Feykir


Feykir - 21.06.2007, Page 5

Feykir - 21.06.2007, Page 5
íþróttafréttir 24/2007 Feykir 5 Samgönguminjasafnið í Stóragerði er með sögufræga ýtu til sýnis Hólaýtan komin aftur heim í Skagafjörð Páll og Gunnar við ýtuna sögufrægu. Jarðýtan sem notuð var árið 1943 við lagningu fyrsta vegarspotta sem gerður af íslenskum mönnum hér á landi er komin aftur til síns heima, í SkagaQörðinn. Eftir að hafa verið í Borgarfirði í mörg ár, hafa bræðurnir Gunnar og Páll Þórðarsynir sótt hana og komið henni til síns heima. Þessi sögufræga ýta hefur komið víða við í gegnum árin. Hún kom til landsins árið 1943, upphaflega í þeim tilgangi að dreifa ruðningi sem kom upp úr skurðum við framræslu í Garðaflóa við Akranes, en endaði loks í vinnu við ræktun og vegagerðir. Um haustið 1943 var fyrsti vegarspottinn, sem gerður var með jarðýtu af íslenskum mönnum lagður með hjálp þessarar ýtu. Árið eftir vann þessi sama jarðýta að því að lagfæra farveg Hjaltadalsár í Skagafirði til bjargar Hólaengi og var síðar seld til Hólaskóla. Árið 1963 var farið með ýtuna á Sleitustaði og ári síðar var hún seld í borgarfjörð og hefur verið þar alla tíð síðan. Síðastliðið haust fékk Gunnar Þórðarson í Stóragerði Pál bróðir sinn með sér í lið til að hafa upp á þessari sögufrægu ýtu. Bræðurnir sóttu ýtuna og fluttu hana heim í Skagafjörð og þar sem nú er hægt að berja hana augum á Samgönguminjasafninu í Stóragerði, en þar stendur hún við nýbyggt verkstæðishús fyrir safnið. Safnið er opið eins og undanfarin ár, frá 17. júní til 1. september milli kl. 13 og 18, og eru allir hvattir til þess að líta við og skoða vélina. Í" "~V Hafíssetrið - ískalt og Sræðandi Hafíssetrið á Blönduósi Opið alla daga í sumar frá kl. 11.00 - 17.00. Á Hafíssetrinu er fjallað um hafís á fjölbreyttan og fræðandi hátt. Sýningin er í Hillebrandtshúsi einu elsta timburhúsi landsins. Nánari iipplvsingar í síma: 452 48-18 w\3A\'.blonduos.is/liafis liafis@blonudos.is UMF. TINDASTÓLL Ungt fólk á öllum aldri í svaka stuði! 3. deild karia : Hvíti riddarinn - Hvöt 0-2 : Tindastóll - Skallagrímur 3-1 Tindastóll og Hvöt í toppbaráttunni Hasar i vítateig Skallagríms ileiknum á laugardag. Tindastólsmenn gulir og svartir í tilefni af afmælinu. Tindastóll og Hvöt áttu góóa helgi í boltanum. Tindastóll tók á móti Skallagrími á Sauðárkróksvelli en Blönduósingar skelltu sér í feröalag og heimsóttu Hvíta Riddarann í Mosfellsbæ. Það voru þeir Frosti og Dragan sem skoruðu mörk Hvatar gegn Hvíta Riddaranum á föstudaginn. Mörkin voru skoruð í sitthvorum hálfleiknum og endaði leikurinn því 2-0, Hvöt ívil. Hvatarmennvoruaðsögn betri aðilinn í leiknum og var sigurinn nokkuð öruggur, en þess má geta að Ásgeir skoraði mark sem dæmt var af. Tindastóll tók á móti Skallagrími á laugardaginn. í tilefni af 100 ára afmæli félagsins mættu strákarnir í splunkunýjum röndóttum búningum, gulum og svörtum, líkt og spilað var í í fyrstu leikjum félagsins. Stúkan var full af fólki og mögnuð stemning á svæðinu þar sem að framundan voru mikil hátíðarhöld í tilefni afmælisins. Söngur, bylgjur og brandarar flugu um stúkuna og þess væri óskandi að stemningin væri alltaf svona. Staðan í hálfleik var 1-1, en það var Pálmi Þór sem skoraði glæsilegt mark Stólanna. í seinni hálfleik vaknaði lið Tindastóls almennilega til lífsins og setti tvö mörk til viðbótar, en þar voru á ferðinni þeir Dejan Djuric og Ebbe Nygaard. Þessi sigur setti Tindastól í 1. sæti riðilsins, en ljóst er að mikil barátta mun ríkja á milli Tindastóls, Hvatar og Skallagríms í sumar. 3. deild karla : Hvöt - Tindastóll 0-1 Glæsilegur árangur á Fimmþrautarmóti Fimmþrautarmot i frjalsum Iþróttum var haldið a Sauðárkróksvelli sl. föstudag. Bar á því móti hæst, árangur Árna Rúnars Hrólfssonar, sem er besti árangur íslendings í sveinaflokki, 15-16 ára stráka. Þá stóð Linda Björk Valbjörnsdóttur sig vel í 300m grindahlaupi og náði hún lágmörkum inn í Afrekshóp Frjálsíþróttasambandsins fyrir þessa grein í sínum aldurs- flokki. Jafnframt var Hilmar Þór Kárason sem keppir fyrir USAH, mjög nálægt íslandsmeti í 200m hlaupi í sínum aldursflokki, sem er piltar 13-14 ára. Hilmar hljóp á 24,68sek en Islandsmetið sem er orðið 30 ára gamalt, er 24.0sek á handtíma sem yfirfærist á 24.24 sekúndur með rafmagnstímatöku. Norðlendingar í landsliðshóp Fjögur í lands- liðið í frjálsum Tilkynntur hefur verið landsliðshópurinn sem keppir fyrir íslands hönd í Evrópubikarkeppninni í frjálsum íþróttum, 2. deild, sem fer fram í Óðinsvéum í Danmörku helgina 23. - 24. júní. Gaman er að segja frá því að þrír Skagfirðingar urðu fyrir valinu og einn Vestur Húnvetningur. Þetta eru þau Ragnar Frosti Frostason, sem keppir í 4x400 boðhlaupi, Gauti Ásbjörnsson sem keppir í stangarstökki, Linda Björk Valbjörnsdóttir, sem keppir í 4x100 boðhlaupi og Guðmundur Hólmar Jónsson sem keppir í spjótkasti. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem þessir piltar eru í landsliðnu, en hins vegar er þetta fyrsta skipti Lindu Bjarkar sem hún er aðeins 15 ára gömul. Leikir helgarinnar Boltinn rúllar 3. deildin heldur áfram á fullum krafti núna um helgina og verður spennandi að sjá hvort strákarnir okkar í Hvöt og Tindastóli nái að treysta stöðu sína á topp deildarinnar. Þá eiga stelpurnar í Tindastól leik á Sauðárkróksvelli á mánudagskvöld. Stelpurnar eru án taps í 1. deildinni og verður spennandi að sjá hvað þær gera á móti liði Hamranna frá Akureyri sem eru tveimur sætum á eftir þeim í deildinni. Þá fara Hvatardrengir til Reykjavíkuráfimmtudagskvöld og eiga þar í höggi við Berserki en leikur þeirra fer fram á Vfldngsvellinum. Berserkir eru í 5. sæti deildarinnar en Hvöt í öðru. Strákarnir í Tindastól taka á móti Álftanesi á föstudags- kvöldið en þeir gerðu marka- laust jafntefli í fyrri yiðureign liðanna. Þar sem Feykir er hlutlaus miðill beggja liða segjum við einfaldlega: Áffam krakkar!

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.