Feykir - 19.07.2007, Síða 2
2 Feykir 27/2007
Einar Oddur Kristjánsson látinn
Andlát
Einar Oddur Kristjánsson,
þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins í NV-
kjördæmi, varð
bráðkvaddur sl. laugardag
er hann var í fjallgöngu á
Kaldbak á Vestfjörðum
ásamt hópi fólks. Einar
Oddur var 64 ára að aldri
og lætur eftir sig
eiginkonu, Sigrúnu Gerðu
Gísladóttur og þrjú börn.
Einar Oddur fæddist á
Flatcyri 26. des. 1942. Hann
var fyrst kjðrinn á þing árið
1995. Einar Oddur var
skrifstofumaður á árunum
1961-1965. Póstafgreiðslu-
rnaður 1965-1968. Hannvarð
síðar framkvæmdastjóri
Fiskiðjunnar Hjálms hf.,
Stjórnarformaður Hjálms hf.,
Vestfirsks skelfisks hf. og
Kambs hf. Þá tók hann að sér
í gegnum tíðina ófá nefndar-
og trúnaðarstörf.
Með Einari Oddi er
genginn einn ötulasti tals-
maður landsbyggðarinnar.
Feykir vottar aðstandendum
Einars samúð sína.
Leiðari
Stöndum vörð
um byggðirnar okkar
Ég sat á dögunum í góðumfélagsskap og umræðuefnið
var landsbyggðin og samgöngumál. Fólkið sem sat með
mér var allt landsbyggðarfólk en ágreiningur okkar var
mikill. Öll voru þau á þeirrí skoðun að skera ætti Blönduós
frá þjóðvegi eitt og byggja þar að auki veg yfir hálendið.
Þau vildu sjá leiðina á milli aogb eða Akureyrar og
Reykjavíkur styttast. Ég, sem get veriðfjandi rökfóst, átti
ekki roð í þetta fólk.
Þeim fannstþað nánast brot á sínum rétti að þurfa að
leggja lykkju á leið sína, eins og þau kölluðu það, tilþess
að halda Blönduós í byggð eða sjoppunni þar opinni. Mér
fannstþetta sorgleg umræða og endaði meðþví að draga
mig í hlé, sem er ekki líkt mér, ég hreinlega nennti ekki að
stofra dl leiðinda því ég sá að við yrðum að vera sammála
um að vera ósammála.
Þarna sá ég líkafram á mikilvægiþess að við íbúar
á Norðurlandi Vestra stöndum saman öll sem eitt og
stöndum vörð um byggðirnar okkar. Held að þacI sé orðið
útséð með aðþað gerirþað alla vega enginn fyrir okkur.
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is
sími 8982597
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Feykir
Utge/andi:
Nýprent ehl.
Borgarflöt I Sauðárkróki
Póstíang Fcykis:
Box 4,550 Sauðárkrókur
Bladstjórn:
Árni Gunnarsson,
Áskell Heiðar Ásgeirsson,
Herdis Sæmundardóttir,
Ólafur Sigmarsson og
Páll Dagbjartsson.
Ritstjóri &
ábyrgðarmaður:
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is
Sími 455 7176
Blaðamenn:
Óli Arnar Brynjarsson
oli@nyprent.is,
Örn Þórarinsson,
Ragnhildur Friðriksdóttir.
Prófarkalestur:
Karl Jónsson
Askriftarverð:
275 krónur hvert tölublað
með vsk.
Lausasöluverð:
325krónurmeð vsk.
Áskrift og dreifing
Nýprent ehf.
Sími 455 7171
Umbrot og prentun:
Nýprent ehf.
Skagafjörður
Líknaríbúð tekin í notkun
Þorsteinn Þorsteinsson læknir og formaður Krabbameinsfélagsi Skagafjarar og Herdís
Klausen hjúkrunarforstjóri.
Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki opnaði á dögunum
litla íbúð sem ætluð er krabbameinssjúkum, sem þar
dvelja.
Þorsteinn Þorsteinsson,
læknir og formaður Krabba-
meinsfélags Skagafjarðar, fór
fyrir samkomu af þessu tilefni
og sagði við það tækifæri að
fjölmargar gjafir hefðu borist
félaginu og hefði verið tekin
ákvörðun um að nota gjafirnar
að þessu sinni til að innrétta
íbúð til þess að sinna
sjúklingunum enn betur og
gera legu þeirra og dvöl
auðveldari og betri.
Nýlega hefðu veglegar
minningargjafir bekkjar-
systkina ögmundar Helga-
sonar sagnfræðings, sem lést
úr krabbameini fyrir nokkrum
misserum, svo og frá Kven-
félagi Lýtingsstaðahrepps og
afrakstur af vinnuvöku
Sambands skagfirskra kvenna,
verið afhentar. Ákveðið var að
nota þessar gjafir til þess að
koma upp þessari íbúð. Búið
að er að innrétta íveruherbergi
sjúklinga en við hlið þess er
gert ráð yfir setustofu þar sem
hægt verði að taka á móti
gestum.
Herdís Klausen, hjúkrun-
arforstjóri, tók við gjöfunum
fýrir hönd heilbrigðisstofnuna
rinnar.
Lionskonur láta gott afsér ieiða
Gjöf til endurhæfingardeildar
Konurnar í Lionsklúbbnum Björk á Sauðárkróki afhentu
28. júní s.l. endurhæfingardeild Heilbrigðisstofnunar
Sauðárkróks vöðvaspennu-greiningartæki af gerðinni
Kine Live.
Tækið er íslensk hönnun
frá fyrirtæki sem heitir Kine.
Tækið er notað til að greina og
mæla spennu í vöðvum, bæði
við átak og slökun og getur
sagt til um á skýran og
greinilegan hátt hvort
viðkomandi er að gera réttar
hreyfingar í æfingum sínum.
Þetta er gert þannig að lítill
þráðlaus skynjari er settur á
vöðvann og sendir hann merki
í greiningartæki sem er tengt
við tölvuskjá og á skjánum
kemur fram hve mikil eða lítil
spenna er í þeim vöðva sem
verið er að mæla, en það sem
er best er að viðkomandi sér
sjálfur á skjánum hvort hann
er að spenna eða slaka og hve
mikið hann spennir og fær
þannig sjónrænar upplýsingar
(feedback) strax. Tækið var
keypt í samráði við starfsfólk
endurhæfingardeildarinnar.
Sest að í Árósum í vetur
Séra Gísli fer í námsleyfi
Séra Gísli Gunnarsson,
prestur á Glaumbæ, leggur
land undir fót föstudaginn
20. júlí er hann heldur til
Kaupmannahafnar. Eftir
mánaðardvöl þar kemur hann
heim og fer svo aftur út til
Árósa, þar sem hann mun
dvelja í vetur ásamt
eiginkonu sinni.
„Ég er nú ekki eldklár í
dönskunni, en þar sem ég mun
aðallega vera að þjónusta
Islendinga í Danmörku þá ætti
það ekki að koma að sök”, segir
Gísli Gunnarsson, en hann
mun í mánuð leysa
sendiráðsprestinn í Danmörku
af. Þar mun hann meðal annars
þjóna þeim íjölmörgu
íslendingum sem búsettir eru í
Danmörku.
í ágúst mun Gísli halda aftur
heim, en stefiran er svo sett á
háskólann í Árósum í
september, þar sem hann mun
lesa listasögu í heinrspeki-
deildinni. Þar nrun hann
aðallega lesa um ldrkjulist og
list sem við kemur trú.
Þau hjónin koma því til með
að setjast að í Danmörku yfir
veturinn, en það verður Séra
Dalla Þórðardóttir á Miklabæ
sem mun leysa Gísla af.
Skagafjörður
Tengill stækkar
við sig
Fyrirtækið Tengill ehf. á Sauðárkróki tók á dögunum við
rekstri á þjónustu Fjölnets ásamt fleiri verkefnum. Tengill
hafði hingað til rekið tveggja manna tölvudeild en hefur
starfsmönnum tölvudeildar Tengils nú fiölgaó í sex.
Við þessar breVÍngar lét því verkefni senr við erum að
Snorri Styrkársson af starfi
framkvæmdastjóra Fjölnets
og tók Gísli Sigurðsson, við
því starfi. -Það er bara ný
búið að ganga frá þessu og til
þess að byrja með verða ekki
miklar brevtingar á þjónustu
okkar. Við steínum hins vegar
á að byggja hana upp og með
fara út í samstarfi við
Gagnaveituna má gera ráð
fyrir að þjónusta okkar aukist
jafnt og þétt næstu árin.
Gagnaveitunni fylgja miklir
möguleikar sem við ætlum
okkur að nýta til fullnustu,
segir Gísli.