Feykir - 11.06.2009, Blaðsíða 6
6 Feykir 23/2009
SÓLVEIG FJÓLMUNDSDÓTTiR í FEYKISVIÐTALI
'mmm
iimigw
Hluti /eikhópsins, á myndina vantar leikkonur úr Suðurdeildinni
Skapari Töfratóna
Ævintýrakistunnar
Sólveig Fjólmundsdóttir á
Sauóárkróki ræöst ekki á
garðinn þar sem hann er
lægstur en á 17. júní
veróur, í íþróttahúsinu á
Sauóárkróki, frumsýnd
söng- og leiksýning eftir
Sólveigu. Verkió heitir
Töfratónar
Ævintýrakistunnar og er
söngskemmtun fyrir
börn á öllum aldri.
Feykir hitti hina ungu
athafnakonu á milli
æfinga og forvitnaöist
örlítiö meira um Sólveigu,
Lykil og alla hina.
Sólveig hefur lengi verið
viðloðandi tónlist eða frá því
að hún byrjaði ung að aldri að
syngja með kirkjukórnum á
Hofsósi. Síðar sigraði hún
forkeppni FNV fyrir
Söngkeppni framhaldsskól-
anna og tók að sjálfsögðu þátt í
aðal keppninni. -Ég söng lag
úr Bond mynd en dómnefndin
var ekki alveg nógu góð þetta
árið svo ég komst ekki í sæti
fyrir flutninginn. Þetta var allt
dómnefndinni að kenna,
annars hefði ég rústað þessu,
segir Sólveig og hlær
hjartanlega.
Þannig að ef Idolið hefði verið
byrjað þá hefðir þú tekið þátt?
-Guð, já, ekki spurning, svarar
Sólveig brosandi. -Þá hefði ég
nú reyndar örugglega sagt
glætan en nú segi ég að maður
á að nýta ölf þau tækifæri sem
gefast. -Ég hreinlega elska að
horfa á Idol og alls kyns
söngvakeppnir, get ekki neitað
því að ég er algjör
söngvakeppnisnörd, bætir hún
við.
Hvað með Evrovision, þú átt
ekki lag í skúffunni fyrir þá
keppni? -Kannski, einhvern
tímann jú. Ætli ég feti ekki bara
í fótspor vinkonu minnar, Erlu
Gígju. Aldrei að segja aldrei
amk.
Styrkur frá
Menningarráói gerói
gæfumuninn
Sólveig vinnur hjá Vmnueftirliti
ríkisins og er í sambúð með
Rúnari Símonarsyni, verktaka,
en saman eiga þau tvö börn.
Kolbrúnu Sonju 9 ára og Hákon
Snorra 3 ára. Síðan er hún
dugleg að syngja við hin ýmsu
tækifæri, á Sæluviku, við
brúðkaup, skírnir og alls kyns
uppákomur og viðburði. En
þessa dagana eru það
Töfratónar Ævintýrakisturnar
sem eiga hug hennar og hjarta.
En hvernig skyldi það hafa
komið tfl að ung, útivinnandi
húsmóðir á Sauðárkróki tók sig
tU og ákvað að setja upp
sýningu sem þessa?
-Það hafði blundað í mér
nokkuð lengi að setja upp
sýningu sem yrði þá aðallega
ætluð fyrir börn. Það var síðan
síðasta sumar sem ég fór að
þreifa aðeins fyrir mér og
athuga hvort þetta væri á annað
borð gerlegt. Síðan kom kreppa
og ég eiginlega gaf þetta upp á
bátinn og taldi litla möguleika
á að fá fjármagn í svona
verkefni. Þá kom hún Katrín
María Andrésdóttir, hjá SSNV,
til sögunnar en hún ýtti á mig
og aðstoðaði við að sækja um
styrk tU Menningarráðs
Norðurlands vestra. Hún á
miklar þakkir skfldar. Þegar
ljóst var að styrkur til
verkefnisins var f höfn átti ég
orðið nóg tU þess að fara af
stað. Nú þessu tæpa ári síðar er
hugmyndin, með góðra vina
hjálp, orðin að veruleika.
Sólveig ákvað í upphafi að hafa
sýninguna með mikið af
söngvum úr þekktum barna-
leikritum, ævintýrum og
teiknimyndum. Með það f
huga settist hún niður við
skriftir. Hugmyndafræðin gekk
út á að tvinna hin ýmsu verk
saman og fá söguþráð á milli
þeirra. Það var einmitt í þeirri
vinnu sem Lykill varð tU.
-LykiU er aðalpersóna
sýningarinnar, tónlistarálfur
og mikiU prakkari. Hann býr í
skógi í Álfheimum og á
gríðarstóra kistu sem hann
safnar í tónlist frá vinum sínum
úr Ævintýraheimunum. LykiU
leyfir áhorfendum að skoða
guUin sín og upp úr kistunni
kemur töfrandi tónlist og
litríkar sögupersónur, margar
hverjar vel þekktar börnum á
öllum aldri. LykiU er mikiU
orkubolti og graUari og á að tíl
að vera mömmu sinni rúmlega
handfyUi. Nú er hann einmitt
kominn í felur fyrir henni
sökum prakkarastrika og þorir
ekki heim. Mamma LykUs
leitar hans nú logandi ljósi og
óttast að eitthvað slæmt hafi
hent hann í skóginum þar sem
aUskonar verur eru á sveimi og
ýmislegt getur gerst, útskýrir
Sólveig aðspurð um verkið.