Feykir - 25.10.2007, Qupperneq 7
40/2007 Feykir "7
hvað komi til með að fæðast þegar
hún byrjar á spýtunni og þegar
skoðuð er flóran sem hún hefúr
framleitt má sjá að það er mikið
til rétt hjá henni. Jólasveinar,
bæði þessir hefðbundnu í
rauða búningnum og aðrir í
“fötum” jólatré, og síðast en
ekki síst fermingarbörn stökkva
fullsköpuð undan hnífnum. AJlt
eftir því hvert efnið sjálft leiðir
listamanninn.
Hver stytta tekur að meðaltali
4-6 tíma í framleiðslu og segir
Hrefna að hún megi helst ekki
taka meira en 3 tíma í tálgun.
Stytturnar selur hún síðan frá
8000 krónum og því er ljóst að
miðað við tíma og erfiði er Hrefna
ekki að fá mikið tímakaup. -En
þetta er alltaf jafn gaman þó svo
að stundum geti vinnan orðið
mjög erfið fyrir hendurnar. Ég hef
bara þessa þörf til þess að skapa
og verð því alltaf að halda áffam.
Spýtan er svo mjúkt og hlýtt efni
og hún gefur manni alltaf eitthvað
óvænt sem síðan bara kemur.
Fermingarstytturnar
slá í gegn
Eins og ffam kom í Feyki í síðustu
viku er Hrefna nýkomin afsýningu
sem Handverk og hönnun stóð
fýrir í Ráðhúsi Reykjavíkur en á
þeirri sýningu fær einungis útvalið
handverksfólk að sýna afurðir
sínar. Þangað fór Hrefna með
jólasveinana sína auk þess sem
hún tók með sér fermingarstyttur
og brúðhjón sem hún sker út.
-Fermingarstytturnar urðu
til út ffá eldgömlum íslenskum
hjónum sem ég hafði tálgað og
málað þegar ég fór á námskeiðið
hér forðum daga. Þau hjón sá
kona sem var að fara að gifta
sig og hafði hún samband við
mig og bað mig að skera út fýrir
sig brúðhjón. Sem og ég gerði.
Nokkrum árum síðar fikta ég
við fýrstu fermingarstyttuna
innan fjölskyldunnar og sama vor
hringir konan aftur og er þá að
fara að ferma og vill fá styttu.
Þessar fýrstu styttur sem
ég gerði voru mjög einfaldar í
síðum kirtlum en núna er ég
komin í mun meiri smáatriði.
Ég legg mikið á mig til þess að
ná fram því sem ég vil í þessum
fermingarstyttum. Ég bið alltaf
um mynd af fermingarbarninu
og fæ einnig að vita hvernig fötin
verða og síðan skapa ég styttuna
út ffá því. Nafh barnsins og
fermingardagur er síðan skrifaður
á pallinn sem styttan stendur á.
Styttan er því orðið oft keypt í
staðin fýrir kerti og látin standa
hjá gestabókinni því hún er eldd
ætluð ofan á kökuna. Ég hef ekki
málað andlit á þessar styttur
því mér finnst þær ekki verða
nógu persónulegar þannig. Hins
vegar reyni ég að ná fram öðrum
smáatriðum og oftar en ekki fæ
ég þau viðbrögð að styttan sé sögð
alveg eins og sú fýrirmynd sem
hún er unnin eftir.
Fær sig ekki til þess
að fjöldaframleiða
DæturHrefhuþær,Guðlaugsemer
eldri og Margrét, eru aðeins farnar
að taka þátt í þessu með mömmu
sinni. Guðlaug, tálgar orðið með
henni, en Margrét er meira fýrir
að rnála. -Fólk er stundum hrætt
við að láta ung börn fá hnífa til
þess að vinnan með en ef þeim er
kennt að fara með hnífana þá slasa
þau sig ekki neitt á þeim. Einn af
þeim kennurum sem ég hef leitað
til hefur verið að kenna ofvirkum
börnum og þau skapa ótrúlegustu
hluti með hníf og spýtu svo það er
margt hægt í þessu.
Sjálf segist Hrefna ætla að halda
þessu áfram eins lengi og hún geti
og hafi gaman af en hún reyni
engu að síður að takmarka sig.
Eftir sýninguna um síðustu helgi
hafði verslunarstjórinn úr Föndru
samband við hana og vildi fá að
selja frá henni, sjálf segir Hrefna
að hún viti ekki hvað hún ætli
að gera í því. -Mér var líka boðið
að sýna í Árbæjarsafhi fýrir jól
en hef ekki ákveðið hvort ég geri
það og í gær neitaði ég Norræna
húsinu um að taka þátt í sýningu
þar. Ég ætla hins vegar að senda
einhverja muni í Landsnámssetrið
í Borgarnesi. Ég vil frekar vera á
fáum stöðum og sinna þeim þá
vel heldur en að vera á einhverju
hundavaði á mörgum stöðum.
f gegnum Handverk og
hönnun hef ég einnig tekið þátt
í nokkrum jólasýningum sem
kallast “Allir fá þá eitthvað fallegt”
og árið 2000 sendu þau íslenskt
jóla-handverk á sýningu hjá
Norrænu sendiráðunum í Berlín
og eftir það fékk ég hringingu frá
konu í Svíþjóð sem sér um stóra
jólasýningu sem haldin er þar í
kastala. Ég hef tvisvar tekið þátt
í þeirri sýningu og selt vel. Systir
mín sem býr í Svíþjóð vill meina
að þar gæti ég alltaf verið með
eitthvað í sölu.
Er ekki hægt að fjöldaframleiða
þetta?
-Jú, ég er búin að læra að gera
mótin og þau fýrstu eru til en ég
hef mig ekld í að byrja. Auðvitað
þarf ég að fara að prófa það og þá
kannski með þá vöru sem ég sel
mest og þarf að eiga í einhverju
upplagi en það verður bara ekki
sama tilfinning að senda frá sér
fjöldaframleidda vöru, svarar
Hrefna. -Kannski er ég líka að
selja þetta alltof ódýrt miðað við
þá vinnu sem fer í þetta, ég veit
það ekki. En þetta er bara svo
gaman, bætir hún við að lokum.
Hreifst af
Liverpool
Rúnar Vífilsson
er Fræðslufulltrúi
Sveitarfélagsins
Skagafjarðar. Hann er golfari
og Liverpool á hug hans
allan þegar kemur að enska
boltanum.
-Liverpool er liðið mitt og hefur
verið frá upphafi sýninga á
enska boltanum. Strax þegar
ég var púki hreifst ég af ieik
liðsins. Þeir spiluðu öðruvísi en
önnur ensk lið og voru miklu
skemmtilegri á að horfa. í svart
- hvíta sjónvarpinu sáust ekki
fallegu rauðu búningarnir, en
það var bara aukabónus að
upplifa þá þegar sjónvarpið
kom í lit.
Hefur þú einhvern tímann lent
í deilum vegna liðsins?
Maður hefur oft þurft að útskýra
fyrir illa upplýstum mönnum
hversvegna Liverpool væru
lang bestir. Það gekk nú ekki
vel í upphafi. Á þeim árum var
maður umkringdur mönnum
sem héldu með Leeds og
Derby. United var í annarri
deildinni og Arsenal spilaði
ömurlegan bolta. Þetta hefur
allt breyst snarlega nema það
leik
að Liverpool er enn á sínum
stað á toppnum.
Hefur þú farið á leik með
liðinu?
Ég hef farið nokkrum sinnum
á Anfield og framundan er ferð
með Skagfirðingum á enn einn
leikinn. Við ákváðum að fara
á völlinn áður en flutt verður á
nýja leikvanginn.
Hvernig gengur að ala
fjölskylduna upp í stuðningi
við liðið?
Kjarnafjölskyldan er öll á
sömu línunni og dóttirin hefur
m.a. farið með mér á leik.
Uppeldissonurinn er ekki eins
kristnaður, en hann hefur
reyndar meiri áhuga á öðru en
fótbolta.
YOULL NEVERWALK ALONE
; MITT LIÐ )
UMF. TINDABTÓLL
Llngt fólk á öllum aldri í svaka stuði!