Feykir - 19.07.2007, Page 1
Láttu ekki vandræðin
verða til vandræða
Ibúðalánasjóður
www.ils.is
800 fm sorpflokkunarstöð mun rísa á Sauðárkróki í haust.
Flokka ehfrís á Saudárkróki___________
Allir að flokka og skila
Móttökustöð fyrír flokkaðan úrgang mun rísa á Sauðárkróki
við Borgarteig 12 í haust. Þar gefst bæjarbúum og
nærsveitarmönnum loksins kostur á að skila inn úrgangi að
öllu tagi, allt frá rafgeymum og málningu til mjólkurferna og
pappakassa.
Móttökustöðin hefur hlotið
nafhið Flokka ehf og er í eigu
Ómars Kjartanssonar, en
Ómar skrifaði í árslok árið
2006 undir 10 ára samning
við Sveitarfélagið Skagafjörð.
Með samningnum er gert
ráð fyrir að Flokka ehf, taki á
móti öllu sorpi Skagfirðinga
og flokki það eftir ströngustu
reglugerðum. Því næst fari það
i endurnýtingu bæði hér heima
og erlendis. Það sorp sem ekki
fáist farvegur fyrir verði urðað.
Lokið hefur verið við að
steypa 800 fermetra grunn og
mun stöðin opna í október eða
nóvember. Á planinu fyrir utan
stöðina munu standa gámar
þar sem fólk getur losað sig við
grófan úrgang, s.s. timbur og
dekk en að öðru leiti verður
tekið á móti öllum öðrum
úrgangi í stöðinni, þó hinsvegar
verði það Jarðgerð ehf sem taki
áffam á móti lífrænum úrgangi
bæjarbúa.
Nú þegar Skagfirðingar hafa
loks tækifærið, er mikilvægt að
allir taki höndum saman, flokki
úrganginn og skili í Flokku
ehf.
Skagafjörður
Samið við Vodafone
Byggðarráð SkagáQarðar
ákvað á fundi sínum þann
9. júlí sl. að segja upp
þjónustusamningi viðSímann
og taka tilboði Vodafone.
Á fundi sínurn ítrekaði
bæj arráðáðurfraemurþarskýit
ffam að lagst er alfarið gegn
lagningu umrædds vegar um
Svínavatn í Húnavatnshreppi
enda samræmist veglagningin
engan vegin áformum
þeirra um áffamhaldandi
ffamtíðarnýtingu jarðanna.
Frjálsar íþróttir
Glæsilegt hjá
Helgu Margréti
Helga Margrét Þorsteinsdóttir, USVH, hafnaði í 5.sæti á
Heimsmeistaramóti ungmenna 17 ára og yngrí í sjöþraut í
Ostrava í Tékkland. Helga Margrét hlaut samtals 5405 stig.
Helga sigraði 800 metra
hfaupið, sem var síðasta grein
þrautarinnar með yfirburðum,
hljóp á persónulegu meti
2:17,72 mín. Var hún aðeins
27 stigum frá 4.sætinu og 89
stigum ffá bronsverðlaunum
á mótinu. Setti Helga Margrét
með þessu árangri sínu nýtt
meyjamet og var þremur stigum
yfir íslandsmeti Kristínar
Birnu Ólafsdóttur (5402 stig)
í kvennaflokki, en þar sem
hæð á grindum er 76,2 cm í
þessu móti, en ekki 84 cm eins
og í kvennaþraut, er ekki um
íslandsmet kvenna að ræða, en
það er eini munurinn á þessari
þraut og sjöþraut kvenna.
Sjá nánar á síðu 6.
Ábúendur jarða leggjastgegn lagningu
Heimamenn á móti
vegi við Svínavatn
Á fundi bæjarráðs Blöndu-
ósbæjar þann 27. júní sl.
var tekin fyrir tillaga að
matsáætlun fyrir veg við
Svínavatn. Á sama fundi var
lagður fram undirskriftalisti
landeigenda á svæðinu.
Á fundi sínum ítrekaði
bæjarráð áður ffamkomna
afstöðu bæjarstjómar Blöndu-
ósbæjar. Sem lá fyrir bæði
samkvæmt bréfi dagsettu 9.
febrúar 2006 auk umsagnar
vegna tillögu til þingsályktunar
um samgönguáætlun fyrir
árin 2007 - 2018 ffá 1. mars
sl. Bæjarstjóri Blönduósbæjar
hefur sent Skipulagsstofnun
bréf þar sem ffam kemur
að á grundvelli andstöðu
bæjarstjómar við fyrirhugaða
ffamkvæmd sjái bæjarráð
ekki ástæðu til að veita
umsögn við tillögu að
matsáætlun fyrir veg við
Svínavatn enda sé hugmyndin
í hróplegu ósamræmi við
skipulag svæðisins, afstöðu
sveitarstjórnarmanna, land-
eigenda og ábúendur þeirra
jarða sem fyrir raski myndu
verða.
Með bréfinu fylgdi undir-
skriffalisti eigenda og ábúenda
þeirra jarða í sýslunni sem
framkvæmdin myndi hafa
áhrif á og kemur þar skýrt
ffam að lagst er alfarið gegn
lagningu umrædds vegar um
Svínavatn í Húnavatnshreppi
enda samræmist veglagningin
engan vegin áformum
þeirra um áffamhaldandi
ffamtíðarnýtingu jarðanna.
Hreppsnefhd Húnavatns-
hrepps komst að sörnu
niðurstöðu á fundi sínum
þann 4. júlí sl.
VIÐ BÓNUM OG RÆSTUM!
Daglegar ræstingar og
reglubundið viðhald á bóni
í fyrirtækjum og stofnunum
Hringdu núna eða sendu tölvupóst
Sími: 893 3979 * Netfang: siffo@hive.is
—CTenftll eh|3—
Canon
PowerShot
A570IS
Aöalgötu 24,550 Sauðárkrókur:: Sími 453 5519 :: Fax 453 6019
Bílaviðgerðir
hiólbarðaviðgerðir