Feykir - 21.06.2007, Page 10
lO Feykir 24/2007
Umf. Tindastóll 100 ára
Fótboltahátíð
aldarinnar
Hátiðarhold vegna 100 ara afmælis UMF Tindastols foru
fram með pompi og prakt, laugardaginn 16. júní. Um 270
manns sátu til borðs í íþróttahúsinu og voru viðstödd
hátíðardagskrá í tilefni dagsins.
Fótboltafólk á öllum aldri
mætti á Sauðárkrók til þess
að fagna afmælinu. Hófst
dagurinn með hádegisverði
á Kaffi Krók og fljótlega eftir
hann hófst leikur Tindastóls og
Skallagríms. Hörkuleikur var
þar á ferðinni og stemningin
á vellinum hreint með ólík-
indum. Sungið og klappað auk
þess sem ófá gullkornin flugu
um stúkuna á milli þess sem
mannskapurinn tók bylgju.
Um kvöldið var síðan
hátíðardagskrá í íþróttahúsinu
á Sauðárkróki og voru margir
búnir að bíða eftir þessu kvöldi
nreð mikilli eftirvæntingu.
Dagskráin innihélt meðal
annars ræðuhöld hinna
ýmsu manna, glefsur frá
liðnum tímum, afliendingu
viðurkenninga, heiðursviður-
kenningar, söngatriði og
uppboð, þar sem t.d. árituð
Barcelona treyja var seld á
einar 75 þúsund krónur. Að
hátíðardagskrá lokinni hófst
dansleikur, þar sem hljómsveit
Geirmundar Valtýssonar lét
fyrir dansi.
Pétur Ingi Björnsson var á
svæðinu og tók fjöldann allan
af skemmtilegum myndum
frá kvöldinu sem hægt er að
nálgast á Skagafjörður.com.
Gunnar Þór Gestsson formaður UMFT ásamt Sverri Þór Hákonarsyni, Mark Franek og
vinkonu hans.
Hluti meistaraflokks UMFTI dag og 2003 tróð upp og ásamt Hreimi, Vigga og Benna og
sungu tvö lög. Frá vinstri: Vala Hrönn, Anna Ragna, Brynhildur Þöll, Halla Mjöll, Elva,
Inga Birna og Ragnhildur.
Þessar unglegu dömur voru á takkaskónum seint á siðustu öld.
Gylfi Geiraldsson ifélagi við Pál Ragnarsson og Pálma
Sighvatz.
Eyjólfur Sverrisson, Stefán Haraldsson og Gisli Sigurðsson
voru meðal þeirra sem voru heiðraðir á afmælishátiðinni.
Meistaranám iðnaðarmanna -almennur hluti veröur
kennt næsta haust, ef næg þátttaka fæst.
Gert er ráð fyrir að nám fari fram síðdegis og kennt verði
í gegnum fjarfundabúnað utan Skagafjarðar.
Þá er enn hægt að bæta við nemendum í
grunndeild rafiðna og gálmiðngreinar -fyrri hluta.
Smjöjyi
KS LAMBABÓGUR
KS LAMBALÆRI
ICEBERG
SMJÖRVI
GRAND CRUE
LAMBALÆRI
LAMBAFILLE OQQ _