Feykir - 28.05.2009, Síða 4
4 FeykJr 21/2009
Skagafjörður
Sauðárkrókur og Hvammstangi koma illa út í öryggiskönnun
Uppgangan í Drangey
fær a nýjan leik
Félagar í Drangeyjar-
félaginu héldu út f Drangey
þann 21 sfðastliðin og
hreinsuðu laust grjót úr
uppgöngunni og löguðu
göngust'ginn upp á ey og
er hann nú fær þeim sem
hug hafa á að klffa eynna.
í fréttum undanfarið hefur
verið greint frá því að mikið
grjóthrun hefur eyðilagt
uppgönguna í Drangey, en
hún er einungis kleif á einum
stað í Uppgöngu, í Upp-
gönguvík vestan megin í
eynni. Mikið grjóthrun hefur
orðið úr suðaustur horni
Lambhöfða og hefur það fallið
niður skriðuna sem kennd er
við Uppgöngu. Tímasetning á
þessum atburði er ekki þekkt
en líklegt er að það hafi verið
síðari hluta vetrar eða snemma
í vor þegar vetur konungur var
að sleppa tökum sínum, en
síðvetrar og á vorin eru slík
hrun alls ekki óalgeng í íjöllum
landsins. Það er ekki óvanalegt
að grjót falli úr Drangey eins
og hún ber glöggt vitni. Eyjan
er gerð úr móbergi en í slíkum
myndunum er grjóthrun
algengt. Benda má þó á að líkt
og ávalt er grjóthrun algengt í
eynni, líkt og undir öðrum
bröttum hlíðum landsins.
Þeir sem vilja komast út í
Drangey og skoða sig um er
bennt á að Drangeyjarjarlinn
hefur nú farið með fyrstu
ferðir og gengið vel, en við
félagar í Drangeyjarfélaginu
viljum biðja fólk að fara
varlega eins og alltaf.
Selasetur íslands
Sjö staifsmenn í sumar
í Selasetri íslands stendur
undirbúningur sumarvertfð-
arinnar sem hæst, en í
sumar veróa starfsmenn
setursins alls 7 talsins.
Verkefni rannsóknadeild-
arinnar eru fjölþætt en helst
ber að telj a rannsókn á áhrifum
ferðamanna á seli á Illuga-
stöðum á Vatnsnesi en sú
rannsókn er partur af The
Wild North verkefninu, sem
bæði svið rannsóknardeild-
arinnar koma að. Einnig
verður gerð frumrannsókn á
áhrifum sela á laxfiska á
ósasvæðum við Húnafjörð.
Tveir líffræðinemar frá
Háskóla íslands, þau Hrafn-
hildur Laufey Hafsteinsdóttir
og Helgi Guðjónsson, munu
vinna að rannsóknunum við
setrið í sumar. Að auki sinna
starfsmenn deildarinnar og
framkvæmdastjóri setursins
verkefnum líkt og verkefnis-
stjórn, ráðgjöf og þróunar-
vinnu.
Að venju mun Selasetrið
bjóða upp á bæði fræðslu- og
listsýningar auk þess sem
Upplýsingamiðstöðin á
Hvammstanga verður staðsett
í afgreiðslunni líkt og fyrri ár.
Skagafjorður
Tökum til í eigin garði
Umhverfis- og samgöngu-
nefnd Skagaflaróar efhir til
umhverfisdaga 25. ma - 3.
júra 2009. Á Sauóárkróki,
Hofsósi og Varmahíð er hægt
að setja úigang út á gang-
stétt við húsið og verður það
aðan fjariægt af starfs-
mönnum svertarfélagsins.
Á Sauðárkróki verður rusl
fjarlægt dagana 25. maí og 2.
júní en á Hofsósi og í Varma-
hlíð 26. maí og 3. júní. Einnig
er hægt að nota gámasvæðin á
þessum stöðum.
Skagfirðingar eru hvattir til
að láta hendur standa fram úr
ermum og byrja sumarið á
ærlegri garðatiltekt.
Smá í Feyki:: Síminn er 455 7171
SI113auglýsingar
Takið eftir
Hef til sölu ýmsar gerðir og liti af barna- og dömuvettlingum. Takmarkað
magn. Hagstætt verö. Komið og reynið viðskiptin.
Lilja Sveinsdóttir Kambastíg 2 n.h. Sími 453 5671
Of margir nota ekki réttan
búnað fyrir börn í bílum
Umferðarstofa, Forvarna-
húsið og Slysavarnafélagið
Landsbjörg könnuðu öryggi
leikskólabarna í bflum í maí
á sfðasta ári. Farið var f 58
leikskóla og öryggisbúnaður
1886 barna skoðaður. Ef
litið er til könnunar frá árinu
2008 er sláandi hversu illa
Sauðárkrókur og Hvamms-
tangi koma þar út.
Á Sauðárkróki var niður-
staðan sú að í of mörgum
tilfellum var öryggisbúnaður
barna i bílum ófullnægjandi.
Hvammstangi var meðal
þeirra sveitarfélaga sem komu
verst út meðal þeirra sem voru
með börn sín alveg laus í
bílnum.
Hér fylgja nokkur dæmi um spurningar frá foreldrum
Algengar spurningar
1. Er hættulegt fyrir barnið að sitja of lengi í ung-
barnastól? Eigum við frekar að nota barnavagns-
körfuna ásamt neti?
Ekkert bendir til þess að bamið skaðist af því að sitja
of lengi í ungbamastólnum. Best er að hlusta á
barnið og laga aksturstímann eftir óskum þess. Fyrir
barnið er öruggasti ferðamátinn í ungbamastól sem
er rétt festur og snýr baki í akstursstefnuna.
Að hafa barnið í burðarrúmi eða bamavagnskörfu
er verri kostur þar sem barnið liggur langsum í þeim
og þau geta meiðst á hnakka ef nauðhemlað er eða
árekstur verður. Jafnvel komaböm láta vita af því ef
þau sitja ekki þægilega. Þegar langferðir em
skipulagðar er mikilvægt að reikna með hléum.
2. Getur barn undir 150 sm setið á beltapúða f
framsætinu ef öryggispúði er til staðar?
Nei í umferðarlögum segir Barn sem er lægra en
150 sm á hæð má ekki vera farþegi í framsæti
bifreiðar sem búin er uppblásanlegum öryggispúða
fyrir framan sætið. Ekki má lengja bamið með
beltapúða.
3. Við hvaða aldur/þyngd/lengd má hafa barnið á
beltapúða í stað barnabílstóls?
Böm eiga að snúa baki í akstursstefnu eins lengi og
þau geta. Þegarbamið ervaxið upp úr barnabflstól er
mælt með því að skipt sé yfir í beltastól/bílpúða með
baki sem styður og vemdar höfuð bamsins.
4. Hvenær er barn vaxið upp úr bamabíistól?
Barnið er vaxið upp úr bamabílstól þegar höfuð þess
nær upp fyrir stólbakið. Hvort velja eigi beltastól eða
beltapúða ræðst fyrst og fremst af því hvar bílbeltið
hafnar á baminu. Beltið á að liggja í kverkinni milli
háls og axlar og skáhallt yfir bringubeinið. Ef beltið
lendirof hátterbetra að velja stól meðstillingarbúnaði
á hliðinni. Beltastóll/bílpúði með baki veitir og höfði
bamsins svolítið aukna vemd.
Á nýjum viðurkenndum vörum á
framleiðsludagurinn að sjást annað hvort greyptur í,
stimplaður á eða prentaður á límmiða.
6. Er ötyggispúði farþegamegin f framsæti
hættulegur barnshafandi konu?
Fyrir bamshafandi konu er ekki gott að sitja of nálægt
öryggispúða né heldur sitja of nálægt stýrinu sem
getur orðið hættulegt ef árekstur verður. Þegar
maginn er orðinn mjög stór er betra að konan sitji í
farþegasætinu. Ef öryggispúði er einnig þar er mælt
með því að ýta sætinu eins langt aftur og hægt er.
Eða konan sitji í aftursæti.
7. Ég þarf rök fyrir því að öruggara sé fyrir böm
upp að 3-4 ára aldri að snúa baki f akstursstefnu.
Dagmamman telur f lagi að láta þau snúa í
akstursstefnu þegar þau em IV2 árs?
Höfuð bams er stórt og þungt miðað við líkamsþunga.
Á fjögurra ára bami er þungi höfuðsins um 18% af
líkamsþunga samanborið við 6% á fullorðnum.
Umferðarstofnanir á öllum Norðuriöndunum
mæla með því að börn séu látín snúa baki í
akstursstefnu eins lengi og hægt er, helst þar tíl þau
eru 3-4-ára. Rannsóknir sýna að barnabílstóll sem
snýr baki í akstursstefnu minnki áverkaáhrifin u.þ.b.
90% en samsvarandi tala fyrir bamabílstól sem snýr
í akstursstefnu er u.þ.b. 60%.
Á 9 mánaða bami er höfuðið 25% líkamsþyngdar.
í árekstri eða þegar nauðhemlað er kastast höfuðið
fyrst áfram og svo aftur af svo miklu afli að barnið í
verstu tilvikum slasast alvariega á hnakka eða það
deyr því hnakkavöðvamir eru ekki nógu þroskaðir tíl
að þola álagið.
8. Má sitja undir barni í bíl?
Nei það má aldrei sitja undir barni í bfl. Ef árekstur
verðurfærbamið, en ekki sásem heidurá því, mesta
höggið.
5. Hver er endingartími barnabílstóls ?
Rannsóknir á öldmnareiginleikum plasts sem gerðar
vom við Tækniháskólann í Linköping sýna að ekki á
að nota öryggisbúnað lengur en í um 10 ár en tíminn
ræðst einnig af því í hverju búnaðurinn hefur lent.
Alltaf á að skipta um öryggisbúnað sem ient hefur í
árekstri og einnig á að skipta um stól með sprungum
og þess háttar skemmdum óháð aldri hans. Ekki
mega heldur vera skemmdir á beltum og festingum.
Ungbarnastólar hafa skemmri endingartíma m.a.
vegna þess að þeir em meira á þeytingi og em meira
notaðir utan bflsins þannig að þeir verða fyrir meira
hnjaski.Besteraðfaraeftirmeðmælumframleiðenda
sem eru aimennt 5-7 ár.
9. Hver er sektin ef öryggisbúnaður fyrir börn er
ekki notaður?
Ökumaður ber ábyrgð á að öryggisbúnaður er notaður
í bflnum. Ef sérstakur öryggisbúnaður fyrir bam er
ekki notaður er sektin 10 þúsund en ef þess er ekki
gætt að farþegi yngri en 15 ára notí neinn
öryggisbúnað ersektin 15 þúsund.
Heimild: Umferðastofa.is
h