Feykir - 26.03.2009, Blaðsíða 13
12/2009 Feykir 13
Tölvupóstviótalið
Efla ber þekkingu á
íslensku handverki
Ásdís Birgisdóttir er
framkvæmdastjóri Textílseturs á
Blönduósi. Ásdís er búsett í Hafnarfirði
ásamt eiginmanni sínum og þremur
börnum og keyrir norður á Blönduós
til að sinna starfi sínu þar þegar þurfa
þykir. Feykir sendi Ásdísi tölvupóst þar
sem forvitnast er örlítið um konuna
á bak við starfið en ekki síður um
starsemi Textílseturs íslands.
Aðeins um þig sjálfa. Hver er konan,
hvaða menntun hefur hún og hvenær
kom hún til starfa við Textílsetrið?
-Ég kom til starfa hjá Textílsetrinu á
Blönduósi í september á síðasta ári. Ég
nam textíl- og iðnhönnun í Textíldeild
Myndlista- og handíðaskóla íslands og
starfaði lengi hjá Heimilisiðnaðarfélagi
Islands sem framkvæmdastjóri og
skólastjórnandi auk þess að vinna við
textílhönnun og myndlist. Áhugasvið mitt
hefur verið að stuðla að menntun, fræðslu
og aukinnar þekkingar um íslenska textíla
og textílhefðir, handverk og hannyrðir.
Textílhefðir eru mikilvægur hluti af fortíð
okkar og tvinnast saman við nútímann á
margan hátt.
Ég er búsett í Hafnarfirði en þar
er fjölskyldan, bóndinn og börnin
þrjú. Ég keyri norður og hef skrifstofu
í Kvennaskólanum, funda og hitti
samstarfsfólk þegar þurfa þykir. Á
Blönduósi hef ég komið mér vel fyrir
á Kleifum, en þar bý ég þegar ég er
norðan heiða. Ég á ættmenni hér, en
Ingvi Þór, föðurbróðir minn er búsettur á
Blönduósi, en þeir pabbi voru lengi í sveit
á Hjaltabakka.
Textílsetur á Blönduósi hvað er þetta
gamalt fyrirbæri?
-Textílsetur íslands var sett á laggirnar
með stofnskrá árið 2005 og er starfsemin
til húsa í gamla Kvennaskólahúsinu á
Blönduósi.
Hver er hugmyndafræðin á bak við
setrið?
-Meginhlutverk með stofnun Textílseturs
Islands er að efla rannsóknir og menntun
á íslenskum textfliðnaði og handverki. Þá
er stefnt að því að skapa háskólanemum,
fræðimönnum og listafólki starfsaðstöðu
fýrir vettvangsnám og rannsóknir á
sviði textílfræða og jafnframt því að
vera alþjóðlegt fræðasetur sem heldur
ráðstefnur, málþing og námskeið um
textíl.
Nú eru uppi hugmyndir um háskólasetur
í tengslum við Textílsetrið á Blönduósi
kemur þú til með að koma að þeirri
vinnu?
-Það var því mikið fagnaðarefni þegar
fyrir stuttu var undirritað samkomulag
á milli Blönduóssbæjar og Háskólans á
Hólum um uppbyggingu háskólaseturs
á Blönduósi. Textílsetrið mun koma að
þeirri uppbyggingu enda um samstarf við
þekkingar- og fræðasetur á svæðinu að
ræða í þeim tilgangi að stunda rannsóknir
og fræðslu á sviði textílfræða og íslensks
heimilisiðnaðar.
Nú hefur þú verið að bjóða upp á
prjónakaffi. Hvers konar samkoma er
það og er það vel sótt ?
-Prjónakaffið fór í gang í nóvember
með kynningu á Istex og fyrirlestri
Védísar Jónsdóttur hönnuðar. Var það
einstaklega vel sótt og heffir verið svo
síðan. Er þetta kjörinn vettvangur til að
hittast yfir handavinnu, spjalla og fræðast
en boðið er upp á einhverja uppákomu
í hverju prjónakaffi sem er yfirleitt í 2.
viku mánaðarins. Næst þann 15. april
þegar Quiltbúðin á Akureyri kynnir vöru
sína og þjónustu. Allir eru velkomnir og
áhugasömum bent á að koma má með
hugmyndir að kynningum.
Eru einhver spennandi námskeið í
farvatninu?
-Ég hef það að markmiði að bjóða
upp á sem fjölbreyttasta starfsemi hjá
Textílsetrinu. Mér fmnst mikilvægt
að efla þekkingu á handverki og
heimilisiðnaði með þvi t.d. að bjóða
upp á námskeið. I vor er á döfmni
námskeið í roð- og leðurvinnu með
Signýju Ormarsdóttur fatahönnuði
og menningarfulltrúa á Egilsstöðum.
Prjóntækni og prjónahönnun með
Margréti Lindu Gunnlaugsdóttur, textíl-
hönnuði og fyrrv. ritstjóra Lopa og bands
og þæfingarnámskeið með Sigrúnu
Helgu Indriðadóttur, handverksmanni
Stórhóli.
Þessi námskeið eru öllum opin en eru
sérstaklega hugsuð til að styðja við þá sem
áhuga hafa áþví að eflahandverkskunnáttu
sína með það að markmiði að geta selt
handverkið.
I sumar verða einnig í boði lengri
námskeið sem geta sérstaklega höfðað til
hópa og fjölskyldna, verður þar boðið upp
á ýmis verkefni svo að hver geti ffindið
eitthvað við sitt hæfi.
Hvað verkefni eru önnur í farvatninu?
-Textílsetrið stefnir að því að opna
handverkshús á Bakkaflöt á Blönduósi
í vor. Markmiðið með Handverkshúsi
Textílseturs íslands er að bjóða upp á
gæðahandverk af NV-landi með áherslu á
ullarvörur, prjón, tengingu við textílsögu
svæðisins og annað það hráefni sem
einkennir NV-land. Verður það vonandi
vönduð viðbót við úrval handverkshúsa á
svæðinu en reynslan heffir sýnt að fjölgun
sölustaða heffir mjög jákvæð áhrif á sölu
handverksfólks og ber ekki að líta á sem
samkeppni heldur fjölbreytni sem er í eðli
sínu söluhvetjandi. Hvet ég því áhugasamt
handverks- og listhandverksfólk að hafa
samband við framkvæmdastjóra vegna
nánari upplýsinga um vörusölu í hand-
verkshúsinu.
Að lokum ?
-Ég hef margar hugmyndir að verkefnum
hjá Textílsetrinu en von mín er að
starfsemin verði sem flestum opin og
gagnist sem fjölbreyttustum hópi. Við
höffim sterka og merkilega textílhefð á
íslandi sem ber að varðveita og halda
lifandi fýrir okkur sjálf og komandi
kynslóðir.