Feykir - 06.09.2007, Síða 7
33/2007 Feykir 7
TÖLVUPÓSTURINN
Birgitta Halldórsdóttir, rithöfundur og bóndi,
býr á Syóri Löngumýri í Húnavatnshreppi.
Feykir sendi henni tölvupóst og spurói frétta.
Framtíöin veröur
frábær
>
>
Hvað er að frétta úr Húnavatnshreppi?
-Allt gott að frétta úr Húnavatnshreppi. Sumarið var sólríkt og nú er kominn sá tími að skólarnir eru
byrjaðir og flest bændafólkið farið að hugsa um og hlakka til að komast í göngur og réttir.
En svona af þér sjálfri?
-Af sjálfri mér er allt gott að frétta. Ég og fjölskyldan mín áttum mjög gott sumar. Veðurfarið var
hagstætt fyrir okkur sem búum í mýrlendi og allur heyfengur toppfóður. Við plskyldan komumst
í smá frí til Ítalíu sem var mjög gott og þarft, en við höfum aldrei komist saman með krakkana til
útlanda fyrr svo það var alveg frábært. Núna fer líka allt að komast í meiri rútínu eftir sumarið þar
sem skólinn er byrjaður.
Ert þú með bók á vinnuborðinu?
-Já, ég er með bók á vinnuborðinu en hún verður nú ekki tilbúin fyrir þessi jól.
Hvers konar bók er það?
-Ég er bæði með barna og fullorðinsefni í tölvunni en best að tjá sig ekki of mikið um það fyrr en
það er orðið fullskapað.
Frá spennusögum og yfir í barnabækur þetta eru ólík viðfangsefni. Hvort
er nú skemmtilegra að skrifa fyrir börn eða fullorðna?
-Það er ekki síðurskemmtilegt að skrifa fyrir börn. En mérfinnst þetta allt skemmtilegt, spennusögur,
barnasögur, smásögur, Ijóð. Það fer líka mikið eftir því hvernig maður er stemmdur í það skiptið. Allt
er þetta gefandi og skemmtilegt og mér er nauðsynlegt að vera að skapa eitthvað á prenti.
Svona að lokum hvernig leggst veturinn í þig og þitt fólk?
-Bara mjög vel. Ég hlakka til vetrarins og er sannfærð um að hann verður góður. Krakkarnir mínir eru
líka mjög spennt, dóttirin var að byrja í 2. bekk og sonurinn í 10. bekk. Það eru bara allir mjög vel
stemmdir eftir gott sumar og ég er viss um að framtíðin verður frábær.
>
>
Brevttur
lífsstíll meö Feyki
Lengi hefur ritstjóri Feykis
verið á leið að taka upp
nýjan og betri lífsstíl og viku
eftir viku hefur stefnan verið
tekin á næsta mánudag. í
sumar hefur þó eitthvað
þokast í áttina og eitt
stærsta skrefið í átt að
nýjum lífsstíl var tekið með
því að reyna að ganga eða
hjóla sem oftast í og úr
vinnu.
Nokkrir litlir molar
til þess aó byrja
meó
Bara með þessu litla skrefi
hefur þrek aukist og líkamleg
vellíðan aukist. Svo lengi sem
við þurfum ekki að sendast á
milli staða við vinnu okkar er
fjölskyldubíllinn óþarfur
ferðafélagi í og úr vinnu.
Mælið vegalengdina á
vinnustaðinn, festið ykkur
kaup á betri skóm og gangið
af stað. Með þessu erum við
líka börnunum okkar góð
fyrirmynd og það er góð leið
til þess að byrja daginn að
ganga til vinnu sinnar. Að
ógleymdum sparnaði en það
væri gaman að taka saman
hvað sparast og leggja það til
hliðar.
Ef þið eigið erindi í hús þar
sem lyfta er á staðnum þá ekki
taka lyftuna heldur ganga
stigana.
Vanti mjólk eða annað
smáræði úr búðinni er góð
hreyfing að skjótast eftir því
gangandi.
Viti menn eftir að hafa
lifað eftir þessu í ekki nema
viku fer líkaminn að kalla á
meiri hreyfingu og þrekið
eykst. Sé farið eftir þessu og
passað örlítið upp á mataræðið
er heldur ekki útilokað að
vigtin hafa eitthvað örlítið
læðst niður á við.
Byrjum á þessu og setjum
okkur síðan nýmarkmið í
næstu viku.
r———>
GulSkorn
s vikunnar
Þaó tekur
líkamann allt upp
í 30 mín. aó átta
sig á því aó hann
sé mettur.
Því er gott ráó aó
fá sér hrökkbrauó
meó kotasælu,
mögrum osti eóa
grænmeti, og
stórt vatnsglas 30
mín. fyrir máltíó.
Uppskrift
vikunnar
Hollustuvefjur
5 dl. spelt
Vi dl. matarolía
2 msk. sesamfrœ
1 stk. sjávarsalt
150-170 ml. heitt vatn
Öllu skellt í hrærivélaskál og
hnoðað saman. Flatt úr í átta
þunnar kökur og steikt á þurri
pönnu í um það bil 1. mínútu
á hvorri hlið. Kökurnar eru
settar inní blautt stykki og
plastpoka svo þær harðni
ekki.
Gott að borða með salsa-
sósu og öllu því grænmeti sem
hugmyndaílugið eða græn-
metisskúffan í ísskápnum
bíður upp á þann daginn.