Feykir - 19.07.2007, Qupperneq 5
27/2007 Feykir 5
Halldóra kann vel við sig í sveitinni.
Halldóra Hermannsdóttir og Ásmundur Jónasson
reka gallerí ígamalli hlöðu fram í Lýtingsstaðahreppi
Gallerí í sveitinni
Inni í blómlegri sveitinni svo til í túnfæti ferðaþjónustunnar á Bakkaflöt hafa hjónin í Hólagerði
endurreist gamla hlöðu og opnað þar handverksgallerí þar sem undirstaðan eru vörur frá
Indlandi og Nepal. Auk þess sem þau eru með íslenskt handverk.
Forsagan er sú að Marín
Ásmundsdóttir, dóttir þeirra
Halldóru og Ásmundar, hleypti
heimdraganum og á þeirri leið
ferðaðist hún meðal annars urn
Indland og Nepal. -Hún er
útskrifúð úr Listaháskóla íslands
og heillaðist gjörsamlega af því
handverki sent þar var í boði.
Hún bjó hér heima hjá okkur og
það varð úr að hún sendi hingað
heim yfir 100 kíló af vamingi og
við opnuðum markað á
veröndinni heirna. Hringdum í
vini, vandamenn, kunningja,
saumaklúbbinn og bara alla sem
okkur datt í hug og létum vita af
þessu. Viðtökumar voru svo
góðar að við ákváðum að halda
áfram nreð þetta, riþar Halldóra
upp. Þetta var árið 2001.
-Síðan fór María aftur út til
þess að ferðast nreira og skoða
sig unt árið 2005 og í þeirri ferð
verslaði hún meira og það er
afraksturinn af þvf sem við erurn
að selja hér.
Galleríið er staðsett í gamalli
hlöðu sem ekki hafði verið notuð
lengi. -Við byijuðum fyrir
tveimur ámm síðan að gera
hlöðuna upp. Kallinn minn er
mikill dútlari er mikið í
silfursmíði og öðm og í upphafi
var þetta hugsað sem vinnusto.fa
lyrir hann. Síðan kviknaði þessi
hugmynd í vetur, að opna héma
gallerí, segir Halldóra.
Fólkið í sveitinni hefur tekið
þessari viðbót við, annars
blómlegt atvinnulif sveitarinnar,
vel og segir Halldóra að í það
minnsta hafi enginn sagt það
beint við hana að eitthvað sé
athugavert við þessa tegund
verslunar á þessum stað.
-Ég hef líka verið svo dugleg
við að auglýsa það sjálf hvað við
séum hálf rugluð að fara út í
þetta, segir Halldóra og hlær. -
Fólk spyr mikið hvemig datt
ykkur þetta í hug en það kernur
líka hér við og fylgist með
ffamkvæmdum og skoðar það
sem í boði er.
Listræn fjölskylda
Galleríið sjálft er ekki stórt í
fermetrum talið en úivalið þar er
ævintýri líkast og litadýrðin eins
og að koma inn í ævintýri í
þúsund og einni nótt. Það sem
kernur kannski mest á óvart er
I galleríinu ermikið útval affallegum varningi.
Steinkallar og kellingar setja skemmtilegan svip á umhverfi sitt.
hið rnikla úrval af ullarvörum og
er engu líkara að þarna sé komin
gamla góða íslenska ullin, bara í
aðeins glaðlegri útgáfú. Því til
viðbótar eru þau með silki sari,
handofin Kasmímllarsjöl sem
eru listilega handbróderuð og
þrátt fýrir að litasamsetning sé
djörf passar hún fúllkomlega og
útkomaneralgjörtaugnakonfekt.
Verðlagið er heldur ekkert sem
svíður undan.
-Við tökum þetta beint inn,
dóttir okkar hefúr verslað þetta á
mörkuðum og sent beint heim
og þess vegna náum þessurn
góðu verðum því við þurfúm
ekki að notast við milliliði.
Þá er Bjarki Reyr, ljósmyndari
úr Hafnarfirði og sonur þeirra
hjóna, með skemmtilega sölu-
sýningu á ljósmyndum úr
Laufskálarétt sem teknar vom
haustið 2001. -Þessar myndir
eru allar handstækkaður og
framkallaðar í myrkrakompu.
En Bjarki Reyr starfar sem
ljósmyndari og er einmitt nú í
sumar að fara í ferð um landið
með ljósmyndara á vegum
National Geographic. Ég vona
að hann konri líka hingað en
gert er ráð fýrir að vera með
stóran myndaþátt og umfjöllun
um Island í blaðinu, segir
Halldóra og það er Ijóst að hér er
á ferðinni listræn fjölskylda.
Ætla að enda í
sveitinni
heldur keyptu þau Hólagerði
sem sumarbústað árið 1998.
-Viðkomum hingaðínóvenrber
1998. Á þeirn tíma stóðum við
frammi fýrir breytingum í okkar
lífi. Höfúm verið að reka
blómabúð í Hafitarfirði í rúm 20
ár og vorum að leita okkur að
jörð úli á landi. Helst ekki lengra
en Holtavörðuheiði í norðurátt.
Síðan fréttum við af þessu fýrir
tilviljun og skruppum hingað
norður til þess að skoða og það
er skemmst ffá því að segja að
við heilluðumst alveg af
staðnum.
Ásntundur er bílstjóri hjá
elli- og hjúkrunarheimilinu Eir
og Halldóra er í því að sinna
galleríinu. -Við konrum orðið
alltaf nreira og meira hingað
norður og núna undir vorið
komum við orðið unt hverja
einustu helgi bara til þess að ná
að klára þetta fýrir sumarið. Sjálf
segjumst við alltaf koma til nteð
að enda með því að eiga heima
héma enda líkar okkur sveitalífið
vel.
Fyrir áhugasama er gott að
komi ffam að opnunartími í
Galleríinu er fastur á
laugardögum og sunnudögum á
milli 13 - 18 og síðan er
símanúmer Halldóru 8207201
og sé hún á staðnum er galleríið
opið skömmu síðar. Heinrasíða
gallerísins er www.intemet.is/
namaste
Þau hjón Halldóra og Ásmund-
ur búa ekki allt árið í Skagafirði
Þú hefur alltaf góða ástæðu til
að heimsækja Norðurland vestra!
DÖFINNI
18.júlí : Sauðárkrókur
KaffiKróks-mótarödinígolfi á
Hlíðarendavelli
20.júlí : Sauðárkrókur
Knattspyrna, Mfl. karla 3. deild.
Tindastóll - Skallagrímur, kl. 20 á Sauðárkróksvelli
21.júlf : Skagafjörður
Skagafjardarrall Bílaklúbbs Skagafjardar
Keppnisleiðir um Mælifellsdal og Nafir.
21. júlí : Gránu-Móum Sauðákróki
Bikarmót í mótorkrossi - Vélhjólaklúbbur Skagafjarðar.
22. júlí : Hólar í Hjaltadal
Tónleikar á Hólum. Ingibjörg Guðlaugsdóttir básúnuleikari
og Magnús Ragnarsson organisti.
22. júlí : Skagafjörður
Fjölskyldudagur á Hestaleigunni Lýtingsstöðum.
23. júlí : Skagafjörður
Skotf élagid Ósmann með völlinn opinn frá 18-21.
SAMTÖK SVEITARFELAGA A NORÐURLANDI VESTRA
ATVINNUPROUN