Feykir - 14.05.2009, Blaðsíða 8
8 Feykir 19/2009
FYRIRTÆKI VIKUNNAR
Verslunin Eyri eöa byggingavörudeild
Kaupfélags Skagfiróinga er staósett á
Eyrarvegi á Sauðárkróki en verslunin selur
bygginga-, hesta- og landbúnaóaíA/örur
auk þess aó þjónusta bændur meö
þeirra daglegur rekstrarvörur. Feykir
settist nióur meö Þresti Jónssyni,
aóstoóarverslunarstjóra.
Verslunin Eyri
Útvegum
ólíklegustu hluti
Hvernig verslun er þetta?
-Þetta er aðallega bygginga-
vöruverslun með breitt
vöruúrval þar sem hluti af
okkur vörum er sérpantaður
eftir þörfum hvers og eins. Við
reynum því að sinna öllum þó
varan sé ekki til á lager hjá
okkur. Það eru ólíklegustu
hlutir sem fólk biður um og
við erum að útvega. Það er allt
annað að koma inn í svona
verslun úti á landi heldur en á
höfúðborgarsvæðinu þar sem
viðskiptavinir eru sendir búða
á milli ef varan er ekki til. Hér
setjum við heldur við símann,
eða tölvuna og reynum að
redda málinu og sinna um leið
þörfum okkar viðskiptavina
frá A til Ö, útskýrir Þröstur.
Hvað vinna margir hjá
þér? -Við erum með 11
starfsmenn í 100% starfi og
fjóra í hlutastarfi. Það er
skólakrakkar sem koma inn
í sumarafleysingar en eru
að hluta til með okkur yfir
veturinn til þess að vera betur
í stakk búin að leysa okkur af í
sumarfríum, úrskýrir Þröstur.
Hvernig kom bankahrunið
við ykkur? -Hvaða
bankahrun?, spyr Þröstur
á móti. -Hér hefur ekkert
dregið saman. Það sem af
er ári er reksturinn í góðum
málum. Það virðist vera eins
og bæjarbúar standi meiri
vörð um það en áður að
versla og nota sér þjónustu
í heimabyggð. Það sem
hefur komið mest á okkur
er að vöruverð hefur farið
hækkandi.
Hvað með verktaka, virðist
vera nóg að gera hjá þeim?
-Alla vega i sumar virðist ætla
að verða nokkuð gott ástand.
Ég lít bara bjartsýnn fram á
veginn.
Þið voruð að breyta mikið?
-Já við vorum að endurbæta
hesta- oglandbúnaðardeildina
hjá okkur. Við stækkuðum
svæði sem við notum undir
þessar vörur til muna og erum
að gera því betri skil og betra
aðgengi.
Af hverju þessar breytingar
núna? -Þær eru búnar að vera
í bígerð í rúmt ár. Við tókum
niður veggi til þess að opna
búðina og gera hana bjartari
og skemmtilegri.
Hvernig ertu mannaður
með tilliti til ráðlegginga
? -Bara góður, hérna starfa
iðnaðarmenn bæði píparar
og smiðir og starfsfólk sem
hefur áratuga reynslu. Það er
þó nokkuð um að fólk komi
hingað og leiti ráðlegginga
um það sem það er að fara að
gera hvort heldur sem það er
að fara að smíða palla, velja
gólfefni, mála, nú eða vilja
breyta eða endurbæta heimilið
eða garðinn.
Spurningar til
fagmanna
■ Pallasmíði
Er hægt að fá ráðleggingar hjá ykkur um pallasmíði?
-Við setjumst já oft niður með fólki, efnistökum pallinn
og gefum þessar helstu ráðleggingar en við erum ekki í
hönnun á sólpöllum.
Hvað kostar meðal sólpallur? -Verðið á sólpöllum
reiknum við í fermetrum og er þá fermetrinn á 5000 -
5500 kr með klæðningu og öllum festingum.
Getur nánast hver sem er smíðað sjálfur sólpall? -Já
og nei. Ef viðkomandi hefur einhvem til þess að leiðbeina
sér þá tel ég að hann geti gert mikið sjálfur.
Hversu oft þarf að bera á sólpallinn? - Ég myndi
segja á tveggja ára fresti. Hins vegar er mikið atriði við
málningu á sólpöllum að hann sé ekki málaðurof snemma
eftir að hann er byggður. Vegna þess að þegar er verið
að gagnverja svona efni þá er þetta þrýstigagnvarið. Þá
er timbrið sett inn í tank og fúavarnarefninu þrýst inn í
timbrið og það verður að fá tíma til þess að þorna. Það
verður alltaf blæðing úr fúavörninni eftir að efnið sett
upp. Ekki málað yfir gagnvarið efni fyrr en einum til
þremur mánuðum eftir að það er sett upp.
Þarf að undirbúa pallinn áður en borið er á hann eða
má bera strax á hann? -Það er mikilvæg að fjarlægja
allan gráma af viðnum hann þarf því að pússa í burtu og
stundum er þetta skafið af.
■ lllgresi í lóöum og á bílaplönum
Hvernig er best að ná illgresi og óværu úr garði og af
plani. -A bílaplanið notum við efni sem heitirROUNDUP
og drepur allt. Það má því alls ekki fara nálægt neinum
öðrum gróðri. Roundupið er blandað og úðað úr þar til
gerðum þrýstikönnum. Einnig er hægt að nota Casaron en
það er meira ætlað í runna og til þess að forðast arfann og
fíflana. Það er einnig undir trjám og berjarunnum.
Síðan erum við með Permasect sem er notað við
blaðlús og mjöllús auk fiðrildalifra á skrautplöntum og
runnum. Á mosann get ég síðan bara gefið það ráð að
hafa nógu mikið af krökkum í garðinum til þess að traðka
hann niður.
■ Ef mála á húsið í sumar
Hvað þarf að líða langur tími frá því að húsið er
háþrýstiþvegið og þangað til það má mála? -Það fer
eftir veðráttu, ef það er sól og vindur þá þarf ekki að líða
nema tveir, þrír dagar. Það er yfirleitt alveg nóg. Jafnvel
daginn eftir ef þetta er bara léttur þvottur og þurrt í
veðri.
Er nóg að sílanúða húsið áður en það er málað eða
er nauðsynlegt að kalla til múrara áður en húsið er
málað? -Það þarf að meta ástand hússins. Ef það kemur í
ljós að eitthvað er laust utan á múrnum þá þarf að kalla til
rnúrara. Maður sér strax ef eitthvað þarf að gera. Það er
efni sem heitir Vatnsvari eða sflan, sem ég hef tröllatrú á
og þá bara baða allt húsið upp úr þessu áður en málað er.