Feykir - 07.06.2007, Blaðsíða 9
22/2007 Feyklr 9
Grunnskólinn á Blönduósi
í sveitinni hjá Sigurbirni
Krakkarnir skrifa
Feykir heimsótti 7. - 9. bekk grunnskólans á Blönduósi á Vordögum þeirra. I framhaldinu
unnu krakkarnir fjölmiðlatengd verkefni og gáfu út skólablað. Skólablaðið þeirra heitir
Blöndungur og er glæsilegt rit. Feykir fékk leyfi til þess að birta hér hluta af skólablaði
krakkanna.
Hestamennska a Blonduosi
Hestaiðkun
unglinga
Hestamennska er mjög
vinsæl á Blönduósi hjá
öllum aldurshópum.
í boði eru námskeið
f)TÍr unglinga á veturna
og nokkur mót og það
eru ansi nrargir unglingar
sem taka þátt í því,
bæði frá Blönduósi og
úr sveitunum í kring.
Svo er auðvitað alltaf
árlega stórsýningin,
þar sem krakkarnir í
námskeiðunum sýna
atriði sem þau hafa æft.
Flestir em með hestana
sína í Arnargerði, sem er
hesthúsahverfið, en þar
eruum 13 húsogreiðhöll.
Núna er líka verið að
byggja nýjan skeiðvöll,
sem ætti að vera hægt að
nota mjög bráðlega, því
þar er kynbótasýning 5.
júní næstkomandi.
Heilbrigðisstofnunin Blönduósi
Stærsta sjúkrahús sýsl-
unnar■enda
Tekið varviðtal
við Sveinfríði
Sigurpálsdóttur
hjúkrunarforstjóra
Heilbrigðisstofnun
arinnar á Blönduósi
sem hefur unnið við
stofnunina ff á 1973,
hún tók reyndar 2 ára
hlé en vinnur þar enn
ídag.
Við ræddunr við
hana um starf hennar
á sjúkrahúsinu og um
sjúkrahúsið almennt.
Sveinfnður situr í
framkvæmdarstjórn
sjúkrahússins. Hún sagði
okkur að á sjúkrahúsinu
vinni 75 manns sem
það eina
sinna ýmsum störfúm.
Sumir sinna þ\í að lækna
þá sjúku á meðan aðrir
sinna þeim gömlu. Við
hér á Blönduósi erum
ekkert smá heppin
að hafa þessa stofnun
hér því þetta er stærsti
vinnustaður bæjarins.
Nánari upplýsingar urn
sjúkrahúsið er að finna á
heimasíðu þess hsb.iseru
unr 13 hús og reiðhöll.
Núna er líka verið að
byggja nýjan skeiðvöll,
sem ætti að vera hægt að
nota mjög bráðlega, því
þar er kynbótasýning 5.
júní næstkomandi.
Vorferð 7. - 9. bekkjar
Ferðinni heitið
að Laxárvatni
Dagana 29. maí -1.
júní voru svokallaðir
“Vordagar” í Grunn-
skólanum á Blönduósi
og þar af leiðandi var
farið í vorferð. 30. maí
kl. 8 fóru 7.— 9. bekkur
af stað í sína vorferð og
var ferðinni heitið að
Laxárvatni til að veiða.
Þegar mætt var á
svæðið var fólk ekkert
að slóra og hóf að taka
til veiðistangirnar og
beitu. Ekki voru allir með
veiðistangir en þeir fengu
bara að prufa hjá öðrum
ef þeir vildu. Nokkrir
nemendur fengu að fara
út á bát með Guðjóni
fræðslustjóra að kanna
netið hans eða bara til
að skemmta sér og var
rnikið sungið um borð. í
landi voru Berglind, Lára
og Sigríður duglegar við
að grilla aflann sem
krakkarnir, Guðjón,
Ásgeir og Óli Ben. veiddu
og fengu nemendur því
að srnakka gómsætan,
ferskan fisk. Um 11 leytið
var veiðinni hætt og
haldið í Húnavallaskóla
þar sem að farið var í
fatasund. í fatasundinu
var mikið glens og var til
dæmis keppt í koddaslag
svo eitthvað sé nefnt.
Þegar klukkan nálgaðist
eitt var krökkunum
smalað upp úr lauginni
og haldið heim á leið.
Flestir voru dauðþreyttir
það sem eftir lifði dags
enda fjörug og vel
heppnuð ferð að baki.
Erla, Jóhanna, Guðrún
ogAndrea
Kjalfell____
Fjölbreytt
fyrirtæki
Rúnar Örn
Guðmundsson er 27
ára karlmaður sem
vinnur í Kjalfelli,
Efstubraut 2, við smur-
og hjólbarðaþjónustu.
Konan hans heitir
Rannveig Rós Bjarna-
dóttir og eiga þau tvær
dætur. Þau keyra urn á
rauðum, upphækkuðum
Land Cruiser. Rúnar og
bróðir hans, Kristján
Blöndal, stofnuðu fýrir-
tækið Kjalfell sumarið
2005. Rúnar vaknar um
klukkan 6-8 á morgnana
en það er mjög rnikið að
gera í Kjalfelli á daginn.
Fyrirtækið gerði samning
við ESSO eða núverandi
N1 um smurstöð, ný
rafrnagnsþ'ffa keypt og
einnig ný rafmagnshurð.
Kjalfell er einnig með
tölvuþjónustu og raf-
tækjaverslun sem er
staðsett á Húnabraut 19.
Kjalfell smíðar til
dærnis kerrur, sér um
bílaviðgerðir, stillingar
á heimilistækjum
(sjónvarpsgræjum),
uppsetningar á gervi-
hnattabúnaði og fleira.
Fyrirtækið styrkir Ung-
mennafélagið Hvöt og
mörg önnur félög og
fyrirtæki. Kristján Blöndal
vinnurí tölvuþjónustunni
en hann tekur að sér að
laga tölvur og setja upp
heimasíður til dæmis fyrir
Hvöt og eru þeir líka með
síðuna kjalfell.is en það er
náttúrulega síðan þeirra
en þar getið þið fengið
upplýsingar ef þið hafið
áhuga.
Stefán, Agnar, Kristinn J
ogHilmar
Bændur í
einn dag
Svanur, Grímur og
Benni lögðu land
undir fót og héldu í
sveitina til Sigurbjörns,
nánar tiltekið á bæinn
Hvamm í Langadal.
Bóndinn á bænum tók
fagnandi á móti þeim
en hann heitir Gauti
Jónsson. Gauti er fæddur
árið 1955 í Gautsdal og
hefur verið bóndi í 24 ár
eða allt frá árinu 1983.
Gauti á fjögur börn
sem eru: Sigurbjörn
Viðar, Jón Gauti, Elín
Valgerður og Runólfur
Bjarni. Þegar komið var
á áfangastað héldu Benni
og Svanur út í fjós þar
sem eru 24 mjólkurkýr.
Síðan fóru strákarnir út
í fjárhús til að gefa borna
fénu og brynna þeim en
á bænum er 250 kinda
tjárhús. Síðan fóru þeir
upp til nautanna til að
gefa þeim og brynna
kálfunum. Þar gerðist
margt fýndið eins og að
Svanur datt á hjólbörur
og Benni datt af hestbaki.
Eftir þessi verk tóku
drengirnir viðtal við
stórbóndann Gauta
Jónsson. Þeir spurðu
hann í upphafi hvort að
hann hafi lært að verða
bóndi? Hann svaraði:
- neihh og sagði hann
að þetta var meðfætt og
var hann stoltur þegar
hann sagði þessi orð.
Sauðburðurinn hjá þeirn
er í fullum gangi en er
minni heldur en var
fýrir einni viku en alls
hafa dáið 23 lömb þetta
vorið. Það hefúr aðeins
verið einn krakki í sveit
hjá þeim og heitir hann
Svanur Ingi en þau höfðu
áður haft vinnumann
sem heitir Björn ávallt,
kallaður Bjössi. Gauti
vildi ekki tjá sig um hvaða
stjórnmálaflokk hann
styður en það eina sem
hann gaf upp er að hann
er mjög nálægt miðjunni
og er þá væntanlega
miðjumaður. Gauti fer
á fætur klukkan hálfsjö
og byrjar að vinna á fullu
klukkan 7. Þegar Gauti
var spurður um hvert
hans lífsmottó væri,
voru orð hans: Það má
andskotinn vita! og fleira
hafði hann ekki að segja.
En hvar var Grímur?
Svanur, Benjamín,
Sigurbjörn og Grímur
Spurningin!
Hvar ætlar þú að vinna í sumar
og ef þú ætlar ekki að vinna
hvað ætlar þú þá að gera?
Hildur Björg Vilhjálmsdóttir.
- Ég ætla að vinna sem flokkstjórí í
unglingavinnunni á Blönduósi.
Ingvi Þór Guðjónsson
- Ég ætla að vinna á sjúkrahúsinu við
að gera alls konarhluti.
Jón Kristjánsson.
- Ég ætla helst að vinna ekki neitt og
hvíla mig mjög vel.
Garðar Freyr Skúlason.
- Ég ætla að vinna í sumarvinnunni á
Blönduósi.
Erla ísafold Sigurðardóttir
- Ég ætla að vinna í
Sektarinnheimtunni og vera alla vega
einn mánuð í sumarfríi.