Feykir


Feykir - 16.08.2007, Síða 1

Feykir - 16.08.2007, Síða 1
Skúli Skúlason, rektor Hólaskóla Háskólans á Hólum, Herra Ólafur Skúlason, fyrrverandi biskup íslands og Jón Aðalsteinn Baldvinsson, vígslubiskup. Myndina tók Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni á Akureyri. Hólahátíð 2007_________________________ Hólahátíð á andlegum nótum Hólahátíðin í ár tókst vel, þrátt fyrir að slæmt veóur hafi setti töluvert strik í reikninginn. Ýmislegt var á dagskrá um helgina, dagskrárliðir sem bæði voru ætlaðir andlegu- og líkamlegu hlið líkamans. Hólahátíðin hófst á föstudag í Auðunarstofu þar sem efnt var til málþings. Sköpuðust líflegar umræður eftir skemmtilegan fyrirlestur Guðmundar Odds Magnússonar, prófessors við Listaháskóla Islands. Á laugardag tókust atburðir ekki eins vel vegna veðurs, en ffesta þurfti göngunni sem skipulögð hafði verið, og lítið varð úr áætluðu fótboltamóti vegna skortsáleikmönnum.Seinnipart dags fjölgaði þó á Hólum og þéttsetið var í kór í kvöldbænum og var grillmaturinn borðaður innandyra, ólíkt undanfömum árum. Á hátíðlegri athöfn í Auðunarstofú á sunnudag, var sr. Ragnars Fjalars Lárussonar minnst og sérstakur snertiskjár, sem fjármagnaður var úr minningarsjóði sr. Ragnars, afhentur formlega. Það voru systkinin Herdís Helgadóttir, ekkja sr. Ragnars, og bróðir hennar Hörður sent afhjúpuðu skjáinn. Með búnaði þessurn er mögulegt að skoða valdar bækur og hlusta á sr. Ragnar segja frá þeim, og gerir fólki því kleift að forvitnast um bækur sem eru of viðkvæmar fyrir daglegan lestur. I guðsþjónustu kl 14. predikaði herra Ólafúr Skúlason fyrir fullri kirkju, hátíðarkór söng undir stjóm Jóhanns Bjarnasonar og bróðir hans Jón lék á orgelið. Einsöng söng Hallveig Rúnarsdóttir. Þar næst héldu gestir hátíðarinnar til kaffisamsætis áður en var haldið í kirkjuna á nýjan leik. Þar komu ffam, Þóra Jónsdóttir ffá Laxamýri sem flutti eigin ljóð, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, afkomendur herra Sigurðar Stefánssonar sem afhentu Hóladómkirkju eftirmynd af málverki af honum og loks fluttu Hallveig Rúnarsdóttir og Jón Bjarnason sönglög. Ingibjörg Sólrún kom í ræðu sinni að mikilvægi menntunnar og góðra sam- gangna fyrir landsbyggðina. Kántrýdagar Fjölskylduhátíð Norðursins Um helgina er komið að hinum arlegu Kantrydogum a Skagaströnd, en hátíðin hefst til sunnudags. Það verður ýmislegt á dagskránni á Skagaströnd um helgina og verður hátíðin með svipuðu sniði og í fyrra, enda tókust dagarnir einkar vel þá. Leiktæki verða í boði fyrir börnin, heilmikið um tónlist fyriralla fjölskylduna, dansleikir, á föstudag kl. 18 og stendur dorgveiðikeppni, grillveisla og fleira spennandi verður hægt að finna á svæðinu. Auk þess verða málverkasýning Magnúsar Álfssonar og sýning Lúkasar Kárasonar á skúlptúrum úr rekaviði opnar alla helgina. Sparisjóður Skagafjarðar______ Baráttan heldur áfram Mikill titringur er í Skagafirði eftir aðalfund stofnfjáreigenda Sparisjóðs Skagafjarðar sem haldin var sl. mánudag. Á fundinum var samþykkt með 78% greiddra atkvæða að sameina sparisjóðinn Sparisjóði Siglufjarðar. Á fundinum kom ffam mikil óánægja hluta stoffifjáreigenda og heffir einn þeirra nú kært niðurstöðuna til Fjármálaeftirlits ríkisins. Er kæran lögð fram á þeirri forsendu að kosningarnar hafi byggist á rangri atkvæðaskrá þar sem hlutir hafi verið ffamseldir á aðila sem hafi ekki leyfi til að fara með atkvæðisrétt, en stór hluti fundarmanna gekk af fúndi eftir að niðurstaða um að af sameiningu yrði varð ljós. ítarlega fféttaskýringu urn málið má finna á síðum 6-7. Þórarinn Eymundsson tvöfaldur heimsmeistari Undrahesturinn Kraftur Þorarinn Eymundsson og undrahesturinn Kraftur frá Bringu komu sáu og sigruðu á heimsmeistaramóti íslenska hestsins sem haldið var í Hollandi í síðustu viku. Þórarinn og Kraffur sigruðu fimmganginn örugglega auk þess að verða heimsmeistarar í fimmgangsgreinum. Skagfirð- ingurinn Jóhann Skúlason varð fyrir því óláni að hestur hans Hvinur ff á Holtsmúla reifundan sér í úrslitum í tölti en fyrirfram þótti líklegt að þeir myndu landa heimsmeistaratitlinum í tölti. Varð Jóhann að sætta sig við 5. sæti. Hann varð síðan heimsmeistari í fjórgangsgreinum. Feykir náði tali af Þórarni í bítið á miðvikudagsmorgun. Síða 4. VIÐ BÓNUM OG RÆSTUM! Daglegar ræstingar og reglubundið viðhald á bóni í fyrirtækjum og stofnunum / Hringdu núna eða sendu tölvupóst Sími: 893 3979 * Netfang: siffo@hive.is Bílaviðqerðir

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.