Feykir


Feykir - 08.11.2007, Side 7

Feykir - 08.11.2007, Side 7
42/2007 Feykir 7 Hventig kom það til að þú fórst að hafa afskipti af stjómmálum? -Það var nú bara stuttu eftir að við hófum búskap heima að farið var að tala um sameiningu sveitarfélaganna. Ég hafði mig eitthvað í ffami í pontu um mikilvægi sameiningar o.þ.h. Svo varð sameiningin að veruleika og farið var að undirbúa kosningar í sameinuðu sveitarfélagi að ýmsir fóru að reyna að fá mig til að taka þátt í þeim. Mér fannst það nú hin mesta firra, það væru örugglega einhverjir vanir eða fr ambærilegri sem væru tilbúnir að sjá um þetta vafstur. En svo lét ég til leiðast og settist í þriðja sæti á Sjálfstæðislistanum og varð varamaður í sveitarstjórn. Síðan eru liðnar tvær aðrar kosningar til sveitarstjórnar og ég orðin í forsvari fyrir D-listann. Það er ýmislegt sem fylgir því að sitja í sveitarstjórn, ekki síst ef maður er í forsvari fýrir hana og starfið kemur oft á tíðum niður á búinu og fjölskyldunni. Þá er nú gott að mamma búi hjá okkur þannig að hún lítur þá til með krökkunum, þegar hún er ekki að kenna eða í öðru. Svo kemur stundum Sigurlaug amma ffá Sauðárkróki og léttir undir. En hvers vegna Sjálfsstœðis- flokkurinn? -Hmmm, mér fannst mínar skoðanir bara eiga best samleið með þeim. Þegar ég var að kjósa til Aiþingis í fyrsta eða annað skipti var Vilhjálmur Egilsson í framboði og mér fannst hann bara langbestur af kandídötum flokkanna. Hveniig tneð stjómmálin heittta við hvað ersvona helst að frétta úr Hútiaþingi vestra? -Það er fínt að ffétta. Um áramótin verður tekin í notkun viðbygging við leikskólann, en við erum búin að vera með eina deild hans í íbúðarhúsi úti í bæ í nokkurn tíma og jafnffamt er leikskóli í Víðidalnum, þannig að mikið er af börnum hjá okkur, sem er gleðilegt. Árangur grunnskólans er líka góður og ánægja með hann. Töluverð eftirspurn hefur verið eftir íbúðalóðum og því er sveitarfélagið að láta gera götur til að framboð lóða sé nóg og fyrirspurnir hafa komið um iðnaðarlóðir. Úti í sveitum er töluvert um ffamkvæmdir, bæði hjá bændum og á frístundajörðum. Hins vegar þurfum við sífellt að vera á tánum gagnvart stjórnvöldum til að fá fjármagn, verkefhi og betrumbætur inn í samfélagið. Að kynnast starfinu á Alþingi og öllu því góða fólki sem þar er þess vegna mjög gott. Ertu bjartsýn áframhaldið á þínu svœði? -Já, auðvitað. Hér er mikið af duglegu og hugmyndaríku fólki og margir hverjir óhræddir við að leita leiða til að ffamkvæma hlutina. Hinir ýmsu sjóðir sem fólk á möguleika á að sækja styrki í eru bráðnauðsynlegir til að koma hlutum af stað. Ertu dugleg að taka þátt í öðru félagsstarfi en stjónimálum? -Það er svo sem ekki mikill tími eftir. Ég er þó í kirkjukórnum og hef aðeins unnið fyrir hestamannafélagið. Reyni svo að taka þátt í hestamótum, ef þau stangast ekki á við fjósatíma, sem of oft er á veturna. Svo er ég í stjórn Landssambands kúabænda. Þú ogfjölskylda þín haldið út skemmtilegri heimasíðu hvemig kotn það til? -Ædi það hafi ekki verið haustið 2004, sem Bændasamtök fslands auglýstu heimasíðukeppni. Við vorum búin að hugsa í nokkurn tíma um að koma upp heimasíðu svo ég dreif í því á mánuði að búa til síðuna. Það var ofsalega gaman og tímaffekt. Ég fann í tölvunni hjá mér forrit til að setja upp síðuna og lærði á það jafhharðan og ég rak mig á. Svo bættust ailtaf við undirsíður, því það voru sífelit fleiri þættir sem ég vildi hafa á síðunni. Við urðum svo í þriðja sæti yfir besta innihald á heimasíðu. Þú setur innfréttir bœði af mönnutn ogdýmtn. Ertu dugleg að uppfœra? -Alls ekki nógu dugleg. Það er svolítið maus að setja inn nýjar fféttir, þetta er ekki svona auðvelt eins og blogg af því að ég er með þetta í sér forriti í tölvunni og þarf svo að senda í gegnum ftp og tekur agalega langan tíma á netinu, enda nettenging hér eins og viða í dreifbýli ekki til að hrópa húrra fyrir. Ég tek á mig rögg af og til og skelli inn nokkrum fféttum í einu. Fylgistþú reglulega með öðmtti heima- og bloggsíðum? -Já, það eru nokkrar sem ég er daglegur gestur á, bæði fféttasíður og vinasíður. Inni á heimasíðu ykkar tttá fitttta eitthvað setn heitir Þjóðgarðshátíð og er halditt í ágúst ár hvert. Hvað er Þjóðgarðshátíð? -Við hjónin giftumst 26. ágúst árið 2000 og enduðum veisluna á að vera með varðeld og söng og gleði í Þjóðgarðinum okkar. Það var svo gaman að við endurtökum þetta ár eftir ár. Þjóðgarðurinn er um hektari upp af íbúðarhúsinu, þar er lækjargil, lautir og hólar. Við erum búin að planta þar nokkrum skjólbeltum, sem vaxa vel og plöntum þar ýmsum tegundum af trjám, sem mörg hver eru komin svolítið á legg. Á hverj u ári sendum við út tölvupóst á flesta í netfangaskránni okkar til að minna á Þjóðgarðshátíðina. Við byrjum yfirleitt á því að fara í vísindaferð um einhvern hluta landareignarinnar og gestum sýnt eitthvað sem við höfum verið að bardúsa, eins og ný skjólbelti í samanburði við eldri eða kynnum grænfóðrið hjá kúnum og nýræktirnar, æðarvarpið o.þ.h. Svo er farið í leiki, í fjósið, grillað og sungið. Á hverju ári erum við með hugmyndapott um nafn á einhverju í Þjóðgarðinum. Aff aksturinn er fossinn T rítill, sem fellur niður hlíðar Sældardals. Um Þjóðgarðinn liðast Sokkableytir, en hann kallast Slakur þegar þurrkatíð er, í mínu ungdæmi hét hann bara Lækurinn. Sokkableytir rennur um Vinahvamm, þar sem griilveislan og söngurinn fara ffam, þá sitja gestirnir oft í hlíðum Frekjuskarðs. I Þjóðgarðinum er einnig kofi sem fékk nafhið Draumahöll og sjóræningjaskipið Svarthöfði. Þetta er mikil hátíð hjá öllum, sérstaldega yngri kynslóðinni. Sumt af ffændfólld okkar hefur samband snemmsumars til að fá dagsetninguna á hreint, svo að hátíðin skarist ekki við önnur plön. Þið rekið blandað bú hvar liggur áherslan, em það á kúa-búskapinn eða hrossin eða kannski bara bœði? -Alveg á hvort tveggja. Við höfum kappkostað að endurrækta túnin til að fá sem best fóður fyrir kýrnar. Byggðum lausagöngufjós árið 1999 og höfum þar pláss fyrir 33 mjólkandi kýr, notum svo gamla fjósið og hluta fjárhúsanna fyrir burðarstíur og kálfastíur. Hinum hluta íjárhúsanna breyttum við í hesthús. Stíurnar í gamla fjósinu nýtast bæði fyrir hross og nautgripi, þannig að þegar burður er búinn hjá kúnum og kálfarnir hættir á mjólkurgjöf nýtast stíurnar fýrir hross. Þess vegna látum við allar kýrnar bera frá ágúst fram undir jól til að geta nýtt aðstöðuna fýrir hross yfir vetrartímann. Þegar kálfarnir eru búnir á mjólkurgjöf fara þeir allir saman í stóra stíu í fjárhúsunum. Með því að hafa burðartímann þéttan eru kýrnar megnið af árinu á sama fóðrunarstigi. Okkur finnst engin ástæða til annars en að kýrnar skili fullum afurðum og þær gera það ekki nema að hafa góðan aðbúnað og nóg af úrvals fóðri. Meðalnytin hefur aukist úr 4.500 1 í um 7.000 á 10 árum. Það er lfka metnaður hjá okkur í að vera með góð hross, bæði til keppni og útreiða. Það eru 2-5 folöld í árgangi og mjög spennandi árgangur sem kemur nú inn á fjórða vetur. Þið rekið líka tamningamiðstöð er það ekki rétt hjá mér? -Það er nú varla hægt að kalla það tamningamiðstöð. I hesthúsinu eru 12-16 hross yfir veturinn og eigum við sjálf yfirleitt um helming hrossanna, svo eru fastakúnnar sem tamið er fýrir. Stefnan er á að vera með góð hross til keppni og kynbótasýninga. Jói sér nánast alveg um hrossin, ég reyni þó að komast með honum á bak nokkrum sinnum í viku og fæ þá að fara á þau hross sem lengst eru komin. Það er ofsalega gaman að fýlgjast með framgangi þeirra hjá honum og ríða út á góðum hrossum. Finnst þér heitnasíðan ykkar hafa breytt einhvetju tneð ykkar búrekstur ogþá kannski sérstaklega hrossarœktina. Það er þetta að skila sér? -Nei, svo sem eldd. Enda er ekki rnikið til sölu hjá okkur. Það sem er selt er helst í kjölfar einhverrar keppni eða sýningar. Hins vegar lít ég á þetta sem góða auglýsingu fýrir landbúnaðinn og hrossaræktina. Við t.d. fengum fýrirspurn í tölvupósti um daginn frá Þýskalandi um folald sem við áttum undan Núma frá Þóroddsstöðum. Gátum bent fyrirspyrjandanum á önnur tryppi á svæðinu undan þeim hesti. Mœlirþú með að bœndur haldi úti heimasíðum til þess að vekja athygli á lífinu í sveitinni? -Algjörlega. Bæði er þetta skemmtilegt oggóð auglýsingfýrir dreifbýlið. Svo er þetta gífurlega góð heimild. Við t.d. förum inn á heimasíðuna til að finna númerin á hrossunum okkar og skoða eldri myndir af þeim. Þar eru líka helstu fréttir af fjölskyldunni og úr fjósinu, þannig að seinna meir er hægt að ylja sér við minningar með því að skoða síðuna.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.