Feykir


Feykir - 21.06.2007, Blaðsíða 8

Feykir - 21.06.2007, Blaðsíða 8
8 FeykJr 24/2007 Starfsemi Listasetursins að Bæ komin ígang Listaseturá Höfðaströnd Starfsliðið i Bæ í sumar. Frá vinstri: Bryndis Bjarnadóttir ráðskona.Sigríður Bjarnadóttir aðstoðarstúlka, Steinunn Jónsdóttir og Simon Gestsson ráðsmaður. Mynd: ÖÞ Listasetrið Bær á Höfðaströnd var formlega opnað fyrir skömmu. Fyrstu gestirnir eru þegar komnir og farnir að vinna að sínum hugöarefnum. Eins og gefur aö skilja hefur starfsemin átt sinn aðdraganda. Framkvæmdir hafa staðið yfir í rúm tvö ár og hafa bæði húsakostur og næsta nágrenni tekið miklum breytingum þótt húsaskipan sé nánast óbreytt. Stofnandi Listasetursins er Steinunn Jónsdóttir, innanhússarkitekt í Garðabæ. Listasetrið er rekið í formi sjálfseignarstofiiunar en Stein- unn leggur henni til aðstöðu og rekstrarfé. Hún á ættir að rekja norður í Fljót og var á yngri árum í sveit í Lambanesi í Fljótum hjá Hermanni afabróður sínum. En hvað er listasetur? Hvað mun gerast þar í ífamtíðinni? Og hvers vegna varð Bær fyrir valinu? Tíðindamaður blaðsins hélt á fúnd Steinunnar með þessar spurningar og raunar fleiri og settist niður með henni í stofunni að Bæ. „Hugmyndin er ekki mjög gömul. Ég var búin að vinna sem innanhússarkitekt í tæp tíu ár en ákvað þá að fara í eitt ár til Boston í Bandaríkjunum í framhaldsnám í myndlist og fór þangað haustið 2003. Ég var á vissum krossgötum þá svolítið óákveðin í hvað ég tæki mér fyrir hendur þegar ég lyki náminu. Þarna úti kynntist ég vel hvernig listasetur starfa, menningunni þeirn tengdum og hvernig slík starfsemi er byggð upp. Fyrst datt mér í hug að falast eftir húsnæði í Haganesvík. Fannst gömlu kaupfélagshúsin þar spennandi og svo langaði mig til að vera nærri fjölskyldunni minni á sumrin, en mitt fólk dvelur töluvert í Fljótunum á sumrin og hefúr gert í mörg ár. Svo þegar ég fór að skoða aðstæður þar betur komi í ljós að Haganesvíkin var ekki eins hentugur kostur og ég hélt í fyrstu. Ég kom heim úr myndlistar- náminu sumarið 2004 og var þá búin að ganga með þessa hugmynd í maganum í nokkra mánuði. Fréttisvofyrirtilviljunað Bær á Höfðaströnd væri til sölu. Ég var ekki lengi að sannfærast um að þessi jörð fæli í sér einstakar aðstæður fyrir uppbyggingu á starfsemi listaseturs -fékk það raunar staðfest hjá ömmu minni í ffábærum dagsbíltúr ffá Reykjavík og heim affur strax í upphafi alls þessa, en hún er komin hátt á níræðisaldur og fylgist vel með, hefúr meira að segja litið nokkrum sinnum við á ffamkvæmdatímanum”. Þá voru hér nokkuð stórt fjós og hlaða sem þú ætlaðir að breyta og nota en hættir svo við það. Af hverju? „Það er rétt; upphaflega áætlunin var að breyta þessum byggingum og nota þær sem mest í upprunalegri mynd. En þegar við fórum að skoða steypuna í veggjunum og ástand húsanna betur kom í ljós að nauðsynlegt yrði að rífa öll útihúsin. Fyrst við fórum útí að rífa þessar gömlu byggingar lagði ég mikla áherslu á hið nýja yrði senr líkast því sem var í stórum dráttum, til dæmis hvað varðaði grunnflöt, húsagerð, mænishæðir og þess háttar. Þó að þessar endurbætur yrðu allar miklu umfangsmeiri en ég ætlaði svona fyrirffam er ég afar ánægð með hvernig hefúr tekist til. Upphaflega hugmyndin var að opna hérna í bvrjun júlí í fyrra í tengslum við landsmót hestamanna. Það var náttúrlega mikil bjartsýni og fljótlega ljóst að sú áætlun stóðst alls ekki. Ég var svo lánsöm að fá ffábæran mann í lið með mér við uppbygginguna, Símon Gestsson á Barði hefúr ffá upphafi starfað sem ráðsmaður minn að Bæ og hefúr hann unnið að öllu þessu stóra verkefni af rniklum dugnaði og verið lykilmaður í að gera þetta allt að veruleika. Aðalverktaki við alla ffamkvæmdina var Friðrik Jónsson ehf. á Sauðárkróki með þá feðga Ólaf Friðriksson og hans syni í fararbroddi. Bjarni Reykjalín arkitekt á Akureyri vann með mér að öllum verkteikningum og samstarfið við hann um alla þessa skipulagsvinnu hefúr verið ákaflega gott. Svo sá Stoð á Sauðárkróki um alla verkffæðiteikningar.” Framkvæmdum að mestu lokió Hvemig mun svo Listasetrið Bær starfa? „Listasetrið mun starfa yfir sumarmánuðina. Það verða tveir hópar listafólks hér í sumar, hugsanlega fleiri í ffamtíðinni. í hverjum hópi verða fimm alþjóðlegir gestir og dvelja þeir í fjórar vikur hér að Bæ. Listasetrið er hugsað sem afdrep fyrir myndlistarfólk og arkitekta, en það er kannski bakgrunnur minn sem gerir það að ég legg áherslu á að hafa arkitekta með. Ég vonast til að umsóknir hér innanlands gefi tækifæri til að bjóða einum íslendingi að vera með í hveijum fimm manna hópi. Hér verða starfándi auk mín og Símonar bæði kokkur og aðstoðarmanneskja þann tíma sem gestirnir dvelja hér. Gestirnir greiða ekki fjrir vistina en koma sér sjálfir til og ffá landinu. Hver þeirra fær vinnustofúíbúð til umráða sem er um 50 ferm að stærð. Þar er, auk vinnuaðstöðu, svefnherbergi og snyrting nreð sturtu. I staðinn fyrir ffía dvöl, vonumst við til að dvalargestir skilji eitthvert verk eftir við brottför. Ekki endilega eitthvað stórt en þó verk sem verður hluti af framtíðarsafiri listasetursins. Ég vona svo sannarlega að umhverfið hér sem mér sjálfri finnst alveg stórkostlegt verki vel á listsköpun allra þeirra sem hér munu dvelja í ffamtíðinni.” Er uppbyggingu hér að Bæ lokið? „Já að mestu. Síðasti hluti framkvæmdanna hér að Bæ er bygging hesthúss nú í haust. Það er stefnan að fjölga hrossum svolítið, og konta upp lítilli ræktun í framtíðinni sem er samstarfsverkefni okkar Símonar.” Nú eru þegar til sýnis nokkuð af málverkum og teikningum að Bæ. Segðu mér ögn hvernig það er tilkomið. „Þegar ég var úti í Boston kenndi mér kona sem heitir Nan Freeman. Hún er virtur listamaður í sínu heimalandi. Hún hefúr hvatt mig rnikið og stutt á ýmsan hátt við að hrinda þessu öllu í framkvæmd. Hún hefúr alveg brennandi áhuga fyrir öllu senr viðkemur íslenska hestinum og er í raun áhugasöm fyrir öllu sem snertir ísland. Hún kom hingað til lands árið 2004. Þá fórum við á landsmót hestamanna og heimsóttum hrossaræktarbú bæði sunnanlands og norðan. Við ákváðum í framhaldi af þessu ferðalagi að hafa sýningu á íslenska hestinum þegar listasetrið yrði tekið fornrlega í notkun. Þetta gekk sem betur fer allt eftir, við hengdum verkin uppaðmorgniHvítasunnudags, rétt fyrir opnunarhófið.” Það er komið að lokum viðtalsins við Steinunni í Bæ. Hún hefur leitt blaðamann um húskostinn á staðnum. Ljóst er að þar hefur mikil breyting átt sér stað á stuttum tíma. Þetta á við jafiit innandyra sem utan þar sem aðkoma að staðnunr er sérlega glæsileg. En Steinunn hefur fengist við ýmislegt fleira en uppbygginguna í Bæ undanfarin tvö ár. Á sama tíma og hún eignaðist jörðina, settist hún enn einu sinni á skólabekk og útskrifaðist vorið 2006 með MBA gráðu ffá Háskólanum í Reykjavík. Hún á eigið fjárfestingarfélag og situr í stjórn Norvikur sem er fyrirtæki fjölsk)'ldunnar. Auk þess hafa orðið miklar breytingar á persónulegum högum hennar á þessum tíma, hún á ungan son með sambýlismanni sínum auk tveggja eldri barna ffá fyrra sambandi. En er Steinunn sátt við hvernig til hefur tekist við uppbygginguna í Bæ? „Já mjög ánægð. Bara það að hafa náð þessari einstaklega fallegu jörð og komið þessari starfsemi á laggirnar er ffábært og gefandi. Sérstaklega er skemmtilegt að nú þegar eru hér starfandi listamenn, sumarið fúllbókað og fyrirspurnir varðandi dvöl á næsta ári eru famar að berast utan úr heimi” sagði Steinunn Jónsdóttir að lokum. ÖÞ: íbúðarhúsið í Bæ fékk rækilega andlitsliftingu og allt umhverfi á staðnum er sérlega skemmtilegt hvað skipulag og útlit varðar. Mynd: ÖÞ

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.