Feykir


Feykir - 13.03.2008, Page 1

Feykir - 13.03.2008, Page 1
Jónas Svavarsson hefur verið meðlimur í Kiwanis hálfa ævina Félagsmálamaður fram í fingurgóma Jónas er hjá Skagfirðingum þekktastur fyrir að selja þeim málningu, parket og verkfæri en hann hefur starfað sem sölumaður hjá KS í 23 ár. Áður starfaði hann sem húsasmiður. Samhliða vinnunni er Jónas mikill félagsmálamaður, syngur í Heimi og er forseti Kiwanis en Jónas tók þátt í stofnun hreyfingarinnar í Skagafirði fyrir 30 árum. sjá viðtal á bls. 7 Lögreglumál í Skagfirdi Skagafjörður - Blönduós Yfirlögregluþjónn á leið í frí en ekkí hættur Bjom Mikaelsson, yfirlogregluþjónn hja logreglunni a Sauðárkróki er kominn í opið veikindaleyfi en Bjöm er á biðlista eftir þvf að komast í hjartaþræðingu. Sýslumannsembættið leitar nú að manni til þess að leysa Bjöm af í veikindum hans. -Ég er með bréf upp á vasann þar sem kemur fram að ég þurfi að bíða í 1 - 8 mánuði eftir að komast að í þessa aðgerð. Þangað til er mér fyrirskipað að hvíla mig, segir Björn. Aðspurður segir hann að ekkert sé til í þeim sögusögnum að hann sé kominn í veikindaleyfi þar til hann fari á eftirlaun samkvæmt hinni svokölluðu 95 ára reglu. Björn segir að ráðið verði í hans starf tímabundið eða til sex mánuða. Eftir það, að því gefnu að aðgerð hans takist vel, komi hann aftur til starfa. Annar lögreglumaður hefur einnig farið í tveggja vikna leyfi en sá þriðji hefur sett hús sitt á sölu og hyggst yfirgefa liðið. Hlýtur þetta að vera áfall fyrir lögregluliðið en nýlega var þremur af fimm héraðslögreglumönnum sagt upp, þar með talin eina konan í lögreglunni á Sauðárkróki. Feykir hafði samband við Ríkarð Másson, sýslumann, og spurði hann hvernig málum verði háttað í fjar- veru Björns,- Ég tel að hann verði í sjúkraleyfi í allt að 12 mánuði og eftir það verðum við að sjá hvað skeður. Verður fundinn maður tO þess að gegna embættinu í fjarveru Björns eða er eitthvað til í þeim sögusögnum að sýslufulltrúi muni gegna starfinu í þennan tíma? -Nei, það er ekkert til í því. Við erum að leita að manni til þess að gegna þessu starfi í þennan tíma og hann kemur um leið og hann finnst. Við erum að leita að manni utan héraðs, segir Ríkarður Másson. Sameina á heilbrigðisstofnanir Framkvæmdastjórar heilbrigðis- stofnanna á Blönduósi og Sauðárkóki voru boðaðir á fund í heilbrigðisráðnuneytinu á dög- unum þar sem þeim var tilkynnt um að fyrir lægi frumvarp þess efnis að sameina ætti stofnanirnar. Ekki var greint ffá því hvert framhaldið yrði, hvort þeim yrði báðum sagt upp og staðan auglýst að nýju, hvort hjúkrunarforstjórum og yfirlæknum yrði sagt upp eða starfsfólki yfir höfuð. Ákvörðun þessi hefur skapað spennu innan vinnustaðanna enda starfsfólk í mikilli óvissu með framhaldið. Samkvæmt heimildum Feykis var ekkert samráð haft við starfsfólk stofnananna áður en þessi ákörðun var tekin. Feykir mun fjalla nánar um þetta mál í næstu viku. Skagaströnd Tundurdufl sprengt í Hrafndal Sprengikraftur skók bíl í 500 metra flarlægð er tundurdufl var sprengt í Hrafndal á þriðjudagskvöld. Tundurduflið hafði hafrannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson féngið f trollið úti á Húnaflóa. Áður en skipið kom að bryggju hafði björgunarskipið Húnabjörg flutt sprengjusérfræðinga Land- helgisgæslunnar um borð til að gera duflið óvirkt. Duflið var síðan flutt undir stjórn sprengjusérfræðinga af Björgunarsveitinni Strönd upp í Hrafndal þar sem það var sprengt rétt fyrir hálf átta. UIH ixus 70 =24.900 m/ Ixus 75 27.400 m/vsk —(CTengill ekp— TÖLVUDEILD TENGIL.S BORGARFLÖT 27 SAUÐÁRKRÓKI / 455 7900 VIÐ BONUM OG RÆSTUM! Daglegar ræstingar og reglubundið viðhald á bóni í fyrirtækjum og stofnunum Hringdu núna eða sendu tölvupóst Sími: 893 3979 * Netfang: siffo@hive.is Bílaviðgerðir hjólbarðavidgerdir réttingar ogsprautun nan ■mmmgsz Síiuðárkrókur-S:4535141

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.