Feykir - 12.02.2009, Page 8
8 Feykir 06/2009
Vel heppnaó íbúaþing var haldið á Sauóárkróki þann 7. febrúar sl.
Traustur grunnurað
byggja á til framtíðar
Gott mannlíf og fjölbreytt
atvinnulíf í fallegri
náttúrulegri umgjörð er
sá trausti grunnur sem
Skagfirðingar telja að
Sauðárkrókur geti byggt á til
framtíðar. Þetta kom fram á
íbúaþingi sem Sveitarfélagið
Skagafjörður stóð fyrir og
haldið var á Sauðárkróki
sl. laugardag með um
100 þátttakendum. Þær
hugmyndir og þau sjónarmið
sem komu fram á þinginu
verða nýtt við endurskoðun
aðalskipulags fyrir Sauðárkrók
sem ráðgjafarfyrirtækið Alta
hefur umsjón með.
Á íbúaþinginu ríkti mjög
jákvæður andi og komu fram
ýmsar ábendingar sem styrkt
geta Sauðárkrók og Skagafjörð
allan og greinilegt að íbúar horfa
björtum augum fram á veginn.
Rætt var um að nýta mætti
betur auðlindir til uppbyggingar
í atvinnumálum og að efla
þyrfti aðstöðu fyrir ferðamenn
á Króknum. Einnig var lögð
áhersla á að bæta aðstöðu fyrir
frumkvöðla til að skjóta nýjum
stoðum undir atvinnulífið
um leið og þær eldri væru
styrktar enn frekar. Óskin um
líflegri miðbæ í gamla bænum,
frá Faxatorgi að Villa Nova,
var sterk. Ýmsar hugmyndir
komu upp um hvernig mætti
styrkja stöðu gamla bæjarins
með nýrri íbúabyggð neðan
Freyjugötu, m.a. var lagt til að
umhverfis nýjan hafnargarð
væri gert útivistarsvæði með
siglingaraðstöðu og að hin
gömlu torg bæjarins, Kirkjutorg
og Kaupvangstorg, yrðu
endurnýjuð.
Almenn ánægja var með
útivistarsvæði við Litlaskóg
og samstaða um að íbúar
ættu að leggja hönd á plóg
við uppbyggingu og viðhald
svæðisins. Kallað var eftir
heildstæðri stefnu um
uppbyggingu útivistarsvæða og
að hugað væri betur að göngu-,
hjóla- og reiðleiðum. Nokkur
umræða var um tjaldstæði
bæjarins og voru flestir á því að
finna ætti því nýjan stað sem
þó væri í góðum tengslum við
íþróttasvæðið. Mögulegir staðir
voru taldir vera við Sauðárgil, í
klaufunum og upp á Nöfúnum.
Mjögskiptarskoðanirheyrðumst
um framtíð íþróttasvæðisins
sem margir sjá þó sem eitt helsta
jákvæða einkenni bæjarins og
telja hættu á að gengið verði
á kosti þess verði það skert
vegna uppbyggingar umhverfis
Árskóla. Einnig var bent á að
bæta þyrfti íþróttaaðstöðu frekar,
s.s. sundaðstöðu, æfingasvæði
og möguleika til að stunda
boltaæfmgar yfir vetrartímann.
Lagt var mat á svæði fýrir
frekari íbúðarbyggð og töldu
þátttakendur í þeim hópi að helst
bæri að líta til uppbyggingar
innan núverandi byggðar, t.d.
við Freyjugötu, en síðan kæmi
til greina að byggja upp á
Nöfunum.
Sittsýndisthverjumummögulega
staðsetningu menningarhúss.
Ýmsir voru fýlgjandi því að
það yrði í nánum tengslum
við Árskóla en aðrir töldu því
betur fýrirkomið á Faxatorgi. Þá
komu einnig fram hugmyndir
um að menningarhúsið yrði við
Strandveginn, í nánum tengslum
við miðbæinn og með fallegu
útsýni út á fjörðinn.
Margar aðrar ábendingar og
tillögur komu fram sem skoðaðar
verða í því skipulagsferli sem
nú er framundan. Alta mun
kynna drög að skipulagstillögu á
opnum íbúafundi í vor.
Myndir: ÞB