Feykir - 19.07.2007, Side 6
6 Feykir 27/2007
íþróttafréttir
Helga Margrét í 5. sæti ísjöþraut á HM U18
Glæsilegur árangur
Helga Margret Þorsteinsdottir, USVH, hafnaði 1 5.sæti a
Heimsmeistaramóti ungmenna 17 ára og yngri í sjöþraut í
Ostrava í Tékkland. Helga Margrét hlaut samtals 5405 stig.
Gaman er að segja frá því að
aðeins ein af þeim stúlkum sem
voru fyrir ofan Helgu, er
jafnaldra hennar, en hinar eru
allar 17 ára á þessu ári.
Árangur Helgu Margrétar í
einstökum greinum:
lOOm gr.: 14,56s (pb)
Hástökk: l,63m
Kuluvarp: ll,90m
200m: 25,31s
Langstökk: 5,79m
Spjótkast: 35,40m
800m: 2:17,72 min(pb)
Árangur Helgu Margrétar er
besti árangur íslensks keppenda
á HM ungmenna ffá upphafi.
Félagsmót Léttfeta
Gloppa glæsilegust
Léttfeti hélt félagsmót á
dögunum en þar stóð Skapti
á Hafsteinsstöóum í fremstu
röó og sigraði bæði A- og B-
flokki gæðinga.
Gloppa frá Hafsteinsstöð-
um var valin glæsilegasta hross
mótsins af dómurum, en þann
titil hlaut hún einnig í fyrra en
þá sigraði hún A- flokk
gæðinga.
Hér má sjá helstu
niðurstöður mótsins.
B-tlokkur
Gloppa frá Hafsteinsstöðum
/Skapti Steinbjörnsson 8,62
Farsæli frá íbishóli
/Magnús B Magnússon 8,56
Fengur frá Sauðárkróki
/Friðrik Steinsson 8,50
Bassi frá Stangarholti
/Gisli Gíslason 8,45
Hróar frá Hafsteinsstöðum
/Jenný Kurki 7,95
Barnaflokkur
Steindóra Haraldsdóttir
/Prins frá Garði 8,33
Ragnheiður Pedra Óladóttir
/Presley frá Hofi 7,68
Guðmar F Magnússon/
Katla frá íbishóli 7,52
Unglingaflokkur
Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir
/Hafdis frá Sauðárkróki 8,16
Aníta Elvarsdóttir
/Lady frá S-Vallholti 7,91
Anna Margrét Geirsdóttir
/Glanni frá Tjarnarlandi 7,50
Ungmennaflokkur
Guðrún Hanna Kristjánsdóttir
/Gunnar frá Hlið 8,31
Björn J Steinarsson
/Öfeigur frá Ingveldarstöðum 8,19
Sunna Björk Atladóttir
/Birkirfrá Sauðárkróki 7,71
A-flokkur
Grunur frá Hafsteinsstöðum
/Skapti Steinbjörnsson 8,49
Reykur frá Skefilsstöðum
/Guðmundur Sveinsson 8,44
Straumur frá Hverhólum
/Magnús B Magnússon 8,33
Röðull frá Reykjum
/Auður I Ingimarsdóttir 7,66
Prins frá Reykjum
/Brynjólfur Jónsson 7,60
tOOm skeið
Spói frá Sauðárkróki
/Ragnar Eiriksson 8,81
Venus frá Sjávarborg
/Pótur Örn Sveinsson 9,59
Frami frá íbishóli
/Magnús B Magnússon 9,81
Glæsilegasti gæðingur mótsins
valin afdómurum:
Gloppa frá Hafsteinsstöðum,
knapi Skapti Steinbjörnsson,
Eig: Hildur Claessen og
Magnús Matthíasson
w
UMF. TIIMOABTÓLL
10D ÁRA
Ungt fólk á öllum aldri í svaka stuði!
Grannaslagur á Sauðárkróksvelli
Fjörugum toppslag
lauk með sigri Stóla
Tindastóll og Hvöt mættust í hörkuleik í toppslag c-riðils
3. deildar á Sauðárkróksvelli síðast liðið fimmtudagskvöld.
Bæði lið áttu ágætan leik þó svo að færin létu á sér
standa. Gestirnir voru ákveðnari framan af leik en vörn
Stólanna stóð fyrir sínu og gaf fá færi á sér. Stólarnir nýttu
færin sín vel og sigruðu að lokurn 2-1 og tryggðu stöðu
sína á toppi riðilsins.
Það var brunagaddur á
vellinum á meðan á leiknum
stóð, ísköld norðanátt, en
leikmenn létu vindinn lítið á sig
fá og spiluðu ágætan fótbolta.
Sem fyrrsegirvoru Hvatarmenn
sprækari en náðu ekki að ógna
marki Tindastóls að ráði. Þó
áttu þeir góðan skalla rétt yfir
eftir hornspyrnu. Stólarnir
komust betur inn í leikinn eftir
því sem á leið fyrri hálfleikinn
og á 43. mínútu fékk Ebbe
Nygaard boltann óvænt í teig
Blöndu-ósinga og skoraði af
öryggi.
Hvatarmenn sóttu ákaft í
upphafi síðari hálfleiks en það
voru hins vegar Stólarnir sem
bættu við marki í sinni fyrstu
alvöru sókn í hálfleiknum 2-0
fyrir heimamenn sem drógu sig
nokkuð til baka eftir þetta og
Hvatarmenn reyndu að pressa.
Líkt og í fyrri hálfleik gekk þeim
illa að skapa sér færi.
Þegar um 20 mínútur voru
eftir af leiknum minnkaði
Óskar Vignisson muninn með
draumamarki, þrumuskoti
utan af kanti í stöngina og inn.
Jókst pressa Hvatar enn eftir
þetta en liðið fékk aðeins eitt
gott færi er einn gestanna
þrumaði yfir í ágætu færi eftir
að hafa fengið boltann eftir
klafs í teignum. Lokatölur 2-1
fyrir Tindastól.
Með sigrinum náðu
Stólarnir átta stiga forskoti á
Hvöt og eru komnir langt með
að tryggja sæti í úrslitakeppni 3.
deildar.
Séra Guöbjörg Jóhannesdóttir verður með kveðjumessu
í Sauðárkrókskirkju sunnudaginn 22. júlí kl. 14:00.
Kirkjukór Sauðárkróks syngur.
Að lokinni messu er kirkjugestum boðið á Katfi Krók.
Sóknarnefnd býður þar uppá léttar veitingar.
Við skulum fjölmenna og eiga notalega stund saman.
Tökum þátt í guðsþjónustu, kveðjum séra Guðbjörgu og hennar fjölskyldu og
þökkum henni mikið og gott starf í þágu sóknarinnar.
Sóknarnefnd Sauðárkrókskirkju