Feykir


Feykir - 21.06.2007, Blaðsíða 6

Feykir - 21.06.2007, Blaðsíða 6
6 Feykir 24/2007 Fréttaskýring_______________ Altt um Gagnaveitu Skagafjarðar Karl Jónsson, Páll Pálsson og Gisli Sigurðsson við undirritun samsstarfssamnings milli Gagnaveitunnar og Tengils. Gagnaveita Skagafjarðar var stofnuð árið 2006. Eigendur hennar eru Sveitarfélagið Skagafjörður, Skagafjarðarveitur, Kaupfélag Skagfirðinga, Byggðastofnun, Fjölnet og smærri aðilar. Tilgangur Gagnaveitunnar er að leggja Ijósleiðara inn á hvert heimili á Sauðárkróki og víðar í þéttbýli eftir því sem aðstæður skapast og taka þátt í uppbyggingu á háhraðatengingum í dreifbýli Skagafjarðar. Feykir lagði nokkrar spurningar fyrir forsvarsmenn Gagnaveitunnar. Hvenær á að byrja og í hvaða röð? - í drögum að framkvæmda- áætlun hefur Gagnaveitan skipt bænurn upp í ijögur verksvæði; Túnahverfi, Hlíðahverfi, Syðri- bæ og Útbæ. Hafist verður handa í Túnahverfi í sumar og er áætlað að þar verði öll hús tengd í haust. Því næst verður haldið í Hlíðahverfi, þá syðribæinn og loks útbæinn. Áætlað er að ljúka þessu verkefni 2009. Er það okkar mat að þá verði Sauðár- krókur kominn í hóp þeirra þéttbýlisstaða sent tekið hafa forystu í möguleikum í nýtingu á upplýsingatækni. Hver verður stofnkostnaður íbúa? -Hann verður enginn. Ætlunin er að leggja ljósleiðann inn fýrir veggi heintila í sérstakt inntaks- box, íbúum að kostnaðarlausu. Unt leið og ljósleiðaratengingin er virkjuð er tengibox sett upp annarsstaðar á heimilinu og strengur lagður á milli inntaksboxins og þess. Úr þessu tengiboxi er síðan lagt í tölvur, sjónvörp, sírna og þau tæki sent tengja á. Mikilvægt er að fólk taki ljósleiðarann inn fýrir húsvegg svo möguleiki verði á því að virkja tenginguna. Ljósleiðarinn er lagður inn án stofngjalds á nteðan þessu verkefni stendur og á meðan framkvæmdir standa yTir í viðkomandi hverfi. Tugþúsunda stofnkostnaður fylgir því að taka ljósleiðarann inn síðar, þegar framkvæmdum er lokið í hverfinu. 'i'engingar innanhúss, úr tengiboxinu og í tölvur, sjón- vörp, síma og önnur tæki sem tengst geta ljósleiðaranum, verða á ábyrgð íbúa sjálfra. Skapast ekki af þessu heilmikið rask? -Óhjákvæmilega skapast jarð- rask við þessar ffamkvæmdir, bæði innan og utan ióða. Gagnaveitan og verktakar hennar munu leitast við að eiga góð og jákvæð samskipti við íbúa og ganga þannig frá málum að allir verði sáttir. Leitast verður við að nýta nýjustu tækni við lagnir til að lágmarka jarðrask. Hvernig ætlið þið að kynna þetta fyrir íbúum? -Á næstunni fá íbúar Túnahverfis dreifibréf frá Gagnaveitunni þar sem fram- kvæmdir í hverfinu verða nánar kynntar. Nauðsynlegt er að fá leyfi hjá íbúum til þess að fara í gegn um lóðir þeirra og mun yfirlýsing fýlgja dreifibréfinu sem íbúar þurfa að undirrita og koma í afgreiðslu ráðhússins sem allra fyrst. Með því að undirrita yfirlýsinguna veita íbúar Gagnaveitunni leyfi til að fara inn á lóðirnar. Yfirlýsinguna verður einnig að finna á heimasíðu Gagnaveitunnar. Þá verður fljótlega haldinn kynningarfundur fyrir íbúa Túnahverfis og verður hann nánar auglýstur síðar. Sami háttur verður hafður á í kynningu nteðal íbúa annarra hverfa þegar að því kernur. En til hvers ljósleiðari og hvað hefur hann fram yfir hefðbundnar tengingar? -Allir eru sammála um að ljósleiðari verði gagnaflutnings- leið framtíðarinnar. Hann getur flutt gögn með margföldum hraða hefðbundinna ADSL tenginga og flytur þau jafnhratt í báðar áttir, en ADSL tengingar bjóða aðeins upp á uppgefinn hraða til notanda en mun minni hraða frá honurn. Með framtíðar uppfærslu á endabúnaði má síðan ná margfalt nteiri flutningshraða án þess að hreyfa við lögnunt í jörðu. Með ljósleiðaratengingum er hægt að flytja sjónvarpsefni og símaþjónustu auk þess sem hægt er að bjóða upp á hefðbundna internetþjónustu. Með því að færa sjónvarp yfir á ljósleiðarann er hægt að taka niður loftnet af húsum og með því að taka símaþjónustu þar í gegn, þarf fólk ekki að hafa virka kopartengingu vegna flutnings á símaþjónustu, en í dag eru símaþjónusta og í flestum tilfellum internetþjónusta flutt yfir koparvírinn. Möguleiki skapast t.d. á því að taka á móti tugum sjónvarpsrása í gegn urn ljósleiðarann, nokkuð sem takmörkum er háð í gegn um hefðbundnar ADSL tengingar. í framtíðinni er búist við því að þjónustuveitendur fari í auknum mæli inn á ljósleiðarakerfi og hætti hefðbundinni þjónustu yfir kopar, í þeim samfélögum sem tengja sín heimili Ijósleiðara. Margvíslegir möguleikar skapast með tilkomu Ijósleið- aratengds samfélags. Má þar helstnefnamöguleikaírafrænni stjórnsýslu og heilbrigðis- þjónustu, ntöguleika íbúa á uppsetningu vinnustöðva á heimilunt sínum, aukna möguleika í fjarkennslu og námi, hægt verður að bjóða upp á svæðisbundið sjónvarp í Skagafirði sem dæmi, mynd- bandaleigu á netinu og fleira. Hvernig verður þjónustu við kerfið háttað? -Gagnaveita Skagafjarðar mun aðeins reka ljósleiðaranetið og selja aðgang að því fyrir fasta mánaðarlega upphæð. Aðrir aðilar koma til með að veita þjónustu inn á kerfið svo sem hefðbundna internetþjónustu, sjónvarpsdreifingu og síma- þjónustu. Nú þegar hafa Fjölnet og Vodafone ákveðið að veita þjónustu inn á kerfið og mun sú þjónusta verða nánar kynnt síðar. Hvað með dreifbýlið á það að sitja eftir? -Nei, Samhliða lagningu hita- veitu út að austan og á Hofsósi verða lögð ljósleiðararör sem dregið verður í þegar tækifæri gefst. Það sarna má segja með ljósleiðararör í Akrahreppi sem lögð voru samhliða hitaveitu þar. Skv. áætlunum Skagafjarðarveitna verður hitaveita lögð í Sæmundarhlíð og Hegranesi á komandi árum og verða ljósleiðararör þá lögð samhliða því. Gagnaveitan hefur vakandi auga fyrir lagningu ljósleiðararöra hvar sem skurðir opnast í héraðinu. Þá höfum við ákveðið að taka þátt í uppbyggingu á háhraðaneti í dreifbýli Skagafjarðar. Höfum við nú þegar sent inn upplýsingar til Fjarskiptasjóðs og afmarkað okkur svæði innan héraðsins þar sem við ætlum að byggja upp háhraðanettengingar. Þarf því að vera lokið á því svæði fyrir 1. júlí 2008. Fjarskiptasjóður mun síðar í sumar bjóða út þau svæði á landinu sent fjarskiptaaðilar hafa ekki í hyggj u að byggja upp netsamband á markaðslegum forsendum og geta áhugasöm fjarskiptafyrirtæki sótt um styrki til sjóðsins til að byggja upp slík sambönd. Gagnaveita Skagafjarðar hyggst falast eftir styrk frá sjóðnum til að klára uppbyggingu alls héraðsins og konia þar með dreifbýlinu í traust og öflugt samband við umheiminn. Þessi tvö kerfi Gagnaveitunnar, þ.e. ljósleiðarakerfið og dreifbýlis- kerfið, munu verða samtengd. fbúum dreifbýlis Skaga- fjarðar verður nánar tilkynnt um framgang þess verkefnis þegar fram líða stundir. Varla standið þið einir að þessu? -Við erurn í samstarfi við Tengill rafverktakaehf. ogþessa dagana er verið að ganga frá gögnum vegna tilboðsgerðar jarðvinnuverktaka. Tengils- menn munu sjá um Iagningu röra í samvinnu við jarðvinnuverktakann, íblástur ljósleiðara og allar tengingar utan og innan heimila. Jarðvinnuverktakinn mun sjá um alla jarðvinnu og frágang skurða og sára sem myndast við framkvæmdina. Verður það gert í fullu samráði við íbúa og í góðri sátt. Það er markmið Gagnaveitunnar að standa vel að málum og ná upp jákvæðu og skemmtilegu samstarfi við íbúa um þetta stóra og mikla framfaraverkefni. Fyrir þá sem vilja kynna sér máliðffekarerbentáheimasíðu Gagnaveitunnar á slóðinni www.skv.is/gagnaveita og þar verður að finna ýmsar upplýsingar um fyrirtækið og fréttir af framgangi verkefna. Heimasíðan mun verða uppfærð reglulega með fréttum af framgangi verkefnisins. Kynningarbæklingi verður dreift inn á öll heimili í Skagafirði núna þessa dagana en hann verður einnig að finna á heimasíðunni.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.