Feykir


Feykir - 13.03.2008, Síða 7

Feykir - 13.03.2008, Síða 7
10/2008 Feykir ~7 Jónas Svavarsson hefur verið meólimur í Kiwanis hálfa ævina Félagsmálamaður fram í fingurgóma Jónas er hjá Skagfiröingum þekktastur fyrir aö selja þeim málningu, parket og verkfæri, en hann hefur starfað sem sölumaður hjá KS f 23 ár. Áður starfaði hann sem húsasmiður. Samhliða vinnunni er Jónas mikill félagsmálamaður, syngur í Heimi og er forseti Kiwanis en Jónas tók þátt í stofnun hreyfingarinnar í Skagafirði fyrir 30 árum. Ég hitti Jónas íýrst þar sem við sitjum saman til borðs þar sem mér er boðið að vera gestafyrirlesari á kvöldverðafundi hjá Kiwanis. Staðurinn er litla rauða húsið við höfnina á Sauðárkróki en húsið festu Kiwanismenn kaup á upp úr 1990. Húsið er ekki stórt en dugar starfseminni. Inni í eldhúsi standa kokkar kvöldsins og þaðan berst ilmur, ljúffeng súpa og brauð eru á matseðli kvöldsins. -Við skiptumst í nokkrar nefndir innan félagsins og hver nefnd á sitt kvöld og sér þá um matinn. Við hinir borgum síðan allir í matnum og sé hagnaður fer hann í hússjóðinn, útskýrir Jónas. -Við hittumst annan hvern miðvikudag ffá því í október og ffam í maí og er miðað við að hver félagi sé með um 60% fúndarsókn yfir það tímabil, bætir hann við. Fundurinn er formlegur en þó svifúr húmor félagsmanna yfir vötnum og mikið er hlegið. Nýr meðlimur, Benedikt Lafleur er telcinn inn í félagið og rnenn skiptast á sögum úr starfinu yfir súpunni. Farið er yfir starfið framundan og afrnæli félagsins sem haldið verður upp á í lok maí. Ég spyr því Jónas hvemig það hafi komið til að hann gelck til liðs félagið og það sem meira er tók þátt í stofriun þess fýrir þrjátíu árum, þá þrítugur að aldri ? -Það var nú eiginlega mín eðlislæga forvitni sem varð til þess, segir Jónas og hlær áður en hann heldur áffam. -Ég var staddur á bílaverkstæði hér í bæ á sama tíma og maður sem fenginn var af Kiwanisklúbbunum Geysi í Mosfellsbæ og Skyldi á Siglufirði en þessir tveir ldúbbar höfðu teJcið höndum saman um að hóa saman mönnum hér á Krók með það í huga að stofna félag. Ég spurði þá hvað þeir væru nú að bralla sem varð til þess að ég var spurður hvort ég hefði ekki áhuga á að kíkja á kynningarfúnd um Kiwanis. Það varð úr að ég mætti á fundinn en ekki hinir tveir. Það er skemmst ffá því að segja að þeir sem mættu á umræddan kynningarfúnd voru mjög jákvæðir og úr varð að sett var saman stjórn. Jónas var beðinn að taka sæti í stjórninni sem meðstjórnandi. -Ég hafði aldrei komið nálægt félagsmálum en eftir að ég hafði verið fullvissaður um að ég þyrfti ekkert að gera sló ég til. Næsta skref var síðan að finna fleiri félaga en til þess að hægt yrði að stofna ldúbbinn urðu félagar að vera 25. Það tókst og ldúbburinn var formlega stofnaður þann 16. maí árið 1978 og síðar fullgiltur af Evrópustjórn um haustið það sama ár. Þá hins vegar kom það upp að sá sem kosinn hafði verið forseti um vorið hafði flutt til Selfoss í millitíðinni og annar þurfti að taka við. Þar sem allir nema ég voru komnir með embætti innan stjórnar var álcveðið að leita til mín. Þar sem ég vissi að í þessum félagsskap er gert ráð fýrir að allir gegni að minnsta kosti einu sinni embætti forseta hugsaði ég með mér að illu væri best aflokið og sló til og var forseti annað starfsár klúbbsins sem varð mjög lærdómsrík. Nú 30 árum síðar er ég síðan affur orðinn forseti. Ekki bara gamlir kallar Kiwanis er líknar- og þjónustuklúbbur og segir Jónas að starfið gangi að miklu leiti út á að safúa peningum til góðgerðamála. Hefúr klúbburinn styrkt myndarlega við baldð á ýmsum málefnum í gegnum tíðina. Nú nýlega styrktu þeir björgunarsveitina nokkuð veglega til kaupa á snjóbíl. -Stærsta verkefúi olckar var þó fýrir 10 árum þegar við söfnuðum fýrir og gáfúm bíl til sambýlanna hér á Sauðárlcróki. Sú söfúun tókst með hjálpa margra góðra aðila og það er ógleymanlegur dagurinn þegar við afhentum bílinn. Gleðin skein úr hverju andliti og við fengum þau viðbrögð að lolcsins gætu þau farið að ferðast. Hvemig fjármagnið þið starfið? -Að mestu leyti með fjáröflunum. I mörg ár sáum við um að keyra um sveitirnar og selja fisk en nú er hann orðinn svo dýr að það datt upp fýrir. Þær eru orðnar margar fjáraflanirnar sem við höfúm staðið fýrir í gegnum tíðina en aðalfjáröflunin er litla síma- og þjónustuskráin sem við gefúm út á hveiju ári. Aðspurður segir Jónas að það gangi þolckalega að viðhalda félagsskapnum og félagafjöldin sé yfirleitt þetta í kringum 28 og aldrei hafi þeir farið niður fýrir 25 -Við höfúm fengið tvo nýja félaga það sem af er ári en auðvitað mætti endurnýjunin vera meiri. En er það ekki þannig í öllum klúbbum í dag? Síðan er konurnar líka með félagsskap sem heitir Sinawik og þar eru 11 starfandi konur. Þeirra félagsskapur gengur þó meira út á að hittast því þær hafa ekJd staðið í neinum fjáröflunum. Hvað með ungu mennina leita þeir inn í klúbbinn eða er hann meira fýrir heldri menn? -Nei alls ekld, ungu mennirnir eru líka með okkur en sá yngsti, sem nýlega er gengin til liðs við okkur er 29 ára og sá elsti 79. AJdursbilið er því breitt og engin ástæða til að ætla að hér séu bara saman komnir gamlir kallar, svarar Jónas og hlær. Nú ert þú sjálfur búinn að vera meðlimur hálfa ævina og ert nú forseti í annað sinn, hugsar þú aldrei með sjálfum þér að nú sé þetta komið gott? -Nei, alls ekld. Ég tel mig hafa algjörlega sloppið við formannaveildna eins og við köllum það. En mönnum hefur hætt til að hætta eftir að hafa setið sem formenn. Mér finnst bara svo gaman að koma hingað og hitta kunningjana hálfs mánaðarlega, spjalla og borða með þeim. Eins höfúm við farið saman í ferðalög bæði innanlands og utan sem ég hef gaman af. Eru einhver ferðalög sem eru þar eftirminnilegri en önnur? -Já mér er ógleymanlega ferð sem við fórum á Vestfirði í maí árið 1989 en það þurfti blása okkur með öflugum snjóblásara leið yfir Steingrímsfjarðarheiðina og það var allt gjörsamlega á lcafi í snjó fýrir vestan. Við létum það samt sem áður ekki affra okkur og áttum þarna ógleymanlega ferð. Eins var Færeyjaferðin 1995 effirminnileg. Nú síðan hef ég upplifað það að fara til Bandaríkjanna á ball hjá Kiwanis án þess að fara úr landi, segir Jónas og þessi síðasta setning verður til þess að ég hvái. -Olckur var boðið tvö ár í röð á vordansleik hjá Kiwanisklúbbnum Brú á Keflavíkurflugvelli. Til að fá inngöngu þurftum við að hafa með okkur vegabréf og kaupa dollara. Þegar inn á svæðið var komið svo ég tali nú ekld um klúbbinn var engu líkara en við værum komnir til Bandaríkjanna. Það þótti því mörgum olckar sem eldd höfðu farið út fýrir landssteinana að þarna hefðum við farið tO útlanda. Þetta var mjög gaman og milcil upplifún fýrir oJckur á þeim tíma en þetta var á upphafs árum klúbbsins. Hátíðarhöld í lok maí Eruð þið margir af stofnfélögunum sem eruð enn starfandi í klúbbnum ? -Við erum fimm starfandi og síðan er einn gamall stofnfélagi okkar, Svavar Einarsson, uppi á sjúJcrahúsi, hann er enn félagi og verður það. Ef það er einhver sem langar að mæta á fúnd, skoða félagsskapinn og hugsanlega ganga í klúbbinn, hvert á hann þá að snúa sér? -Hann getur annað hvort snúið sér til mín beint nú eða haff samband við Pálma Ragnarsson, bónda í Garðakoti, sem er formaður félagsmálanefndar. Forseti lendir alltaf í því að verða formaður þeirrar nefndar árið sem hann hættir. Er félagið einskorðað við Skagafjörð? -Nei alls ekki. Eftir að Borgir á Blönduósi var lagður niður gelck einn félagi þaðan til liðs við okkur og hann keyrir alltaf yfir á fundi. Við höfum verið að hnippa aðeins í hann um að fá með sér nýja félaga en síðan geta menn sem lesa viðtalið bara haft samband ef þeir hafa áhuga. Framundan er 30 ára afmæli en í tilefni tímamótanna hefúr klúbburinn teldð að sér að vera með umdæmisþing Kiwanisfélaga á Islandi og Færeyjum og segir Jónas að von sé á eitthvað á milli 3 - 400 manns síðustu helgina í maí. -Við stefnum að því að halda veglega upp á afmælið og fýrst allt þetta fólk kemur verðum við jú að taka vel á móti því, segir Jónas brosandi. -Við ædum að bjóða öllum niður í reiðhöll á föstudagslcvöldinu og gera þar eitthvað skemmtilegt og síðan verður hátíð í íþróttahúsinu á Sauðárkróki á laugardagskvöldinu. Dagskráin er ekki fullmótuð enn sem komið er en við gerum ráð fýrir að vera vel sýnileg í Skagafirði þessa helgi enda búnir að bóka mest allt gistirými í firðinum og stefnum að miklum hátíðarhöldum, segir Jónas að lokum.

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.