Feykir - 02.08.2007, Page 1
Hin ástföngnu steinhjón reyna allt sem þau geta til þess að lokka vegfarendur til Hvammstanga.
Skattgreiðendur á Norðurlandi vestra
Vart hátfdrættingar á
við önnur landssvæði
Skattakonungur Norðurlands vestra er Stefán H.
Jósepsson, Skagaströnd, en hann kæmist ekki einu
sinni á topp tíu lista á Norðuriandi Eystra og yrði sjötti í
Vesturlandsumdæmi og áttundi á Vestfjörðum. Heildargjöld
Stefáns eru 17.166.226 milljónir króna. Til gamans má geta
að á milli hans og skattakonungs Reykjavíkurumdæmis eru
litlar 382.999.654 milljónir króna.
Ef heildargreiðslu Stefáns
eru bomar saman við
heildargreiðslur efstu inanna
annars staðar í kjördæminu þá
kemur í ljós að á rnilli hans og
efsta mans á Vestfjörðum em
17.058.062 milljónir króna eða
tæpur helmingur. Á vesturlandi
skilur minna í rnilli eða
8.716.202. milljónirkróna Næsti
maður á eftir Stefáni er Þórólfur
Gíslason, kaupfélagsstjóri, en
hann greiðir 12.216.537 milljónir
króna. Næstu menn em síðan:
3. Sævar Rafn Hallgrímsson,
Skagaströnd, 10.744.341
króna, 4. Ingvi Þór Sigfusson,
Sauðárkróki 10.039.088
krónur. Óli Viðar Andrésson
Sauðárkróki 7.396.033 krónur,
9. Jón E. Friðriksson Sauðárkróki
7.051.248 krónur og Ómar
Ragnarsson,Blönduósi7.049.569
krónur. Engin kona kemst á
listann en það vekur athygli
að hvorki Lilja Pálmadóttir né
Steinunn Jónsdóttir greiða sitt
útsvar hér fyrir norðan.
Það er óneitanlega áhyggju-
efni og eftirtektarvert hversu
iila Norðurland Vestra kernur
út úr þessum samanburði á út-
svarsgreiðendum en hver skyldi
skýringin vera? Feykir lrafði
samband við Ásgeir Jónsson,
hagfræðing hjá Kaupþingi í leit
að svömm. -Ein aðal ástæða
þess hversu lágir menn em er sú
að það eru ekki mörg fyrirtæki í
einkaeign á þessu svæði heldur
em þau flest í einhvers konar
sameign eins og kaupfélögin.
Önnur skýring er sú að aðal
peningarnir úti á landi verða til
í útgerð og þar em fýrritækin
ekld heldur í einkaeigu heldur í
félagslegri eign, segir Ásgeir.
Jöfnuður er vissulega jákvæð-
ur eins langt og hann nær en
stóra spurningin er hvort ekki
vanti stærri aðila með fjármagn
á bak við sig inn á svæðið?
Framkvæmdir hefjast senn_
GS semur við
Vinnu vélar Símonar
Gagnaveita Skagafjaróar
hefur ákveöið aó semja
vió Vinnuvélar Símonar
Skarphéóinssonar ehf,
um jaróvinnu í fyrsta
áfanga Ijósleióaraverkefnis
fyrirtækisins, Túnahverfi.
Viðhaft var lokað útboð
sem Vinnuvélar Símonar
og Steypustöð Skagafjarðar
tóku þátt í. Stjórnin hafnaði
báðum tilboðunum í upphafi,
taldi þau of há og sendu
fýrirtækin inn önnur tilboð
í kjölfarið. Álcvað stjórn
Gagnaveitunnar að ganga
til samninga við Vinnuvélar
Síntonar á grundvelli seinna
tilboðs þeirra. Framkvæmdir
í Túnahverfi hefjast nú í ágúst
og í samræmi við skilmála
útboðsins, eru verklok áætluð
15. desember. I upphaflegum
áætlunum Gagnaveitunnar
var gert ráð fýrir verldokum
15. október en í kjölfar þess
að stjórn fýrirtæJcisins hafnaði
báðum tilboðum tilboðsgjafa í
upphafi var ákveðið að rýmka
verktímann og freista þess að
ná fram hagstæðari verðum.
Mögulegur heyskortur í vetur_
Miklir þurrkar hrjá
bændur í sumar
Hægt er aó telja á fingrum annarrar handar þau skipti
sem dropum hefur rignt nióur hér á Noróurlandi Vestra.
Þessir þurrkar hafa augljóslega mjög slæm áhrif á túnin og
koma til meó aó seinka seinni slætti bænda, ef ekki spilla
uppskerunni.
, d^að þarf meira en einliverja
smá rigningu til að laga
þetta”, sagir Eiríkur Loftsson,
ráðunautur hjá Leiðbeininga
rmiðstöðinni. Jörðin er orðin
svakalega þurr og víðast
hvar eru farnir að
sjást svokallaðir
brunablettir, sem
myndast hafa útaf
miklum þurrki og
sól. Þessir blettir
munu ekki gróa þó
svo að rigningin
mæti á svæðið, en
í flestum tilfellum
sér þó ekki á túninu
sumarið eftir. Það
má þess vegna jafnvel búast við
heyskorti i vetur, þó svo að erfitt
sé að segja til um það. En það
gefur auga leið að með þessu
áframhaldi verður eitthvað lítið
um hey hjá bændum í vetur.
Eins og sjá má þá er fátt sem minnir á lok júli á þessari
mynd sem tekin var af túni í Húnavatnssýslu þann 29. júli.
Ekki liklegt að þetta tún verði slegið aftur í sumar.
VIÐ B0NUM 0G RÆSTUM!
Daglegar ræstingar og
reglubundið viðhald á bóni
í fyrirtækjum og stofnunum
Hringdu núna eða sendu tölvupóst
Sími: 893 3979 * Netfang: siffo@hive.is