Feykir


Feykir - 11.06.2009, Blaðsíða 4

Feykir - 11.06.2009, Blaðsíða 4
4 Feykir 23/2009 Blönduós Sumarsýning Heimilisiðnaðarsafnsins 2009 Sumarsýning Heimilisiðnaðarsafnsins 2009 var opnuð annan í hvítasunnu. Um er að ræða samsýningu textíliistakvennanna Helgu Pálínu Brynjólfsdóttur, Kristveigar Halldórsdóttur og Rósu Helgadóttur. Sýningin ber heitið “Hring eftir hring” en verkin eru unnin sérstaklega inn í sýningarrýmið með beinni skfrskotun til muna safnsins og Halldórustofu. í upphafi og við lok athafnar heillaði Alexandra Chernyshova viðstadda með söng sfnum. Fjölmenni var við opnunina og margt aðkomufólk og þáðu gestir kaffi og kleinur í lok athafnarinnar. í ávarpsorðum Elínar forstöðukonu Heimilis- iðnaðarsafnsins kom fram að þessi árvissi atburður í safninu, að opna nýja sýningu textíllistafólks vekti ekki aðeins athygli á Heimilis- iðnaðarsafninu heldur líka á héraðinu og Blönduóssbæ. Allar sýningarnar hefðu verið mjög fjölbreyttar og metnaðarfullar og safngestir tekið þeim mjög vel. Gjarnan bærust kveðjur frá öllum heimshornum til safnsins árið um kring sem vekti upp þá spurningu hvort við heimafólk gerðum okkur fyllilega grein fyrir hvaða gersamar við hefðum í höndunum. Þá vék Elín að öðru verkefni sem unnið hefur verið á vegum Heimilisiðnaðar- safnsins í vetur sem er endurútgáfa á bókinni Vefn- aður á íslenskum heimilum á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar. Þessa bók tók Halldóra Bjarnadóttir saman og hún var gefin út árið 1966 en hún hefur verið ófáanleg um langa hríð. Elín sagði að eft ir styrkúthlutun Menningarráðs Norðurlands vestra sl. haust hefði teningunum verið kastað og ákveðið að gefa bókina út að nýju. Þó hefði stjórn safnsins velt fyrir sér hvort fresta ætti útgáfunni með tilliti til þeirra breytinga sem urðu í samfélaginu seinniparts síðasta árs. Það var þó ákveðið að halda ótrauð áfram og hafa ýmsir lagt hönd á plóg með fjárframlögum sem ber að þakka. Bókin er eins og frumútgáfan ef frá er talinn formáli eftir Áslaugu Sverrisdóttur sagnfræðing ásamt aðfaraorðum Elínar en hvortveggja þýddi Steinunn J. Ásgeirsdóttir á ensku. Þá voru teknar nokkrar myndir af munum sem getið er um í bókinni og varðveittir eru í Halldórustofu og gerður viðauki við bókina. Með þessu er efni bókarinnar á engan hátt breytt en hægt að skoða nýlegar myndir í viðauka af ákveðnum munum sem merktir eru viðkomandi blaðsíðu. Bókin verður seld á sérstöku tilboðsverði á 5.900- krónur til og með 17. júní. Sunneva Hafsteinsdóttir framkvæmdastjóri Handverks og Hönnunar opnaði sýninguna og sagði að formlegur undirbúningur að sýningunni hefði hafist á málþingi sem haldið var í ÞAKKARORÐ Hjartans þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu Svanfríður G. Þóroddsdóttir Sauðárkróki Hjartans þakkir Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn ___________________________________________[íT Frá opnun Heimilisiðnaðarsafnsins árið 2008. tilefni af 135 ára fæðingarafmæli Halldóru Bjarnadóttur í október 2008. Lagði hún áherslu á hve Heimilisiðnaðarsafnið væri einstakt og ekki annað hægt en að fýllast lotningu og aðdáun á því fólki sem hafði svo ríka þörf fyrir að gera umhverfi sitt fallegt. Vakti hún athygli á bæklingi sem gefinn hefur verið út í tengslum við sýninguna en þar skrifar Jórunn Sigurðardóttir, útvarpskona, nokkur orð um sýnendurna og verk þeirra og segir meðal annars: “Hvernig eigum við annars að geta skimað lengra og séð víðar um? Það þarf stöðugt nýjar samsetningar, nýtt “upphaf” á hringinn, nýjar framsetningar, til að segja eitthvað um það líf sem við lifúm rétt eins og safnkosturinn í Heimilisiðnaðarsafninu segir svo margt um það líf sem áður var lifað”. ( ÁSKORENDAPENNINN ) Árni Geir skrifar úr Kópavogi Hæ Amma Eg vil þakka kærlega vinstri Bakverðinum og Hársmiðjumongúlnum, Brynjari ‘stöngin inn’ Elefsen, fýrir góða fyrirgjöf úr Grafarvoginum! Það var gott að alast upp í Háuhlíðinni og stutt í helstu nauðsynjar uppvaxtaáranna. Til að mynda heimsklassa sundlaug sem með lítilli fyrirhöfn við stíflugerð bauð uppá grugguga sundspretti og hornsílarækt, lífshættulegar snjóhengjur og þriðju kynslóðar malarvöll. Það var líka stutt á fótboltaæfingar. Hvort sem það var snarróta- og beititúnið á Skallaflötinni eða tjaldstæðið á Nafarbarminum... þar sem refsingin fyrir lélega sendinga eða misheppnað skot sú kvöð að þurfa ná íboltann niðurá aðalvöllinn. Norðan Kirkjuklaufar, en einnigtil brúks, vorum við á hinu stórgóða austurhallandi Sölvatúni. Þarvar völlurinn líklega sleginn ísamkrulli við önnur tún c.a. 3svar á ári, en kannski þó fyrir bestu þar sem hátt grasið hægði á boltanum þegar spilað var niður brekkuna. Þessi æfingasvæði höfðu þó þann kost að aðgengi farartækja var gott. Þetta gerði Guðbrandi Guðbrandssyni þjálfara okkar kleift að stjóma æfingum úr framsætinu á bílnum sínum í vondum veðrum. Það heppnaðist yfirleitt mjög vel þar sem hann setti upp frjálst spil og dæmdi aukaspyrnur með því að þeyta bílflautuna. Með nesti, veiðistangir og túttubyssur að vopni var farið í viðameiri ævintýri. Um tíma áttum við félagarnir prýðis afdrep við Tjarnatjörnina. Meðal uppstökkra álfta og blóðþyrstra mýflugna voru prýðis afþreyingartækifæri. Við komum okkur m.a. upp ágætis fleka. Hann var tryggilega bundinn við land með löngu reipi, og með góðri spýtu var hægt að fikra sig áfram. Einhverju sinni hafði Auðunn Blöndal lagt í siglingu. En langt kominn út á vatnið missti hann spýtuna góðu. Greip hann þá til reipisins sem fast átti að vera bundið við bakkann. Eitthvað hefur pelastikkið brugðist þennan daginn og flaut því Auðunn bjargarlaus um vatnið og kallaði á hjálp. Til allrar lukku var með í för Birgir Óli Sigmundar. Biggifékk bringuhár í bamaskóla og var á þessum tímum töluvert hraustari en við guttarnir. Það nýttist okkur einmitt vel í íþróttum, þó að foreldrar annarra liða hafi efast um aldur stráksins með skeggvöxtinn í minniboltanum. Biggi svaraði kalli Auðuns. Klæddi sig úröllu nema nærbrókunum og stakk sér til sunds. Á Grettisskriði náði hann fljótt flekanum og dró hann í átt að landi. En þegar um 5 metrar voru í land og grunnt var orðið í botninn þá stökk Auðunn af flekanum og óð hnéhátt vatnið í land. Kaldir og mishraktir lögðum við af stað heim á leið upp með Sauðánni. Fljótlega bar þó á meintu kuli á fótum Auðuns. Enda hafði hann hetjulega barist lokasprettinn af flekanum. Þá kom sér aftur vel að Biggi var með í för. Óþreyttur eftir sundið kom hann vini sínum afturtil bjargarer hann tók Auðunn uppá herðarnar og bar hann heim ÍTúnahverfið. Það er gott að eiga trausta vini. Eg skora á salsadansarann, rithöfundinn og sálfræðispekúlantinn Áma Þórodd Guðmundsson að taka við pennanum í Kaupmannahöfn.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.