Feykir - 19.07.2007, Qupperneq 7
27/2007 Feykir 7
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON )
Vísnaþáttur 456
Heilir og sælir lesendur góðir.
Gaman að byrja þáttinn að þessu
sinni, með vel gerðri hringhendu eftir
Valadalsbróðurinn Hjalta Jónsson,
bónda í Víðiholti:
Misjafnt auði út er býtt
ýmsa nauðir fanga.
Yfir haitður hart oggrýtt
hlýt eg snauður ganga
Önnur falleg hringhenda kernur hér
eftir Hjalta og mun hún ort er hann
dvaldi í Reykjavikurhreppi við störf,
en hugurinn annarsstaðar eins og fram
kemur í vísunni:
Gœði veitir gróin jörð
gleði neitafáir.
Hugurinn leitar heim á Skörð
hjartað sveitir þráir.
Helgina sem þessi þáttur er í vinnslu,
stendur yfir mikil sumarhátíð á
Blönduósi. Einhverju sinni er tekist
hafði verið á í bæjarstjórnarpólitík þar
í plássinu og niðurstaðan orðið nýr
meirihluti, orti Sigrún Haraldsdóttir,
sem er eins og rnargir vita ættuð úr
Svínavatnshreppnum, svo:
Gleymast loforð, trú og tryggð
tilbreytingin lokkar.
Þrífast hér í Blönduósbyggð
brókarsóttarflokkar.
Séra Hjálmar Jónsson frétti af þessum
átökum og grunaði klerk að Valgarður
Hilmarsson á Fremstagili og Valdimar
í Bakkakoti væru ásamt fleirum aðilar
að þessum átökum. Af því tilefni varð
þessi til:
Ekki er kyn þóttýmsu skakki
og örðug reynist leið úr vanda.
VaUifremsti og Valli bakki,
Voðaleg er þessi blanda.
Síðan veltir séra Hjálmar því fyrir
sér hvort þingmenn væru hættir að
hafa áhrif á bróðurkærleika sinna
sóknarbarna og bætir þessari við:
Áðurfyrr þingmetm flest
sjónarmið sœttu.
Svo tók við ruglið er mig að gruna.
Eftir að Páll og Pálmi hœttu
og presturinn fór í Dómkirkjuna.
Sá ágæti andans maður, Vilhjálmur
Benediktsson bóndi á Brandaskarði,
mun vera höfúndur þessarar:
Yndið bjarta aldrei dvín
er því svona varið.
Gegn um svarta skýið skín
skœra vonarstjarnan mín.
IJá langar mig til að birta hér næst fallegt
erindi eftir Vilhjálm, sem hann kallar:
Ég krýp við gluggann þinn góða:
Ég krýp við gluggann þinn góða
mín gullfagra elskaða dís.
í vestri er deyjandi dagur
úr djúpinu húmið rís.
Ilmur rósanna ungu
andvarinn suðrinufrá.
Lágnœttis fegurð ogfriður
faðma þig svœflinum á.
Ljósálfa Ijótnandi sveitir
læðast við sœngþína hljótt.
Undrast þá ótnælisfegurð
elskan míti - góða nótt.
Ég krýp við gluggann þinn kœra
með klökkva afbrennandi þrá.
Hvefegitm égfæra þér vildi
hiðfegursta er vorið á.
En vorið með viðkvæmu blómin
varð undirforlaga ís.
í vestri er deyjandi dagur
úr djúpinu húmið rís.
Gaman að enda þessa syrpu frá
Vilhjálmi með þessar ágætu stöku:
Stilli ég tökin stuðla máls
stund andvöku ei kvíði.
Óðarvökum uni egfrjáls
oft við stöku stníði.
Þar sem blessuð birtan fer nú aftur að
dvína, er ágætt að rifja næst upp þessa
vísu Erlings Friðjónssonar:
Nóttin heldur heimleið þar
himinsfeldur blánar.
Logar eldur ársólar
yst í veldi Ráttar.
Á svo miklum sólardögum sem nú
ríkja, rifjast upp næsta vísa sem ég held
að sé effir gamla Káinn:
Síðattfyrst égsá þig hér
sólskin þarf ég minna.
Gegnum lífið lýsir tnér
Ijósið augtta þinna.
Einhver smá kvíðahrollur virðist hafa
verið í þeim snjalla Halla frá Kambi, er
hann orti þessa:
Styttast tekur langa leiðin
leiðarenda bráðum ttáð.
Þá er eftir hæsta heiðin
hún ergrýtt ogþyrnum stráð.
Margar snjallar vísur eru til eftir
Kristján, skáldið frá Djúpalæk. Ekki
er nú víst, að öllum líki þessar, sem
hann mun hafa ort er hann dvaldi í
Þorlákshöfh:
Aurasöfn ég lítil lít
latrajöfn sem sttjallra.
Þorlákshöftt í skarn og skít
skráir nöfn vor allra.
Aldan grattda öllufer
ægir landkrabbanum.
Fægir sattd og skrapar sker
skemtntir andskotanum.
Verið þar tneð
sœl að síntii.
Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum
541 Blönduósi
Sími 452 7154
Amalía og Sigmundur í eldhúsinu
Sjávanréttir og
Nóa gott á grillið
Sigmundur og Amalía á Smáragrund 16 Sauðárkróki urðu við
áskorun Margrétar S. Sigurðardóttur og í anda árstíðarinnar
bjóða þau lesendum Feykis upp á uppskriftir af gómsætum
grillréttum. Þau skora á Hólmfríði Guðmundsdóttir, kennara.
Forréttur
Grillaðir sjárvarréttir
á spjóti
FYRIR 6
Hutnar af itiUlistœrð. 12stk.
Stór hörpudiskur, 12stk.
Lítill skötuselshali c.a. 400 gr.
Smálúðuflak c.a. 300 gr.
Leggið trépinna í bleyti
smástund ( þá brenna þeir
síður). Gert er ráð fýrir 2
pinnum á mann. Humarinn
er skelflettur og garndreginn.
Sinin á hörpudiskinum er tekin
af. Skötuselurinn og smálúðan
eru skorin í litla bita. Humar
og hörpudiskur eru þræddir til
skiptis upp á annan pinnann og
skötuselur og smálúða á hinn.
Kryddblanda á sjávarrétti:
1/2 dl. jómfrúarolía
2-3 hvítlauksrif pressuð
lA tsk. kóríander (malaður)
svartur pipar á hnífsoddi
Hrærið þessu öllu vel saman.
Gott er að láta olíuna standa
nokkra tíma áður en hún er
notuð. Grillið fiskispjótin í c.a.
3-4 mínútur og penslið með
kryddolíunni á meðan. Snúið
spjótunum nokkru sinnum
meðan grillað er.
Góð sósa tneð fiskispjótum (og
öðrutn grilluðum sjávarréttum):
dl. hvítvín
1 dl. matreiðslurjómi
100 gr. rjómaostur með
kryddblöndu
1 msk. fiskikrydd (frá
Pottagöldrum)
1 tsk. fiskikraftur
svarturpipar á hnífsoddi
sósujafnari eftir smekk
Sjóðiðrjómaoghvítvínsamanvið
vægan hita, látið sjóða niður um
1/3. Rjómaostinum og kryddinu
bætt út í og hrært vel saman. Að
síðustu er sósujafnaranum bætt
saman við eftir smekk.
Aðalréttur
Nautalundir
á grillið
Steikur úr nautaluitd
um 200 gr. á mann
Pipar úr kvörn nýmalaður
Úrvals salt t.d. Maldott
Látið steikurnar ykkar ná
stofuhita, malið pipar að eigin
vali yfír þær og nuddið þær þétt
en mjúklega með piparmixinu.
Grillið þær í 4-6 mínútur þegar
allt meðlæti er tilbúið. Setjið
þær á fat eða diska matargesta
og gefið þeim smá stund til að
kjötsafinn setjist í kjötinu áður
en byrjað er að skera í steikurnar.
Fylgist vel með á grillinu, þetta
eru örfáar mínútur.
Það getur einfaldað málið að
baka kartöílurnar í ofninum inni
í stað þess að grilla alla máltíðina,
annars er mjög gott að grilla
bökunarkartöflur og bera þær
fram með steikunum. Ef þið
kjósið heita sósu er kjörið að búa
hana til nokkru áður en máltíðin
hefst. Nýtið ykkur kryddsmjör
og kryddaðan sýrðan rjóma sem
kalda sósu hvort heldur sem er
með kjötinu, í kartöflurnar eða
með grænmeti.
Eftirréttur
Nóa-gott á grillið
fyrir4
200-300gr. Nóa kropp
200 gr. jarðaber / skorin
200gr. bláber
1 stk. battani / skoritm
1 stk. pera /skorin
4 stk. kókosbollur
Búin er til ferköntuð skál
úr álpappír (ágætt að hafa
pappírinn tvöfaldan) og passað
að það séu góðar hliðar upp. Nóa
kroppið er sett í botninn, svo
hvergi sjáist í álpappír. Því næst
er ávöxtunum (sem hafa verið
skornir niður í þægilega bita)
skellt yfir Nóa kroppið - ágætt er
að setja t.d. jarðaberin fyrst, svo
bláberin, því næst banana og svo
perurnar (eða aðra ávexti sem
verða fyrir valinu). Að lokum eru
kókosbollurnar skornar í tvenna
og þær settar yfir - ágætt er að
setja þær þannig að þær myndi
“lok” yfir ávextina.
Ágætt er að útbúa þetta fyrir
matinn og skella þessu svo á
grillið á meðan borðað er. Fínt að
hafa á lágum hita á grillinu í 15-
20 mín. Borið fram með ís:)
ÆgS fnjl
S —ditöHÍÍÍiHt::
t