Feykir - 19.07.2007, Page 4
4 Feyklr 27/2007
M I N N I N G
Hjálmar Sigurjón Guðjónsson
bóndi á Tunguhálsi II
fæddur 15. mars 1943 - dáinn 20. júní 2007
Vorið 1983 fór níundi
bekkur Varmahlíðarskóla
í skemmtiferð inn að
Hraunþúfuklaustri í
Vesturdal í Skagafirði.
Leiðsögumaður var Hjör-
leifur heitinn Kristinsson
á Gilsbakka. Hjörleifur
kunni vel að segja frá og fór
rétt með. Þó fannst okkur
með ólíkindum frásögn
hans af því þegar Hjálmar á
Tunguhálsi bjargaði hestum
út úr brennandi húsi inni á
afréttinum. Hrossin trylltust
í reyknum og hitanum og
varð Hjálmar að bera þau út.
Mörgunt árum síðar
minntist ég á þetta við
Hjálmar. Hann gerði lítið
úr afrekinu og sagði að flest
hrossin hefðu farið út sjálf
en einhver hefði hann þurft
að taka með valdi. “Enda
enginn tími til þess að vera að
dunda neitt við þetta,” sagði
Hjálmar og hló sínum dillandi
hlátri, sem var svo smitandi að
maður fór að skellihlæja af því
einu að hlusta á hann. Birgir
Haraldsson á Bakka sagði mér
að þeir Hjálmar hefðu verið
að vinna saman í kjötsalnum
í “Neðra Sláturhúsinu” sem
svo var kallað meðan það var
og hét.
Þá var oft gantast og þegar
Hjálmar byrjaði að hlæja,
„smitaðist hláturinn inn eftir
færibandinu og lengst inn í
frystiklefa.”
Hjálmar Guðjónsson á
Tunguhálsi verður okkur
samferðafólkinu minni-
stæður. Hann var þéttur á
velli og mikið hraustmenni.
Góður félagi og glaðsinna,
söngelskur og líkt og atgervið
var röddin mikil og sterk.
Það sópaði að Hjálntari
þar sem hann fór. Hann
var ötull félagsmálamaður
og hafði sterkar skoðanir á
málefnum líðandi stundar.
Hjálmar og kona hans Þórey
Helgadóttir tóku þátt í starfi
Rökkurkórsins og voru þar í
forystusveit. Hjálmar starfaði
að félagsmálum bænda og átti
sæti í stjórn Búnaðarsambands
Skagfirðinga. Hann var
öflugur talsmaður íslensks
Iandbúnaðar, varaði við
verksmiðjubúskap og barðist
fyrir því að fjölskyldubúin
mynduðu grunneiningarnar í
sveitunum.
Þegar farið er yfir liðna
tíð er margs að minnast
en í mínum huga stendur
upp úr minningin unt
fjölskylduföðurinn, bóndann
og náttúrubarnið Hjálmar.
Hann hafði glöggt auga fyrir
ræktun og byggði ásamt konu
sinni og fjölskyldu upp sitt bú
þannig að það er öðrum til
fyrirmyndar. Þegarstundgafst
milli stríða var lagt á og riðið
út. Þannig er gott að njóta
lífsins. Ríðandi fasmiklum
fjörhestum úr eigin ræktun
með eiginkonu, börnum og
barnabörnum. “Með nesti
við bogann og bikar með/
betra á dauðlegi heimurinn
eigi.” Eftirminnilegar og
góðar stundir hvort sem riðið
var inn til dala eða niður í
byggðina.
Nú kveð ég Hjálmar á
Tunguhálsi og þakka honum
fyrir góð kynni og vináttu.
Þóreyju, dætrunum og
barnabörnunum votta ég
samúð mína. Það er mikil
eftirsjá af Hjálmari. En enginn
ræður sínum næturstað og
þegar kallið kemur skiptir
mestu að geta litið stoltur yfir
farinn veg. Það gat Hjálmar á
Tunguhálsi sannarlega gert.
Drottinn blessi minningu
hans.
Árni Gutmarsson
frá Flatatungu
Gunnar Bragi Sveinsson og Gréta Sjöfn Guómundsdóttir skrifa
Sveitarfélagið Skagafjörður
- l.árs afmæli meirihlutans
Um þessar mundir
er rúmt ár liðið frá
því að meirihluti
Framsóknarflokks
og Samfylkingar
tók við ábyrgð og
stjórnun Sveitarfélagsins
Skagafjarðar. Það er mat
meirihlutans að vei hafi
tekist til við að koma
mörgum afar góðum
málum af stað, klára mörg
þeirra og síðast en ekki
síst Ijúka við brýn verkefni
sem biðu úrlausnar.
Fyrstu mánuðir meirihlut-
ans fóru í það að fara yfir óklár-
uð mál og sinna þeim. Reyndar
hefur ekki enn tekist að ljúka
þeint öllum þar sem þau voru
m.a. misvel undirbúin. Stærsta
málið sem meirihlutinn erfði
var endurbygging Miðgarðs
en ljóst er að það mál var
afar illa undirbúið svo ekki sé
meira sagt. Margar vikur fóru
í að konra því máli í viðunandi
farveg. Önnur verkefni sem
biðu úrlausnar snéru m.a. að
innri málum stjórnsýslunnar
og fjármálum.
En hvað höfum við svo
verið að gera þetta
fyrsta ár?
1. Leikskólagjöld voru lœkkuð
um 25%.
2. Álitamál varðandi drög að
aðalskipulagi voru kláruð og er
það því komið í réttanferil.
3. Grunnskólarnir út að
austan voru sameinaðir
sem mun leiða til enn betra
skólastarfs og hagræðingar í
rekstri.
4. Keypt var “stigalyfta” í
Árskóla - bœtt aðgengifyrir
hreyfi-hamlaða, og betri
vinnuaðstaða.
5. Undirritaður var samning-
ur við ÓK-gámaþjónustu
um uppbyggingu flokkunar-
og endurvinnslustöðvar á
Sauðárkóki.
6. Gengið varfrá samstarfi við
Skagaflarðarhraðlesdna um
atvinnuþróun.
7. Gengið var frá flármögnun
á byggingu nýs leikskóla á
Sauðárkróki og hönnun hafin.
8. Keypt húsnœði fyrir
starfsetni Húss frítímans.
9. Gerður var samningur utn
akstursþjónustu fatlaðra setn
gerði verktaka kleift að kaupa
nýjan sérhatmaðan bíl dl
þjónustunnar.
10. Ákveðið að kotna upp
mötuneyti í Árskóla fyrir
haustið 2007.
11. Yfir20 milljónum króna er
varið til skólabygginga út að
austan.
12. Nýjar, skýrar og ódýrari
reglur hafa verið settar um
minka og refaeyðingu.
13. Ákveðið er að taka þátt í
stækkun verknátnshúss FNV.
14. Gerð satnkonndags við
Hólaskóla utn þjónustu
sveitarfélagsins á Hólutn erá
lokastigi.
15. Hafnar eru fratnkvœtndir
við hitaveitu út að austan.
ló.Áœtlun hefur verið gerð
um lagningu hitaveitu í
Sœtnundarhltð og Hegranesi.
17.Skrifað var undir sam-
kotnulag við ORF-líftækni
unt athuganir á möguleikum
á að rækta erfðabreytt korn í
Skagafirði.
18. Tekin voru upp
frístundakort fyrir börn í
tengslutn við Sumar-TÍM og
nýta utn 85% barna þessa ttýju
þjónustu.
19. Ráðinn var starfsmaður í
atvinnuþróun í samstarfi við
Skagafiarðarhraðlestitta.
20. Uttttið er að endurskipu-
lagningu á rekstrarforsendum
félagsheitnilatma.
21. Unnið er að stefnumótun
varðandi starfsemi
leikskólatma á Sauðárkróki.
22. Uttdirbúttingur er haftnn
vegna framkvæmda við við-
byggittgu Árskóla.
23. Umhverfisátak í sveitarfél-
aginu er í undirbúningi.
24. Unnið er að satnkomulagi
við ríkið utn auknar
flugsatngöngur við Sauðárkrók.
25. Komið á statfshópi tneð
ungufólki.
26.Skagafiarðarveitur og Fisk
Seafood katma kosti þess að
efla bleikjueldi.
27. Kostir basaltreflavinnslu
eru í skoðun.
28. Tillögur utn eflittgu
háskólamenntunar liggjajyrir.
29. Gagnaveita Skagaflarðar
er komin á skrið ogstutt í að
framkvæmdir heflist.
30.Starfsemi íþróttamann-
virkja hefur verið endurskipu-
lögð og auglýst eftir forstöðu-
manni.
31. Breytt námsskipan fyrir
Tónlistarskólann í satnstarfi
við kennara.
32. Þátttaka í Sáttmála utn
sóktt í skólamálum í Skagafirði,
30 tn.kr. á þretn árum.
33. Þátttaka að gerð
Menningarsanmings við ríkið í
samstatfi við önnur sveitarfélög
áNV.
34. Unttið að og samþykkt
erindisbréf og samþykktir fyrir
stofnanir og starfsmetm.
35. Áhersla lögð á stefnumótun
í innkauputn sveitarfélasins.
36. ]afnréttisáætlun fyrir
Sveitarfélagið saittþykkt.
Ofl ofl...
Mál þessi hafa verið unnin
í góðu samstarfi við starfsfólk
sveitarfélagins, atvinnulífið
og íbúa og sum hver að
frumkvæði þeirra. Þökkum
við þeim öllum og ykkur íbúar
góðir fyrir ánægjulegt samstarf
þetta fyrsta ár og hlökkum til
frekari samvinnu.
Framundan eru fjölmörg
önnur verkefni sem garnan
verður að takast á við.
F.h. meirihluta Framsóknar-
flokks og Samfylkingarinnar;
Gtinttar Bragi Sveinsson
Gréta Sjöftt Guðmundsdóttir
smáauglýsingar...
Gjafabréf til sölu Fimm tríppi til sölu Rúm til sölu
Tilsölu gjafabréffyríttvo frá lceland Til sölu 5 veturgömul trippi, Tilsölu fururúm, l,6m á breidd með
Express sem er flug fram og til baka þeir eru litföróttir, ógeltir. 3ja ára gamalli heilsudýnu úr Svefni
með flugvallarsköttum á hvaða Simi 453 8262 og 897 8262 og heilsu.
áfangastað sem er. Tilvalið I sumarbústaðinn!
Upplýsingar 8615911 og 8933478. Upplýsingarí síma 8982596.
Sendið smáauglýsingar til birtingar á feykir@nyprent.is