Feykir - 07.06.2007, Blaðsíða 8
8 Feykir 22/2007
A námskeiðinu lærðu leisögumennirnir að iesa árnar.
Andrew var með námskeið sitt
tvær helgar í röð og dvaldi hann
hér á landi ásamt eiginkonu
sinni Marie - Louise Kellet.
Á námskeiðinu segist hann
kenna leiðbeinendum hvernig
þeir eigi að lesa ánna sem þeir
vinna í. Eins leggur hann mikla
áherslu á öryggi viðskiptavina
sinna og hvernig bregðast skuli
við fari eitthvað úrskeiðis. -Mér
finnst mjög mikilvægt að um
allan heim séu leiðbeindur
að læra sama hlutinn þannig
að þegar þeir komi út á ánna,
hvar sem er í heiminum, sé
þeir að tala sama tungumál,
segir Andrew. -Jökulsá austari
rennur í gegnurn mikil gljúfur
og getur verið hættuleg fyrir þá
sem ekki vita hvað þeir eru að
gera. Við sem höfurn atvinnu
af flúðasiglunum óttumst það
svolítið hvað gerist þegar þær
verða vinsælli og vinsælli og
æ fleiri halda að það sé ekkert
mál að leigja sér bát og fara út
á árnar. Þær eru ekki hættulegar
ef menn vita hvað þeir eru að
gera eins og hér er. Ég held að
það sé mjög gott fyrir íslenska
ferðaþjónustu að leiðbeinendur
séu að sækja sér aukna þekkingu
og það kernur ánum senr hafa
slíka leiðbeinendur á kortið,
segir Andrew og nemendur hans
eru farnir að bíða. Ég verð samt
að spyrja hann hinnar klassísku
spurningar. Hvernig líkar þér
ísland? -Mjög vel, segir hann
og þau hlæja bæði. -Við höfúm
aðeins náð að ferðast urn og
erunt hrifin. Eigurn örugglega
eftir að korna aftur síðar. Þar
með er hann rokinn enda bíða
nemendur hans úti við á, það á
að fara að prófa mannskapinn.
Inni við símann situr Magnús
og svarar fyrir sitt fyrirtæki og
úti á hlaði kemur langferðabíll
með ævintýraþyrstum
flúðasiglingarmönnum. Það er
greinilega allt á fullu þarna og
spurning hvort Jökulsáin hafi
ekki nú þegar verið virkjuð
atvinnulífinu til handa.
spurningalista um viðhorf íbúa á
Norðurlandi vestra til háskólanáms?
Skilafrestur á spurningalistanum er framlengdur til 8.júní.
Mikilvægt er að sem flestir taki þátt svo svörunin verði sem best.
Leióbeinendur hjá Ævintýraferðum eru vel
menntaðir_______________________
Spennandi sumar
framundan
Andrew Kellett frá Suóur Afríku hélt á dögunum námskeið
í flúðasiglingum fyrir leiðbeinendur hjá Ævintýraferðum.
Feykir kíkti við á námskeiðið og spurði Andrew að
sjálfsögðu hvernig honum líkaði ísland.
Jökulsá austari er með bestu
flúðasiglingaám í Evrópu og
getur jafnframt verið með þeim
hættulegri. Það er ef rnenn
vita ekki hvað þeir eru að gera.
Magnús ltjá Ævintýraferðum
segir að hjá sér hafi öryggið og
hæfi leiðsögumanna ætíð verið
í öndvegi og því sem mikilvægt
að mennta starfsfólkið vel
áður en það heldur út á
ánna með viðskiptavini. Hjá
Hestasporti/Ævintýraferðum
vinna nú um 25 manns þar
af átta leiðsögumenn í ánum.
-Við erurn hér að bjóða upp á
heimsklassa flúðasiglingar og
gerunt þetta eins vel og öruggt
og hægt er. Til þess að hægt sé
að halda því þjónustustigi þarf
að mennta starfsfólkið og er
þetta námskeið liður í því, segir
Magnús.
Magnús segir að það líti bara
vel út með bókanir í sumar,
sérstaklega í hestaferðirnar en
flúðasiglingarnar séu meira
háðar verði og þangað komi
viðskiptavinir meira án mikils
fyrirvara.
Glæsilegur hópur leiðsögumanna ásamt kennara sínum.
Verslunin
ÞÓRÐARHÖFÐI
húsgögn & gjafavara
ÁGÆTU VIÓ5KIPTAVINIR/
ÝmMGAR
.SAIA
ÚTSALA Á ÖLLUM VÖRUM
VÉ0NA FLUTNIN0S
VFRSLUNARXNNAR
OPW VFRPUR
LAU&ARVA&m 9. JÚNÍ
FRÁ KL. 11-16
Verið velkomin
Opnunartími: Virka daga frákl. 13 til 18 • Lokað um helgar
Verslunin Þórðarhöfði ehf Sæmundargötu 7a • 550 Sauðárkróki • Sími: 453-5200