Feykir - 26.03.2009, Blaðsíða 4
4 Feykir 12/2009
ADSENT EFNI
Frá Sögufélagi Skagfirðinga
Æviþættir Ólafs Jóhannessonar
Sögufélag Skagfirðinga
hefur nú fengið til útgáfu
ævisöguhandrit Ólafs
Jóhannessonar fyrrum
forsætisráðherra og er
áætlað að bókin komi út f
vetrarbyrjun.
Ólafur lést árið 1984,
rúmlega 71 árs að aldri. og
hafði þá um eins árs skeið
fengist við ritun æviminninga
sinna. Honum auðnaðist
ekki að Ijúka verkinu, komst
ekki lengra en fram að þeim
tíma sem hann hóf þátttöku
í stjórnmálum og vantaði þá
enn allmarga kafla sem hann
hafði hugsað sér að rita og
bæta inn eða auka aftanvið.
Ólafur var fæddur 1913 á
Brúnastöðum í Fljótun ogfjalla
minningar hans um foreldra,
æsku og uppvöxt í Fljótum.
Lýst er leikjum, félagslífi og
atvinnuháttum og sagt frá fólki
og heimilum í Austur-Fljótum
á unglingsárum hans. Greint er
frá árunum í Menntaskólanum
á Akureyri, lögfræðináminu
í Reykjavík og síðan vinnu
hjá Samvinnuhreyfingunni
og kennslu við lagadeildina.
Síðustu tveir kaflarnir fj alla um
stjórnmál og þingmennsku.
Bókin verður eitthvað á
þriðja hundrað blaðsíður að
stærð, talsvert myndskreytt
og ætlunin er að gera hana
að áskriftarriti þar sem
kaupendum gefst kostur á að fá
nafn sitt ritað í töflu í upphafi
bókar og heiðra minningu
Ólafs Jóhannessonar.
Áætlað verð til áskrifenda
og félagsmanna Sögufélags
Skagfirðinga verður kr. 4.500.
Hægt er að panta áskrift í síma
félagsins í Héraðsskjalasafninu
453 6640 eða 453 6261 eða
á netfangi félagsins saga@
saudarkrokur.is
Fjölgun
félagsmanna
Skagfirðingabók er fastarit
Sögufélags Skagfirðinga. Hún
hóf göngu sína 1966 og hafa
síðan komið úr 31 hefti, samtals
yfir 6000 blaðsíður sem geyma
gríðarlegan fróðleik um sögu
og mannlíf í Skagafirði. Auk
Skagfirðingabókar hefur
félagið undanfarin ár gefið út
Byggðasögu Skagafjarðar og
Skagfirskar æviskrár.
Næsta haust er von á nýju
bindi æviskráa frá tímabilinu
1910-1950 en fimmta bindi
Byggðasögunnar kemur ekki
fyrr en haustið 2010. Þar verða
saman í bók Rípurhreppur
hinn gamli, Viðvíkurhreppur
og Hólahreppur.
Síðasta Skagfirðingabók
kom út í nóvember s.l. en
næsta bók, hin 32 í röðinni,
er á áætlun í febrúar/mars á
næsta ári.
Félagsmönnum Sögufélags
Skagfirðinga hefur smám
saman fækkað undanfarin
ár og er nú svo komið að
þrátt fyrir að mestur hluti
vinnu við útgáfur félagsins
sé unninn í sjálfboðastarfi þá
hefur stórhækkað verðlagi
á prentun og öllum útgáfu-
og dreifingarkostnaði svo
að örðugt er að ná endum
saman.
Brýnt er að fjölga félags-
mönnum og jafnframt
áskrifendum Skagfirðinga-
bókar til að viðhalda grund-
velli að áframhaldandi útgáfu
félagins. Talsvert er til á lager
af eldri Skagfirðingabókum og
öðrum útgáfubókum félagsins
sem eru nú fáanlegar á mjög
lágu verði.
Á rúmlega 70 ára ferli
sínum hefur Sögufélag
Skagfirðinga notið mikillar
velvildar heimafólks og
gefið út nálægt 100 rit um
sögu Skagafjarðar. Það væri
menningarslys fyrir héraðið ef
gangur þess stöðvaðist.
Alþingiskosningar 2009
Ásbjöm náði 1. sæti
Ásbjörn Óttarsson í
Snæfellsbæ er nýr oddviti
Sjálfstæðismanna í
Norðvesturkjördæmi en
hann náði fyrsta sætinu á
síðustu metrum
atkvæðatalningarinnar. í
öðru sæti hafnaði Einar
Kristinn Guðfinnsson
alþingismaður f
Bolungarvfk.
í þriðja sæti varð Eyrún
Ingibjörg Sigþórsdóttir á
Tálknafirði. Birna Lárusdóttir
á ísafirði varð í íjórða sæti.
Bergþór Ólason á Akranesi
í fimmta og Sigurður Örn
Ágústsson frá Geitaskarði í
sjötta sæti.
Kosningin er bindandi í sex
efstu sætin. Kjörsókn var með
mesta móti á landsvísu. Á
kjörskrá voru 3930. Atkvæði
greiddu 2913 eða 74,13 prósent.
Auðir og ógildir seðlar voru
221 og gild atkvæði þvi 2692.
Sparísjóður Skagafjarðar
Óbreytt ástand
Það vakti athygli að Afl
Sparisjóður, móðurfélag
Sparisjóðs Skagafjarðar,
var ekki í upptalningu
þeirra sparisjóða sem nkið
hyggst koma til bjargar.
-Ein skýring á því gæti
verið sú að ríkið hyggst koma
inn í rekstur Sparisjóðs
Mýrasýslu sem á stærstan hlut
í Afli Sparisjóð. Hin skýringin
gæti verið að Afl Sparisjóður
er vel rekið fyrirtæki og hefur
ekki sótt um styrk til ríkisins,
segir Kristján Snorrason,
sparisjóðsstjóri á Sauðárkróki.
Aðspurður segir Kristján
að atburðir laugardagsins
komi ekki til með að hafa bein
áhrif á rekstur Sparisjóðs
Skagafjarðar því sjóðurinn
hafi ekki átt nema mjög lítinn
hlut í Sparisjóðabankanum.
-Það er óbreytt ástand hjá
okkur enda rekstur sjóðsins í
eins góðu lagi og hægt er, segir
Kristján.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
Skagfirðinga
er komin verðhjöðnun
Njlir félagsmenn sem kaupa síðustu
Skagfirðingabók á kr. 4.500 geta fengið allar eldri
fáanlegar Skagfirðingabækur 27 talsins,
fyrir samtals 15.000 krónur.
Félagsmenn geta fyllt upp í ef eitthvað vantar. Stakar seljast
Skagfirðingabækur nr. 1-15 á kr. 500 en nr. 16-30 á kr. 1000 stk. Nr.
11,12 og 14 eru uppseldar.
Allar aðrar fánlegar útgáfubækur félagsins, nema Byggðasagan,
eru seldar á hálfvirði miðað við uppgefið verð í bókaskrá.
SÖGUFÉLAG
SKAGFIRDINGA
Safnahúsinu 550 Sauðárkróki Sími 453 6640 eða 453 6261 saga@skagafjordur.is
^l_________________________________________________F
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna
Alþingiskosninganna 25. apríl 2009
hófst við embætti sýslumannsins á Sauðárkróki, Suðurgötu 1,
þann 14. mars s.l. og er opið á skrifstofutíma
á milli kl: 09:00 - 15:00 virka daga.
Lokað er á skírdag, föstudaginn langa, páskadag og annan í páskum.
Eftir páska verður verður opnunartími
vegna kosninganna sem hér segir:
Þriðjudaginn 14. apríl kl: 09:00-19:30
Miðvikudaginn 15. apríl kl: 09:00-19:30
Fimmtudaginn 16. apríl kl: 09:00-19:30
Föstudaginn 17. apríl kl: 09:00-19:30
Laugardaginn 18. apríl kl: 10:00-14:00
Mánudagurinn 20. apríl kl: 09:00-19:30
Þriðjudaginn 21. apríl kl: 09:00-19:30
Miðvikudaginn 22. apríl kl: 09:00-19:30
Fimmtudaginn 23. apríl kl: 11:30-19:30
Föstudaginn 24. apríl kl: 09:00-19:30
Laugardaginn 25. apríl kl: 10:00-14:00
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki