessi árangur
Árna er stigahærri en met
Gauta Ásbjörnssonar úr
UMSS í tugþraut sveina með
sveinaáhöldum, en metið telst
ekki löglegt vegna of mikils
meðvinds.
3. deild karla C: Tindastóll lagði Hvíta riddarann og Hvöt tók Álftanes
Hvöt og Stólarnir bæði taplaus
Þjálfari Hvita riddarans vekur lukku á bekk Tindastóls. Mynd: pib
Strákarnir í Tindastóli tóku
á móti Hvíta Riddaranum
í 3. deild um helgina.
Töluverður vindur var á
Sauðárkróki og var Hvíta
Riddaranum ógnað strax
á fyrstu sekúndunum
þegar Róbert átti skot að
marki af 50 metra færi,
en markmaðurinn varði
naumlega. Tindastóll var
sterkari aðilinn í leiknum og
sigraði örugglega, 5-0.
Tindastóll byrjaði með
vindi og pressaði í upphafi
leiksins. Gestirniráttu í miklurn
erfiðleikum að berjast bæði við
andstæðingana og vindinn, og
konrust ekki almennilega inn
í leikinn. Það var loks á 14.
mínútu sem Haukur kenrur
heimamönnum yfir eftir skalla
frá Stefáni Arnari. Aðeins 2
mínútum seinna skorar Róbert
beint úr hornspyrnu, þó með
viðkomu í varnarmanni, en
Róbert var svo aftur á ferðinni
undir lok seinni hálfleiks og
kom Tindastóli í 3-0 sem voru
hálfleikstölurnar.
Tindastóll var hvergi hættur
og mættu strákarnir sterkir í
seinni hálfleik.
Eftir um 12 mínútna leik
braust Haukur í gegnurn
vörnina og náði að skora. Urn
miðjan seinni hálfleik meiddist
Ingvá Hrannar og fór af velli.
Þegar stutt var til leiksloka fór
Albert upp hægri kantinn og
sendi flnan bolta fyrir markið
þar senr Arnar Skúli skoraði sitt
fyrsta rnark með meistaraflokki
og staðan orðin 5-0.
Hvöt sigraði Álftanes
Sunnudaginn 3. júní skellti
Hvöt sér suður á Bessastaðavöll
og atti kappi við liðið Álftanes.
Skemmst er frá því að segja að
Blönduósingar sigruðu með
tveimur mörkum gegn engu
og sitja nú á toppi riðilsins
ásamt Tindastóli, en bæði lið
eru með 7 stig.
Sama byrjunarlið nrætti
til leiks hjá Hvöt og var gegn
Skallagrími, nema að nú voru 3
leikmenn settir í sóknarlínuna
sem gerði heimamönnum erfitt
fyrir. Bæði mörk Hvatar komu
í fyrri hálfleik en það voru þeir
Óskar Snær Vignisson sem
skoraði á 35. mínútu og Einar
Ingi Jóhannsson sem skoraði á
þeirri 45.
I seinni hálfleik voru gerðar
þrjár varnarsinnaðar skiptingar
og áherslan var lögð á að halda
forystunni sem gekk sem skildi
og Hvatarmenn fóru með sigur
afhólmi.
Föstudaginn 8. júní rnætast
Hvöt og Tindastóll á Blönduósi
klukkan 20:00 en liðin eru bæði
nreð 7 stig eftir 3 umferðir.
1. deild kvenna : Tindastólsstúlkur án taps
Unnu Fjarðabyggð 2-1
Stelpurnarim.fi. kvenna áttu
heimaleik gegn Fjarðabyggð
sl. laugardag. Leikurinn fór
fram á Sauðárkróksvelli
í frábæru veðri og margir
iögðu leið sína á völlinn
til að hvetja stelpurnar.
Leikurinn fór ekki vel af stað
hjá Tindastóli en þær náðu
sér á strik og sigruðu leikinn
með tveimur mörkum gegn
einu.
Fyrri hálfleikurvarviðburð-
arlítill og lítið frásagnanært en
staðan í hálfleik var 0-0.
í seinni hálfleik mættu
stelpurnar ákveðnari til leiks.
Vanda kom inn á völlinn
og virkaði það sem hálfgerð
orkusprauta fyrir stelpurnar
og fljótlega skoraði Halla Mjöll
eftir að skot Hjördísar rataði
ekki í netið og Halla fylgdi
eftir. Stuttu seinna skoruðu
stelpurnar í Fjarðabyggð ódýrt
mark úr aukaspyrnu. Sá bolti
hefði nú ekki átt að enda inni
en einhver klaufaskapur greip
um sig og gestirnir ná að
jafna.
Loks konr að því að
Tindastóll fékk aukaspyrnu á
hættulegunr stað og enn var
það Halla Mjöll á ferðinni sem
smellti boltanum í hornið og
skoraði. En þess má geta að
þetta er fjórða rnarkið hennar
sem hún skorar á þennan
hátt.
Lokatölur leiksins voru
2-1 fyrir Tindastóli og 3 stig
í pottinn, sem setti Stólana
í fyrsta sæti riðilsins með 7
stig. Glæsileg frammistaða
hjá stelpunum, en næsti
leikur þeirra er heimaleikur
gegn Hetti frá Egilsstöðum,
laugardaginn 9.júní